Heilsuvernd - 01.04.1948, Page 39

Heilsuvernd - 01.04.1948, Page 39
HEILSUVERND 37 „Botnlangabólga virðist vera menningarsjúkdómur. Hann er sjald- gæfur, og jafnvel óþekktur meðal lituðu kynflokkanna. Meðal hvítra manna í Bandaríkjunum virðist botnlangabólga tíðari en í nokkru öðru landi, en samt þekkist hún varla meðal negra Suður- ríkjanna. Sama má segja um Afríku, og Dr. Sandwith segir svo frá, að það hafi ekki verið fyrr en 15 árum eftir að Englendingar náðu yfirráðum yfir Egyptalandi, að botnlangabólga hafi fundizt í inn- fæddum Egypta eða Súdanbúa. Hann bætir því við. að síðustu árin hafi samt fundizt nokkur tilfelli; í janúar árið 1906 skoðaði hann sjúklinga í spítala Dr. Cresswells, ásamt lækninum sjálfum, og þar voru 5 botnlangasjúklingar i einni 16 manna stofu. Eg hygg, að helzta og veigamesta orsök botnlangabólgunnar séu tregar hægðir, það að saurinn situr í ristlinum lengur en góðu hófi gegnir.“ Mesópótamía. 1 „British Medical Journal“, 25. sept. og 2. október 1926, birtust eftirfarandi ummæli: .......1 heimsstyrjöldinni starfaði eg lengi meðal Arabaþjóðflokka í Mesópótamíu, án þess að sjá nokkurt tilfelli af botnlangabólgu. Aðalmatur þeirra var: rísgrjón, döðlur og aðrir ávextir. Hinsvegar komu á sama tímabili mörg tilfelli meðal miklu minni flokks brezkra manna, sem bjuggu á sömu slóðum, en átu einkum niðursoðið og frosið kjöt.“ ISLANDSFÖR ARE WAERLANDS VEKUR ATHYGLI. Stefán Völdan, ritstjóri danska tímaritsins „Ny Tid og Vi“, segir frá fyrirlestraferð Are Waerlands til Islands í nýútkomnu hefti af riti sínu. Telur hann leiðangur þennan eftirtektarverðan fyrir tveggja hluta sakir. I fyrsta lagi vegna þess, að í för með Waerland i ferða- lagi hans um landið var íslenzkur læknir. Og i öðru lagi vegna þess, að íslenzka rikisútvarpið gaf honum kost á að tala þar um kenningar sínar. Telur ritstjórinn bæði þessi atriði bera vott um frjálslyndi og hleypidómaleysi fslendinga. Leiðangur þessi er einnig merkilegur fyrir það, að leiðangurs- mennirnir, Waerland og hinir 4 islenzku ferðafélagar hans, lifðu allan tímann eingöngu á mjólkur-og jurtafæðu. Er það vafalaust algert eins dæmi hér á landi, að hópur manna ferðist þannig fram og aftur um landið vikum saman, án þess að bragða nokkru sinni kjöt eða fisk eða dreypa á kaffi.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.