Strandapósturinn - 01.06.1987, Blaðsíða 86
I. Barnshvarfið á Bassastöðum
Úr fréttabréfi úr Steingrímsfirði 23. okt. 1867.
„Það hörmungar tilfelli bar til hér á Bassastöðum við Stein-
grímsfjörð þann 11. sept. í sumar, að drengur á þriðja ári hvarf,
(fallegtbarn og efnilegt) er hjónin áttu. Hann hvarf svo hastarlega
að eigi leið nema tæpur hálfur tími frá því móðirin horfði á hann
úti, hjá bænum að kalla, með tveimur lítið eldri drengjum að leika
sér, og þar til hún fór að líta til drengjanna, þá var hann gjör-
samlega horfínn, en hinir drengirnir ekki svo gamlir að þeir gætu
sagt frá neinu, nema í rugli. Undir eins var farið að leita þar sem
mönnum gat dottið í hug að drengirnir hefðu getað farið, og
leitinni haldið áfram í 2 daga, af 10 mönnum fyrri daginn, en 18
seinni daginn. D(rengurinn hafði haldið á einum vettlingi, er hann
hafði ætlað að tína skeljar í.
Nokkrir halda að drengurinn hafi með einhverju móti farið í
sjóinn, en margt er á móti því. Drengurinn var greindur og hefur
aldrei farið í sjóinn með ásetningi, og þótt hann hefði dottið í
flæðarmálið, þá hefði hann verið þar, því kyrrt var, logn og
útgrynningar miklar en brimlaust. Það var líka tvívegis leitað með
landi fram, bæði með fjöru og flóði og allt árangurslaust, því
engar líkur fengust til þess, að drengurinn hefði horfið með þessu
eða öðru móti.“
II. Fundur barnsins
Úr fréttabréfi úr Steingrímsfirði 14. júlí 1868.
„Þær fréttir get ég skrifað yður, að þann 13. þ.m. í gær, fannst
líkami barnsins, sem hvarf á Bassastöðum í fyrrasumar, og fannst
uppi á hrauni með þeim atburðum, að bóndinn þar, faðir barns-
ins, smalaði um morguninn og rak heim kindurnar og taldi þær,
og taldist vanta, en hafði mistalið, aldrei þessu vant, því hann var
vel skynsamur maður og féð eigi margt, en nú vantaði ekkert. i
Hann gekk af stað að leita að því fé, sem honum taldist vanta, og
upp á fjall, og norður í hraun og beint — að líkama barnsins. Það
lítur út fyrir, að þá hafi stundin verið komin, sem líkaminn átti að
finnast, en hvernig barnið hefur komist þetta, gengur hreint yfir
84