Strandapósturinn - 01.06.1996, Síða 164
alúðlegur og oftast glaðsinna og húsfreyjan, Hrefna Magnúsdótt-
ir, hreinskiptin og góðviljuð. Bæði voru þau að vísu mun eldri en
þegar ég kynntist þeim fyrst heima í sveitinni, og það var ég að
sjálfsögðu líka, en samt bjuggu þau enn yfir þeim eðliskostum
sem einkenndu þau forðum og litu, að mér skildist, björtum
augurn á lífið og tilveruna. Hrefna var fædd á Sæbóli í Aðalvík,
dóttir Magnúsar Dósoþeusarsonar og Guðnýjar Sveinsdóttur.
Var hún ein sjö systra sem allar þóttu kvenkostir góðir, fríðar
sýnum, fjölhæfar til munns og handa og augnayndi ungra manna
á sinni tíð. Þær misstu föður sinn, flestar á ungum aldri og ólust
eftir það upp hjá móður sinni, sem þrátt fyrir lítil efni, en með
æðrulausri ró, kom öllum vel til rnanns.
Gummi Ben er látinn fyrir mörgum árum en lengi bjó ekkjan
eftir það í litla húsinu á Hlíðarvegi 30, og þótt árin færðust nú yfír
hana eins og okkur var hún þó fundvís á fagnaðarefnin er hún
ræddi við nágranna, kom léttstíg til dyra þegar barnabörnin eða
aðrir ástvinir birtust og brosti við þeim þessu hógværa brosi, sem
táknaði í senn, fögnuð, umhyggju og ást.
Ekki verður svo skilið við þessar minningar mínar af Gumma
Ben að ekki verði getið bræðra hans og systra, sem öll voru hið
mannvænlegasta fólk og settu svip á sveit sína um langt skeið.
Bræður hans voru: Benjamín, Guðmundur Halldór, Elías og
Ólafur, en systurnar Elísabet, Emilía og Helga. Að Gumma frá-
töldum kynntist ég Elíasi, eða Ella, eins og hann var jafnan kallað-
ur best af þeim bræðrum. Hann var giftur Elínu Arnadóttur úr
Skáladal, mikilli sómakonu, glaðværri og hjartahlýrri. Það var
aldrei nein lognmolla í kringum hana. Hún var svo sannarlega
hliðholl því broslega í tilverunni. Elli gat líka verið gamansamur
annað slagið og að jafnaði einstaklega orðheppinn, kom öðrum
oft í opna skjöldu og gerði jafnvel mælskustu menn orðlausa með
einni meinleysislegri athugasemd. Hann hafði að sögn ótrúlega
gott rninni, fór næstum orðrétt með heilu kaflana úr fréttum
útvarps og blaða. Það var eins og hann lærði efnið utan að um leið
og hann hlustaði eða las. Guðmundi Halldóri kynntist ég ekki
eins náið og þeim Ella og Gumma Ben. Hann bjó að vísu á
Hesteyri mestan hluta sinnar ævi og rak þar verslun auk þess sem
162