Heilsuvernd - 01.04.1948, Qupperneq 42
40
HEILSUVERND
hluti af jarðveginum og endurnýja gróðurmagn hans, og
sama er að segja um úrgang frá mönnum og dýrum. Jörð-
in er ekki dauður hlutur, hún er stóreflis verksmiðja, heill
heimur út af fyrir sig: margar tegundir af gróðurmold og
gerefnum, bakteríur og ormar, skordýr og aðrar skepnur,
sem breyta dauðum og þefillum hlutum í lifandi efni, án
þess að nokkuð fari forgörðum.
Meðal frumstæðra þjóða er ekkert, sem truflar þessa
einföldu hringrás, svo að jarðvegurinn er engu rændur af
skapandi orku sinni. I fjörutíu aldir hafa Kínverjar varð-
veitt frjósemi lands síns, með því að hlíta aðferðum náttúr-
unnar og skila jarðveginum sem áburði öllum þeim úrgangi,
sem menn og dýr gefa frá sér. Þegar jarðveginum er þann-
ig vel haldið við, er hann fyllilega fær um að ala lifandi
verur. Meðaltölur frá sjö sveitahéruðum sýndu, að á hálf-
um þriðja ferkílómetra lands gátu lifað 1783 menn, 212
sauðfjár og 399 svín.
Þess er ekki langt að minnast, að Lundúnabúar tóku
þátt í þessari hringrás. Aldini og grænmeti var flutt til
þeirra á bátum, og sneru bátarnir heimleiðis hlaðnir sorpi
og saur, sem notað var til áburðar í garða utan borgarinn-
ar. Þrifalegt var það ekki, en það var í betra samræmi við
aðferðir náttúrunnar sjálfrar heldur en þær hreinlætis-
ráðstafanir, sem nú er beitt og eru fólgnar í því að leiða
skolpið til sjávar með ærnum tilkostnaði, þar sem það kem-
ur að engu gagni, og verja stórfé í að brenna rusl og úr-
gang frá húsum og eyðileggja þannig þau verðmæti, sem
í því eru falin.
Nú er svo komið, að vér skilum jörðinni aftur aðeins
litlu einu af því, sem frá henni er tekið. Orð Sheakspeares
„Kórallar eru gerðir af beinum hans“ gætu átt við nú-
tímamanninn, því að efnið úr beinum vorum skolast á haf
út og gengur þar inn í hringrás sjávarlífsins. Af holdi
voru nærist þangið, sem úir og grúir af við strendur vorar,
þar sem mikið skolp er leitt til sjávar. Það er mælt, að
þessi sjávargróður spilli fiskimiðum og geri að engu á-