Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 120

Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 120
einfaldar almennar skýringar, svo sem þær, hvílíka nauðsyn bæri til þess, að hásetar skildu rétt skipanir formanns og hlýddu þeim. Allur misskilningur og röng framkvæmd gæti kostað skipshöfnina lífið. Ekki hef ég heyrt þess getið, að Guðmundur hlyti óvinsældir nemenda sinna, þótt sum uppeldisbrögð hans kunni að þykja kyndug nú. Flestir þeirra eða allir báru hlýjan hug til hans síðar á ævinni. Aldrei lét Guðmundur menn fara svo um, að þeir þægi ekki einhverjar góðgerðir. Fór hann þar ekki í manngreinarálit. Ef krakka eða unglinga af næstu bæjum bar að garði, en það var helst í smalamennsku, kallaði hann á þá út í skemmu og spurði þá, hvort þeir hefðu fengið nokkuð gott í bænum. Ef svo varekki, hyglaði hann þeim í skemmunni. Þar voru góðgerðir hans rausnarlegar, en sá böggull fylgdi skammrifi, að aldrei rétti hann þeim nema eina tegund matar, svo sem eintómt smjör, hákarl eða fisk. Gömul kona sagði mér, að eitt sinn hefði hún komið dauðsvöng úr smalamennsku að Ingólfsfirði. Guðmundur var úti við, heilsaði henni vingjarnlega og sagði, að hún þyrfti að fá eitthvað gott. Fór hann út í skemmu, kom með stórt smjör- stykki, fékk henni það og mælti: „Ettu þetta, barnið gott, það beinsvíkur þig ekki“. Þótt Guðmundur væri fornbýll og lumaði á ýmsu, var þó stundum þröngt í búi hjá honum. Eitt sinn bað kona hans hann um efni í brauð handa börnum þeirra, en Guðmundur sagði eins og var víst satt, að ekkert mjöl eða korn væri til. En er kona hans leitaði oftar eftir hinu sama, gekk hann með hana út á tún skar þar upp torfusnepil og mælti: „Taktu nú þarna brauð“. Einu sinni var kona hans að kafna í reyk í eldhúsinu. Kvartaði hún yfir þessu við mann sinn og bað hann að laga strompinn. Þá varð Guðmundi að orði: „Lítt myndir þú þola fordæmdra gufu“. Kona nokkur þar í sveitinni hafði haldið framhjá manni sín- um. Barst þetta í tal í Ingólfsfirði. Segir þá Guðmundur: „Hann hefur verið alltof góður við hana. Það veitir ekki af því að berja sumar konur“. Kerla hans svarar: „Að þú skulir, segja þetta, Guðmundur. Aldrei hefur þú barið mig“. Þá byrstir karl sig: 118
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.