Bjarmi - 01.04.2021, Side 38
| bjarmi | apríl 202138
þátt í áætlunarverki Krists á landinu. Við
höfðum mestan áhuga á Íslendingum
sem fóru næstum því aldrei í messu eða
á kristilegar samkomur. Við mynduðum
umræðuhópa um ýmis málefni sem
tengdust kristinni trú. Ég var með
útvarps þátt á gömlu Aðalstöðinni og
fór hús úr húsi með kristilegar bækur til
útlána. Við bjuggum til námskeiðaseríu
um mannleg samskipti, fjölskyldulíf og
boðskap Biblíunnar. Guð opnaði dyr
fyrir fagnaðarerindið og við sáum nokkra
einstaklinga taka afstöðu með Kristi út frá
þessu öllu. Við stofnuðum einnig, ásamt
tveimur vinum, starf sem hét Lífsgæði
þar sem við reyndum að mæta fólki í
viðskipta- og atvinnulífinu með gagnlega
kennslu um samskipti, leiðtogahæfni o.fl.
SÍÐAN VORUÐ ÞIÐ KÖLLUÐ TIL MIÐ-
EVRÓPU?
Já, árið 1997 fengum við beiðni frá
samtökum okkar um að verða deildarstjórar
í Norðaustur Evrópu. Þá fluttum við til
Búdapest í Ungverjalandi. Þar höfðum við
umsjón með kristniboðum sem voru að
vinna í fyrrum kommúnistalöndum. Síðan,
árið 2000, urðum við af persónulegum
aðstæðum að flytja aftur til Bandaríkjanna.
En þá fannst okkur eins og Drottinn væri
á sama tíma að leiða okkur til að gera
Lífsgæði, sem voru stofnsett á Íslandi, að
alþjóðlegri þjónustu. Næstu átta ár kom
saman vinnuhópur í kringum okkur þar
sem kristniboðar unnu saman með kristnu
atvinnu- og viðskiptafólki við að halda
námskeið í Mið- og Austur-Evrópu.
EN ÞIÐ VORUÐ SAMT EKKI BÚIN
MEÐ ÍSLAND?
Nei, síðan gerðist það í september 2008
að við fluttum aftur til Íslands, daginn þar
sem Lehman Brothers banki fór á hausinn
og efnahagshrunið byrjaði. Tíu ár voru
liðin síðan við bjuggum á Íslandi og margt
hafði breyst. Við byrjuðum að þjóna sem
kennarar og ráðgjafar með ýmsum kirkjum
og samtökum.
Okkur fannst á þeim tíma eins og
Drottinn væri að sýna okkur þörfina fyrir
að gera fólk að betri fylgjendum Jesú. Það
varð til þess að við gerðum tilraun með
aðferð sem heitir „Life Transformation
Groups“ á ensku. Ég bað kristna leiðtoga
úr ýmsum kirkjum á Reykjavíkursvæðinu
að gera tilraun í að stofna svoleiðis hópa
og skrifaði doktorsritgerð um þessa
tilraun. Það var gert og var árangurinn
mjög góður. Við kölluðum þessa hópa
„Pílagrímafélagið“ en síðan höfum við
einnig láta þá heita „Jesúvinahópar“.
Kjarni þessar aðferðar er að tveir eða
þrír einstaklingar hittast reglulega til að
hjálpast að við að lifa ósviknu andlega
lífi. „Að hittast í tveggja til þriggja manna
hópum reglulega skiptir verulegu máli í
lífi venjulegs kristins fólks og geri það að
betri vinum og nemendum Jesú Krists“
var niðurstaðan. Ég útskrifaðist sem
Doctor of Ministry frá Missio Seminary í
Fíladelfíu, árið 2014.
BANDARÍKJAMAÐUR AÐ SKRIFA
BÓK Á ÍSLENSKU HVAÐ KOM TIL?
HVAÐ KNÚÐI ÞIG?
Mér fannst sem kristniboði, guðfræðingur
og Íslandsvinur að ég hefði eitthvað sem
ég vildi segja eftir að hafa búið hér í mörg
ár. Ég hef horft með ykkur á breytingar
innan kirkjulífs Íslendinga síðustu 35
ár. Við sjáum hvernig viðhorf fólks til
kristinnar trúar í vestrænum heimi okkar
hefur breyst og hvernig kristindómurinn
eins og við höfum þekkt hann er að missa
fótfestu í lífi almennings. En ég vissi einnig
að kirkja Jesú Krists er í eðli sínu hreyfing
frekar en stofnun og að frumhlutverk
hennar er að gera fólk að lærisveinum.
Því miður hefur ekki mikið verið skrifað á
íslensku sem tengir þetta saman. Þess
vegna ákvað ég að leggja út á djúpið og
reyna að skrifa eitthvað gagnlegt um þetta
efni sem yrði kirkjunni á Íslandi til góðs.
Ég kaus að skrifa á íslensku frekar en á
móðurmáli mínu því að ég vildi hugsa á
máli fólks sem ég væri að reyna að ná
til og setja mig inn í íslenskar aðstæður
eins og ég hafði upplifað þær. Kærleikur til
Krists og ykkar sem og trú á kirkjuna sem
hreyfingu knúðu mig.
„AÐ HITTAST
Í TVEGGJA
TIL ÞRIGGJA
MANNA
HÓPUM
REGLU LEGA
SKIPTIR
VERULEGU
MÁLI Í LÍFI
VENJU LEGS
KRISTINS
FÓLKS OG
GERI ÞAÐ
AÐ BETRI
VINUM OG
NEMENDUM
JESÚ KRISTS“