Strandapósturinn - 01.06.1987, Blaðsíða 17
I heild var frammistaða Strandamanna á landsmótinu með
besta rnóti. HSS hlaut samtals 25 stig og lenti í 12. sæti af 26
sambandsaðilum.
Sl. sumar voru sett 2 Strandamet í frjálsum íþróttum fullorð-
inna. Svanborg Guðbjörnsdóttir á Broddanesi bætti elsta kvenna-
metið á fyrsta móti sumarsins í Sævangi, er hún varpaði kúlu 10,04
A landsmódnu á Húsavík bætti Bjarni Þ. Sigurðsson í Stóra-
Fjarðarhorni Strandametið í hástökki, stökk 1,80 m. Hann vann
síðar um sumarið íslandsmeistaratitil í langstökki 16 ára sveina, en
fyrir tveimur árum varð hann íslandsmeistari pilta í sömu grein.
hjarni var valinn frjálsíþróttamaður ársins hjá HSS þriðja árið í
röð. Sundmaður ársins var valin Victoría R. Ólafsdóttir á Svans-
hóli, og Smári Jóhannsson á Hólmavík hreppti sæmdarheitið
hnattspyrnumaður ársins.
Knattspyrnulið Umf. Geisla á Hólmavík tók þátt í Vestfjarða-
nðli 4. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu. Liðinu gekk verr en
arið áður, enda vantaði nú nokkra af bestu leikmönnum þess frá
suntrinu 1986. Liðið vann 4 leiki í mótinu, gerði 1 jafntefli og
tapaði 5 leikjum. Þjálfari liðsins var Magnús Ól. Hansson.
42. ársþing Héraðssambands Strandamanna var haldið á Borð-
eyri í september. Á þinginu var Rögnvaldur Gíslason í Gröf end-
urkjörinn formaður sambandsins.
Vegagerð
I haust var unnið við frágang vegarins af Steingrímsfjarðar-
heiði niður í Lágadal. Urnferð hefur nú verið hleypt á þennan
nýja veg, en áður hafði leiðin vestur í Djúp legið um Langadal. Af
öðrum vegaframkvæmdum sem varða Strandamenn sérstaklega
má nefna smíði brúar á Víkurá í Hrútafirði, vegagerð í sunnan-
verðum Sdkuhálsi, styrkingu (og mjókkun) vegar í norðanverð-
um Bitrufirði, undirbyggingu vegar um Selströnd og brúarsmíði
og vegagerð við Reykjanesgil og Ávíkurá í Árneshreppi. Þá var
einnig lagt bundið slitlag á veginn milli Kjörseyrar og Prestsbakka
í Hrútafirði.
15