Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 56
54
HEILSUVERND
Eg lagði mikið af í fyrstu á sólvíkingafæðinu, meðan mag-
inn og meltingarfærin voru að venjast því og laga sig
eftir því og læra að melta það. En von bráðar tók eg að
þyngjast á ný og hélt því áfram jafnt og þétt, unz eg hafði
náð eðlilegri þyngd. Eg hefi haldið henni síðan, og það
getur enginn sagt annað en að eg sé í góðum holdum og
líti betur og hraustlegar út en flestir aðrir. Eg á því hinu
ágæta waerlandsfæði ekki aðeins líf mit að launa, heilsu
mína og afturbata, heldur á eg því það að þakka, að líf mitt
er nú þrungið velliðan og gleði, sem er óþekkt flestum þeim,
sem lifa á hinu gamla og algenga viðurværi, og þá gæti varla
órað fyrir, að unnt væri að öðlast.“
(XJr „Fólkrötari*, eftir Are Waerland).
MERKILEGAR RANNSÓKNIR Á SÚRMJÓLK.
Súrmjölk hefir löngum verið talin mjög heilnæm fæða. Hún er
auðmeltari en nýmjólk. og því er það, að sjúklingum með ristilbólgu
verður gott af súrmjólk, þótt þeir þoli ekki nýmjólk. Þá vinnur hún
gegn rotnun i þörmum, enda er það kunnugt, að súrinn er einn skæð-
asti óvinur rotnunargerla.
Til eru margar tegundir gerla, sem sýrt geta mjólkina. Má skipta
þeim í tvo aðalflokka, stafgerla og streptókokka. Þegar mjólk
súrnar sjálfkrafa, eru streptókokkar aðallega að verki. Hinsvegar
voru stafgerlar í kálfsmögum, sem skyrhleypir var unninn úr í
gamla daga hér á landi. Stafgerlar eru einnig i júgúrt-mjólkinni,
sem talin hefir verið eiga mikinn þátt í góðu heilsufari og langlífi
Búlgara og fleiri Baikanþjóða.
Danskur vísindamaður, prófessor Holger Möllgaard að nafni,
sem mörgum er kunnur hér á landi, hefir um 15 ára skeið gert
fóðrunartilraunir á dýrum við vísindastofnun í Kaupmannahöfn (Stat-
ens Forsögslaboratorium). Hefir hann komizt að þeirri merkilegu
niðurstöðu, að grísir, sem fóðraðir voru með súrmjólk, sýrðri með
vissri tegund stafgerla, urðu miklum mun heilsuhraustari en önnur
dýr, húðin hvít og hrein, vöxturinn örari og beinabyggingin sér-
staklega sterk. M. a. var gerður samanburður á grísum, sem fóðr-
aðir voru á þessari sérstöku tegund súrmjólkur og öðrum, sem fengu
súrmjólk, sýrða með streptókokkum. Þegar grísunum var slátrað
og beinin söguð í sundur, sýndi það sig, að beinpípur hinna síðar-