Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 46
| bjarmi | apríl 202146
Reynsla af lausn
frá skömm
JOY SHARKA
Ég gleymi aldrei hvernig mér leið í fyrsta
sinn sem ég leit í spegil eftir að mér hafði
verið nauðgað í háskólanum. Þarna
stóð ég, nakin, ein og full skammar. Ég
efaðist um Guð og kærleika hans til mín.
Stuttu síðar skrifaði ég niður grát minn
til Guðs:
Guð, er þér sama?
Guð, varstu þarna?
Varstu með mér þegar heimurinn
hrundi?
Þegar hann tók auðkenni hennar.
Þegar hann rændi von hennar og henti
henni í gólfið.
Fótum tróð hana og reif í sundur.
Hvernig léstu þetta gerast?
Hvers vegna stöðvaðir þú þetta ekki?
Þessi litla stúlka.
Barnið sem þú dáir?
Sköpuð í þinni mynd. Manstu eftir
henni?
Manstu eftir loforðunum sem þú gafst
henni?
Að vernda hana. Sjá um hana.
Þá leit hún í spegilinn.
Nakin.
Brotin.
Særð.
Tóm.
Misnotuð.
Líflaus.
Þetta blasti við henni.
Árin hafa liðið, en þetta augnablik,
þegar ég stóð fyrir framan spegilinn líður
mér aldrei úr minni.
Ég hafði ekki hugmynd þá, en með
sögu minni opnaði Guð augu mín fyrir
umbreytandi kærleika sínum. Svipuð
saga er í Biblíunni um konu sem hafði
verið misnotuð og síðan yfirgefin og
einangruð. Í Jóhannesarguðspjalli lesum
við um samversku konuna. Í því sambandi
er það skemmtileg staðreynd: Þetta eru
lengstu samræður Jesú sem við lesum
um í Biblíunni og er við konu sem hafði
einangrast frá samfélagi sínu. Hún lifði í
skömm og henni fannst hún þar að auki
ekki eftirsóknarverð.
Samversk kona kemur að sækja
vatn. Jesús segir við hana: „Gef mér að
drekka.“ En lærisveinar hans höfðu farið
inn í borgina að kaupa vistir.
Þá segir samverska konan við hann:
„Hverju sætir að þú, sem ert Gyðingur,
biður mig um að drekka, samverska
konu?“ [En Gyðingar hafa ekki samneyti
við Samverja.] Jesús svaraði henni: „Ef
þú þekktir gjöf Guðs og vissir hver sá er
sem segir við þig: Gef mér að drekka, þá
mundir þú biðja hann og hann gæfi þér
lifandi vatn“ (Jóh 4.7-10).
Yfirleitt er fjallað um þessa frásögu
út frá því sjónarhorni að konan var full
skammar og sektarkenndar þar sem
hún hafði átt svona marga eiginmenn.