Heilsuvernd - 01.04.1948, Qupperneq 53
HEILSUVERND
51
byrjaði með verk í iljunum, en hann hafði ætíð verið mjög
slæmur af fótsvita. Verkurinn breiddist frá iljunum upp
eftir fótleggjum upp að hnjám, sem hann varð alltaf að
halda krepptum til þess að lina þrautirnar. Verkurinn færð-
* ist áfram upp, fyrst til mjaðmanna og síðan um allan lík-
amann, og verstur var hann í liðamótunum.
Sjúklingnum var nú gefið asperínduft, sem hann svitn-
aði geysimikið af. Þessu var haldið áfram í nokkrar vikur,
og allan þann tíma lá hann í einu svitabaði, sem reyndi auð-
vitað mjög á hið veiklaða hjarta hans. Hann barst lítt af,
missti alla matarlyst og hríðhoraðist.
Hann veiktist í júní 1936, þ. e. a. s. snemma sumars. En
h hann sá aldrei svo mikið sem eitt grænt blað, tómat eða
nýja ávexti þetta ár, sem hann lá þarna í sjúkrahúsinu.
Allur matur sem hann fékk þar, var mikið saltaður, krydd-
aður og sykraður: kjöt, fiskur, sósur, vellingar, grautar,
hvítt brauð, kaffi o. m. fl. Kartöflurnar voru afhýddar, áð-
ur en þær voru soðnar, og bæði þær og allt annað græn-
meti var mauksoðið. „Maður hlýtur að fá leið á svona mat
til lengdar, þó að maður sé frískur,“ sagði Karl Ivar. ,,Og
það leið ekki á löngu þangað til maginn gerði uppreisn,
og eg fór að kasta upp öllu, sem eg borðaði. Þá var hætt
við asperínduftið, sem hafði ekki bætt mig hið allra minnsta,
heldur þvert á móti gert mér bölvun eina. En í staðinn var
mér gefið eitthvert grænt duft, sem ég kastaði upp jafn-
harðan. Eftir hin miklu svitaböð var eg orðinn svo horaður,
að eg var ekkert nema skinnið og beinin. Og nú var svo
komið fyrir mér, að eg þurfti ekki annað en að heyra til
matarvagnsins á ganginum til þess að fá uppköst.
Loks var eg svo langt leiddur, að öllum var það ljóst,
m. a. s. mér sjálfum, að ég átti ekki marga daga eftir ó-
lifaða. Læknirinn minn, Bertil Scherstén dósent frá Lundi,
lét nú flytja mig í annað minna herbergi, en þar lá annar
* dauðvona sjúklingur, sem einnig var talin af. Þetta var
í febr. 1937. En þá var hörmulegt umhorfs í þessu sjúkra-
húsi. Þangað höfðu verið fluttir 25 lungnabólgusjúklingar
4*
"r