Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 89

Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 89
hjallinn, að skrápurinn á lykkjunum snéri í aðal vindáttina. Ef rigning var, lenti hún á skrápnum og rann niður án þess að bleyta lykkjurnar neitt að ráði. Hjallurinn var oftast með grónu torfþaki, sem ekki lak og varði þakið hákarlinn fyrir bleytu og sól, sem ekki mátti ná að skína á hann, því þá sólsoðnaði hann eins og áður er sagt. Þurrktími hákarls var oftast um það bil 16 til 20 vikur, eftir tíðarfari. Þegar hákarlinn var tekinn af ránum og látinn í hús, varð að varast að bunka honum saman, því væri það gert, blotnaði hann og varð útlitsljótur. Sett var snærislykkja í haldið á hverri lykkju og síðan hengdar upp og varð að vera það mikið bil á milli þeirra, að loft gæti leikið um þær og þær haldist þurrar. Þegar um mikinn hákarl var að ræða, sem átti að fara fljótlega á markað, voru lykkjurnar ekki hengdar upp, heldur var þeim raðað á rimla inn í húsi, og voru rimlarnir á upphækkun u.þ.b. 1 metra frá gólfi. Þessir rimlar voru oftast fiskirár úr hjöllum lagðar þvert á súlur, er hvíldu á lágum trönum. Ekki mátti bunka hákarlinum á þessa rimla og þurfti því allmikið húsrými, ef mikið var af hákarli. Þegar senda átti hákarl á markað, var honum venjulega pakkað í strigaumbúðir og lagður þannig, að skrápurinn lá saman. Loft lék um hákarlinn í gegn um strigann, og einnig myndaðist loftrúm á milli lykkjanna í pakkanum, og hélt þetta honum þurrum, en það var mjög áríðandi að hákarlinn liti sem best út, þegar hann kom til kaupanda. Að lokum má geta þess, að siðan nútíma húsnæði kom til sögunnar, telja margir, að ekki sé hægt að geyma hákarl í íbúð- arhúsnæði vegna hinnar sterku lyktar frá honum, en þetta er misskilningur. Sé hákarl settur í þrefaldar plastumbúðir og þeim vel lokað, má geyma hann i frystikistu án þess að nokkur lykt finnist af honum. Til gamans má geta þess, að hákarl er af mörgum talinn afbragðsgott magameðal, og munu margir hafa losnað við óþægilega magakvilla með því að borða hákarl daglega í nokk- urn tima. Einnig má geta þess, að á æskuárummínumþegar læknar voru 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.