Strandapósturinn - 01.06.1996, Page 143
við börnin böðuð upp úr stórum bala og þau yngstu látin fara upp
í rúm til að reyna að sofna, svo við gætum vakað urn kvöldið, en
það varð nú lítið um svefn því tilhlökkunin var svo mikil. Svo loks
kom stundin að við máttum fara að klæða okkur í jólafötin og
karlmennirnir komnir frá að ljúka útiverkunum. Þegar allir voru
búnir að baða sig og komnir í jólafötin þá var sest að jólaborðinu
og ilmandi jólasteikin með brúnuðu kartöflunum sem mamma
útbjó, var alltaf svo bragðgóð og vel fram borin, því móðir mín var
listakokkur. Þessari máltíð og frágangi var alltaf lokið fyrir kl. 6
því þá komu jólin. A slaginu kl. 6 settist pabbi við orgelið og við
sungum jólalögin og síðan las pabbi jólaguðspjallið, að endingu
sungum við Heims um ból. Allsstaðar voru ljós kynt og friður var í
bænum. Við vorum hljóð því okkur var uppálagt að vera stillt og
ekki vera með nein ærsl, ekki spila á spil eða annað. Við fengum
kertapakka og spil, sem var skipt á milli okkar. Jólagjafirnar voru
nýju fötin sem við fengum, kannski líka útsaumuð koddaver, allir
undu glaðir við sitt og kveldið leið í kyrrð og helgi. Svo var gengið
til hvílu. Ég mun aldrei gleyma hvað það var yndislegt að hátta
ofan í hlý og mjúk rúmin með þykkum fiðursængum undir og
dúnsængunum yfir og svo til að kóróna þetta allt saman þá var
alltaf látið loga ljós á jólanóttina, það var friður og helgi sem
fylgdu okkur inn í draumaheimana.
Á jóladagsmorgun vorum við vakin með súkkulaði og kökum
sem okkur börnunum var fært í rúmið. Ég man enn hvað fallega
var raðað á bakkann og á fulla diska af smákökum sem voru gerð
góð skil. Um hádegið voru allir mættir í sparifötunum og þá var
farið að spila „púkk“. Það var spilað upp á kaffibaunir og var
þetta mjög fjörugt spil.
Svo eftir miðdegisveislukaffi var kveikt á jólatrénu og dansað
og sungið í kringum það og svo var farið íjólaleiki ýmsa sem pabbi
kenndi okkur, en hann stjórnaði þeim af krafti og innlifun. Hann
t.d. kenndi okkur vefaraleik og alls konar hringdansa og alltaf var
sungið mikið með. Þegar leið að kveldi hurfu pabbi og mamma úr
gleðskapnum. Þau fóru að undirbúa kvöldmatinn. Við biðum
spennt eftir að kallað væri á okkur og loks rann upp stundin. Búið
var að skammta sauðahangikjötið á stóra diska. Á hverjum diski
141