Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 17
bjarmi | apríl 2021 | 17
til trúarlegrar uppbyggingar og fræðslu en
síðar fóru að koma út rit sem beindust að
börnum og ungmennum, svo nokkuð sé
nefnt.
ÞÚ NEFNDIR SR. JÓN Á
MÖÐRUFELLI, ER HANN TALINN
UPPHAFSMAÐUR SMÁRITAÚTGÁFU
HÉRLENDIS?
Við getum a.m.k. sagt að hann varð það
verkfæri sem Guð notaði til þess að vekja
athygli á notagildi smárita/bóka hér á
landi.
Ebeneser Henderson ferðaðist hér um
land árin 1814 – 15 á vegum Hins breska
og erlenda biblíufélags, eftir að hafa annast
útgáfu Biblíunnar og Nýja testamentisins
á íslensku, sem félagið lét prenta í
Kaupmannahöfn. Henderson segir m.a.
svo frá þeirra samskiptum að hann hefði
farið að Möðrufelli „þar sem jeg fjekk hinar
hjartanlegustu viðtökur hjá hinum mæta
sóknarpresti, síra Jóni Jónssyni.“ Síðar
stendur: „En af því hvernig orð hans fjellu
um eflingu ríkis Krists og af þeim áhuga,
sem hann ljet í ljósi um að aukast mætti
sönn guðrækni í landinu, varð mjer það
ljóst að hann stjórnaðist af alt öðrum anda
en meginþorri þeirra, er telja sig kristna.
Hvatti jeg hann til að koma í framkvæmd
áformi sem hann hafði í huga að dreifa
guðrækilegum smáritum um landið.
Um veturinn fjekk ég frá honum
tvö fróðleg brjef, þar sem hann tjáði
mjer að hann hefði farið að ráði mínu
og sjer hefði tekist að mynda íslenzkt
smáritafjelag og náð í yfir þrjú hundruð
fjelagsmenn og að Bjarni Thorarensen,
amtmaður norðanlands, veitti fjelaginu
brautargengi.“ ---
„Ekki gæti stjórn Smáritafjelagsins
hafa komist í betri hendur—“ --
Til að gera langa sögu stutta þá
gekkst sr. Jón fyrir stofnun „Þess íslenska
evangelíska smárita-félags“ árið 1816
eftir að hafa sent út boðsbréf með
undirskriftum 146 styrktarmeðlima og
setti því viðtektir. Fyrstu greinar þeirra
viðtekta skýra vel tilgang og trúarlega
stefnu félagsins