Strandapósturinn - 01.06.1987, Blaðsíða 50
fá henni framgengt. Ég hef fyrir löngu orðið var við að sumir
menn vildu skipta félaginu, og af því að mér hefir ekki fundist
gagn fyrir félagið að sundra kröftum sínum, þá hef ég lagt lítillega
á móti því á tveimur aðalfundum þar sem skiptingin kom til
umræðu. Á fundinum í fyrra minnir mig að ég léti málið afskipta-
laust. En ég hygg að enginn maður geti sagt, að ég hafi „agiterað“
móti skiptingunni í laumi. Ég kann ekki þá aðferð og ég mun ekki
reyna að læra hana héðan af.
Þetta er orðið miklu lengra en ég ætlaði og bið þig afsaka rispið.
Með kærri kveðju til konu þinnar og bestu óskum til ykkar
beggja. Þinn einl. vinur TBjarnason.
Ólafsdal 4. jan. 1899.
Kæri vin! Bestu þakkir fyrir ný meðtekið bréf og upplýsingar
um færin. Ég fór eftir þinni umsögn um uppbótina. Það var
annars ljóta súpan, allar uppbæturnar að norðan í ár. Nú hafa
þeir myndað nýtt félag norðan til í Strandasýslu og Bæhreppingar
og Miðfirðingar prófa nú eitt af þrennu, — ganga í sérstakt félag,
slá sér saman við aðra Strandamenn, eða halla sér að Húnvetning-
um. Dalafélagið er því klofið, — ekki í herðar niður, heldur að
endilöngu.
Þú segir . . . að mögulegt mundi hafa verið að koma í veg fyrir
skiptinguna ef að ég hefði viljað. Eina ástæðan til skiptingarinnar
var skuldasúpa mín og hana gat ég ekki ausið upp í einum rykk.
En ég vona að þér hafí aldrei komið í hug að ég mundi hafa viljað
rétta út litla fingurinn — hvað þá meir — til þess að fá menn til að
vera lengur ófúsa eða óánægða í félagi með mér. Mér þykir
raunar vænt um að skiptingin er komin á. Ég vona að hún verði
öllum pörtum félagsins til góðs. Setji nýtt líf í þá alla, svo þeir geti
hver um sig lifað myndarlegu og sjálfstæðu lífi.
Að endingu óska ég þér og konu þinni alls hins besta á nýbyrj-
aða árinu og þakka ykkur fyrir svo margt gott og elskulegt á því
umliðna. Þinn einl. vin TBjarnason.
Þessi merkilegi fræðslupistill fær að fljóta með:
P.S. 13. nóv. Um votaþófiðerþað að segja, að vaðmálið er þvælt
48