Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 16

Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 16
16 Íþróttir 15. janúar 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 15. janúar 2022 LAUGARDAGUR Parket Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14. Komdu við og ræddu við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570 Afríkukeppnin í fótbolta, AFCON, er komin á fulla ferð. Fá met voru sett í markaskorun í fyrstu umferð riðlakeppninnar en mesta athygli vöktu gæði miðjumannanna sem skemma sóknir andstæðinganna. Akkerin sem öllu bjarga. Þeir stóðu sig manna best. benediktboas@frettabladid.is Afrísku akkerin Wilfred Ndidi – Nígeríu Aðdáendur enska boltans vita hvað Ndidi gerir fyrir Leicester og hann er í svipuðu hlutverki hjá Nígeríu. Er aðeins 25 ára en hefur spilað eins og engill frá því hann kom frá Genk í Belgíu. Vinnur 62 prósent tæklinga sinna og tölfræðin hans talar sínu máli, bæði fyrir lið og land. Franck Kessie – Fílabeinsströndinni Magnaður miðjumaður sem er jafnvígur í vörn og sókn. Sópar upp skítinn en er samt mættur fram til að styðja við sóknarleikinn. Er þegar kominn með fimm mörk en í fyrra blómstraði hann í liði Milan og skoraði heil 13 mörk, sem er nokkuð vel gert fyrir afturliggjandi miðjumann. Thomas Partey – Gana Flestir eru sammála um að Partey var geggjaður með Atletico og púslið sem Arsenal vantaði. Hefur aðeins strögglað með hraðann á Englandi en enginn efast um gæði hans. Þau eru rosaleg. Það er alveg ástæða fyrir að Arsenal splæsti 45 milljónum punda sem gerir hann þann dýrasta frá Gana. Yves Bissouma – Malí Hreinsunarstarf Brighton fer flestallt í gegnum Bissouma. Það er ástæða fyrir að stórlið eru talin tilbúin að punga út hartnær 50 milljónum punda fyrir þjónustu hans. Hann er með svakalega tölfræði hvort sem um er að ræða að tækla eða stöðva sóknir, skalla boltann frá eða koma bolt- anum í spil. Idrissa Gueye – Senegal Þegar stórlið PSG þarf að kaupa varnar- sinnað- an miðju- mann leita þeir ekki í næstefstu hillu. Árið 2019 þurfti einhver að nenna að verjast í París og setti liðið 30 milljónir punda í Gueye. Þar hefur hann verið í hlutverkinu að sópa upp og koma boltanum á Neymar, Messi eða Mbappae. Ellyes Skhiri – Túnis Þótt Túnis hafi tapað fyrir Malí í opnunarleiknum var Shkiri alveg trylltur á miðjunni og tæklaði allt og alla. Hann var alveg svakalegur. Hann virtist vera tæklandi lang- hlaupari enda hljóp hann rúmlega 400 kílómetra á síðasta tímabili í Þýskalandi, það langmesta í deildinni. Naby Keita – Gíneu Hann er kannski meiri alhliða miðjumaður en sitjandi akkeri og þó að hann hafi ekki kveikt í ensku deildinni með frammistöðu sinni dylst engum hversu góður Keita er. Hann var út um allt í gær gegn Senegal og krækti sér í gult spjald með því að strauja samherja sinn hjá Liverpool, Sadio Mane.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.