Heilsuvernd - 01.04.1948, Blaðsíða 64
62
HEILSUVERND
Svör:
1. Skalli stafar of ónógu blóðstreymi til hársekkjanna, þar sem
hárvöxturinn fer fram, og af vöntun steinefna og fjörefna í næring-
una. Innisetur og kyrrsetur eiga nokkurn þátt í því, að menn verða
sköllóttir, ennfremur þétt höfuðföt. Ættgengi ræður nokkru um. Loks
getur skalli verið afleiðing af sérstökum sjúkdómum.
2. Flasa er smitandi sjúkdómur, sem orsakast af svepp. Að öðru
leyti koma og til greina sömu orsakirnar og þær, sem valdar eru
að skalla. Gott ráð við flösu er að þvo hársvörðinn með klút vættum
í sterku sódavatni (blanda saman vatni og þvottasóda til helminga
eftir þunga), og skola vel á eftir úr volgu vatni. Endurtaka þvott-
inn annanhvern dag í fyrstu en síðan sjaldnar. Borða sem mest af
lífandi og náttúrlegri fæðu og nudda hársvörðinn daglega fast og
þétt með fingurgómunum, og eiga bæði þessi ráð einnig við hárlosi og
skalla. Hársvörðinn á að nudda neðan frá og upp á hvirfilinn
nokkrum sinnum og síðan með hröðum hreyfingum í ýmsar áttir,
svo sem þrjár mínútur á hverjum morgni.
3. Já, má segja undantekningariaust. Líkaminn framleiðir sjálfur
beztu hárfeiti, sem völ er á.
4. Já. Kaplamjólk og ösnumjólk er að efnasamsetningu líkust
móðurmjólkinni og þvi tilvalin næring handa börnum, sem ekki
eru á brjósti.
5. Já. Flestar jurtir og grænmeti er bezt að borða nýtt og ósoðið,
en auðvitað vel hreinsað og vandlega þvegið. Túnsúra (almennt rang-
nefnd hundasúra, sem er önnur jurt), njóli og rabarbari innihalda
mikið af sterkum sýrum, og ber því að gæta mjög hófs í neyzlu
þeirra. (1 Heilsuvernd 1946, 1.-2. hefti og í „Nýjum leiðum 11“ eru
leiðbeiningar um notkun innlendra nytjajurta).
6. 1 mýrarrauðu eru hrein járnsambönd, sem ekki eru talin skað-
leg.
7. Láta augnlækni athuga augun og hlíta ráðum hans. Séu sól-
gleraugu notuð, verða þau að vera alveg litlaus (reyklituð).
8. Já, öll kyrrseta er óholl, veldur m. a. tregum hægðum og ann-
arri kyrrstöðu í líkamanum og þar af leiðandi eitrun hans. Til að
bæta þetta upp, þurfa þeir, er slíka vinnu stunda, að iðka líkams-
æfingar daglega og hreyfa sig undir beru lofti sem lengst á degi
hverjum.
9. Nýmjólk úr heilbrigðum og rétt fóðruðum kúm inniheldur flest
þau efni, sem likaminn þarfnast, þar á meðal mikið af kalki og fos-
fór, sem er einn aðalefniviðurinn í tönnunum.
H. S., Akureyri, kvartar yfir því, að honum takist ekki að láta