Bjarmi - 01.04.2021, Page 41
bjarmi | apríl 2021 | 41
og óvíst væri hvort hún næði nokkurn tíma
fullum bata.2
LÆKNINGIN
En dag einn heimsótti hana kona, sem
þekkti til Sigurðar Sigvaldasonar kristniboða
frá Kanada, sem Guð hafði kallað til starfa
á Íslandi. Það sem sérstaklega vakti
athygli Salbjargar var að sögur gengu
um að umræddur maður væri gæddur
lækningagáfu fyrir bæn og handayfirlagningu
í nafni Jesú Krists. Í fyrstu sinnti hún ekki
þessari vísbendingu en þegar þurfti að
rýma sjúkrastofuna hennar fyrir sjúklingum
sem voru nýsmitaðir, bað hún um fyrirbæn
hjá Sigurði. Eftir fyrirbænina fann hún strax
breytingu á líðan sinni. Trú og ný von vöknuðu
innra með henni. Trú og von sem urðu að
raunveruleika þegar hún síðar læknaðist af
berklunum.2
Þessi reynsla hafði djúp áhrif á hana
og opnaði henni nýja og dýpri innsýn inn í
krossdauða og upprisu Frelsarans. Innsýn
sem hafði afgerandi áhrif á líf hennar og
þjónustu við Guð á komandi tímum.2
KYNNI SALBJARGAR OG GUÐRÚNAR
Kynni Salbjargar og Guðrúnar hófust
þegar Guðrún starfaði sem ljósmóðir
Hafnarfjarðarbæjar. Þegar Guðrún réði sig
þangað árið 1932, fékk hún leigt herbergi
hjá Eyjólfi föður Salbjargar að Hverfisgötu
6b. Þar hófst ævilöng vinátta þeirra og
síðar samstarf. Haft er eftir kunnugum að
Salbjörg hafi oft hvatt Guðrúnu til að taka
þátt í kristilegri þjónustu með sér. En Guðrún
tregðaðist lengi við og spurði ætíð:
„Hvernig get ég verið óskipt í bæninni
til Drottins jafnhliða því að vera bundin með
hugann hjá þeim konum sem eiga von á sér?“2
AÐDRAGANDINN AÐ ÞJÓNUSTUNNI
Aðdragandanum að þjónustu Salbjargar og
Guðrúnar lýsir Salbjörg sjálf á eftirfarandi hátt:
„Meðal íslensku þjóðarinnar hafði
á áratugnum fyrir alþingishátíðina orðið
umtalsverð vakning. Af náð úthellti Drottinn
heilögum anda yfir trúaða svo marga þyrsti
eftir uppbyggingu í orði Guðs og þráðu
leiðsögn andans. Þetta fólk kom saman
utan hinnar hefðbundnu guðsþjónustu á
svokölluðum samkomum, sem fram að
þeim tíma voru óþekktar hér á landi. Sigurður
Sigvaldason var einn þeirra sem gaf sig að
útlistun orðsins. Hann starfaði sem kennari í
Kanada þegar Drottinn kallaði hann og sendi
hann heim á Frón til að útbreiða orðið meðal
landa sinna bæði í bókstaflegri og andlegri
merkingu, þar sem hann auk þess að boða
orðið, ferðaðist um og seldi Biblíur. Hann var
gæddur náðargjöf til lækninga og útlistunar
heilagrar Ritningar. Sigurður hlýddi kalli
Krists og ferðaðist milli Íslands og Kanada
um árabil. Hann kom inn á mörg heimili til
boðunar, knúði dyra, þar sem hann hafði
spurnir af trúuðum og sagði gjarnan: