Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 32
| bjarmi | apríl 202132
VIGFÚS INGVAR INGVARSSON
Guð í náttúrunni
– Hans Børli,
skógarhöggsmaður og
ljóðskáld
Hans Børli (1918-1989) er á meðal ástsælli
20. aldar ljóðskálda Noregs og ljóð hans eru
mörgum uppspretta gleði og margvíslegra
hughrifa. Hann ólst upp í fátækt á rýru
húsmennskukoti í Eidskog (Eiðaskógi) syðst
á Heiðmörk sem nú er runnin inn í hið nýja
Innlandsfylki (Innlandet). Byggðin liggur að
sænsku landamærunum um 75 km aðeins
norðan við háaustur frá Ósló.
Aðstæður leiddu til þess að Børli
fór að mestu á mis við formlega
skólagöngu en með bóklestri og næmri
athugun á náttúru og mannlífi öðlaðist
hann lífsvisku sem hann miðlaði í
ljóðum sínum. Dýrmætt veganesti hefur
hann eflaust fengið í kærum átthögum
sínum sem hann sagði aldrei skilið við.
Aðspurður kvaðst hann ekki skrifa um
skóginn þar sem hann þó vann löngum:
„Nei, … ég er eitt með skóginum og
náttúrunni.“ Ljóðinu, Tréð, lýkur á
faðmlagi:
Þú stendur þarna í vorvindinum
og þrýstir eyranu að
hrjúfum berki.
Og skyndilega
veistu ekki hvort það ert
þú
sem skynjar tréð
eða tréð
þig.
Børli telst varla trúarskáld í
hefðbundnum skilningi en þó segir í
Norsku kirkjublaði, blaðkálfi um Børli árið
2018 í tilefni þess að 100 ár voru liðin frá
fæðingu hans,1 að hann sé að líkindum
það ljóðskáld sem norskir prestar vitni
oftast til. Tengslin milli himins og jarðar eru
áberandi í ljóðum hans. Hið heilaga kemur
til jarðar og birtist allt í kring, ekki síst í
skóginum og hrynjandi lífsins í náttúrunni.
Á æskuheimilinu mun trúin hafa verið
í nokkuð harðneskjulegu formi sem Børli
hlaut að endurskoða að einhverju leyti.
Úr því uppgjöri verður nokkur barátta
sem stundum lýsir sér í vissri kaldhæðni
en á hinn bóginn trúarlegum innileika.
Á hvaða strengi sem hann slær, bregst
ljóðræna fegurðin ekki. Ljóðið, Fífan
á Lómatjarnarmýrunum, hljóðar svo í
íslenskri þýðingu:
Verði ég hólpinn,
þrátt fyrir allt,
og komi til bústaða hinna sælu
mun ég segja við erkiengilinn:
‒ Ég hef séð það sem var
hvítara en vængir þínir, Gabríel!
Ég hef séð fífuna í blóma
á Lómatjarnarmýrunum
heima á jörðinni.
Børli á auðvelt með að bregða upp
lifandi myndum, oft í fáum orðum. Framan
af árum orti hann með hefðbundnari hætti