Fréttablaðið - 15.01.2022, Side 22

Fréttablaðið - 15.01.2022, Side 22
maðurinn minn ræddum þetta fram og til baka. Ég ákvað að gera þetta og hætti við nokkrum sinn- um. Aðstæður voru mjög erfiðar og f lóknar ákvarðanir fram undan. Ég þurfti að spyrja mig hvort ég ætlaði mér inn í þetta,“ segir hún. „Ég var mjög ánægð í starfi og að vinna að málum sem brenna á mér. En mig langaði, ég er auðvitað fótboltamanneskja og hef lengi til- heyrt þessari frábæru hreyfingu sem mér þykir vænt um og langaði að hafa áhrif á hana til góðs. Ég er hugsjónamanneskja og baráttu- manneskja og langaði að vera partur af þeim breytingum sem voru óumflýjanlegar.“ Fráfall vinar vendipunktur Eftir langa umhugsun segist Vanda hafa upplifað vendipunkt þegar æskuvinur hennar og frændi, Þor- steinn Valsson, féll frá þann 8. sept- ember. „Ég var einfaldlega viss um að hann hefði stutt mig í þessari ákvörðun,“ segir Vanda og það er augljóst að það kemur við hana að tala um fráfall frænda síns. „Ég bara sá hann fyrir mér segja mér að láta slag standa. Ég hugsaði líka mikið til foreldra minna og tengda- foreldra, sem öll eru látin. Það er okkar mesta sorg í lífinu að hafa misst þau frá okkur allt of snemma en ég veit í hjarta mínu að þau hefðu stutt mig.“ Ársþingið er í lok febrúar næst- komandi og segist Vanda alltaf hafa verið ákveðin í að bjóða sig aftur fram þá. „En svo tók ég smá dýfu,“ segir Vanda og lýsir hvað helst hafi tekið á hana undanfarna mánuði í starfi. „ Star fsfólk KSÍ hef ur tek ið mjög vel á móti mér, eins fólkið í hreyfingunni og stjórnarfólk, það hefur allt saman gengið mjög vel og mér finnst vinnan skemmtileg þó að erfið mál hafi verið uppi á borði. Það sem hefur reynst mér erfiðast er fjölmiðlaumfjöllunin og það skrifast að einhverju leyti á reynsluleysi af minni hálfu.“ Eðlilegt að líða stundum illa Í nóvember síðastliðnum komst stjórn KSÍ að samkomulagi við aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins, Eið Smára Guðjohnsen, um starfs- lok hans. Vanda nefnir gagnrýni sem hún hafi fengið á sig fyrir að neita að ræða málið í fjölmiðlum strax í fyrstu. „Ég fékk að heyra að ég væri að valda vonbrigðum, væri óhæf og ekki rétti leiðtoginn, áður hafði verið sagt að ég gæti ekki tekið ákvarðanir. Það er erfitt að taka slíku ekki persónulega. Ég er ekki eina manneskjan sem hefur afþakk- að viðtöl. Að segja að ég væri ekki hæf út af þessu þykir mér ósann- gjarnt og ætti að mínu mati ekki að vera mælikvarði á mína hæfni.“ Vanda segir að þessi erfiði tími hafi fengið hana til að hugsa, ásamt því að hún hafi fengið ráð frá góðum konum. „Ef það eru einhverjir sem vilja losna við mig er einfaldast að ég bugist og fari sjálf frá. Mig langar ekki að fara neitt þrátt fyrir að hafa verið smá buguð um tíma og þurft að hugsa hvort ég ætlaði að útsetja sjálfa mig og mína fyrir þessu. Mér finnst eðlilegt að líða stundum illa, að þykja hlutir erfiðir og mér finnst ekkert að því að viðurkenna það. Ég þekki leiðtogafræðin, ég er auð- mjúk gagnvart verkefninu og ef ein- hverjum dettur í hug að ég sé verri leiðtogi fyrir vikið þá verður sá hinn sami að eiga það við sjálfan sig.“ Gagnrýnin hrinti þó að sögn Vöndu af stað ákveðnum stuðningi sem hún er þakklát fyrir. „Sumir bentu á að ég væri betri leiðtogi fyrir vikið og ég held að það sé rétt.“ Þakklát þolendum Hin erfiðu mál sem Knattspyrnu- sambandið hefur staðið frammi fyrir hafa flest snúist um kynferðis- brot eða áreitni og hefur fjölmiðla- umfjöllun farið hátt. Vanda segist ekki veigra sér við að taka á slíkum Vanda hugsaði sig vel um áður en hún bauð sig fram til for- mennsku hjá KSÍ og bæði ákvað að láta slag standa og hætti við margoft. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Vanda ásamt eiginmanni sínum og börnum þeirra þremur á Tenerife nú um jólin. Hún segir fríið hafa verið kærkomið eftir erilsama mánuði. MYND/AÐSEND Vanda ásamt vinkonu sinni og frænku Kristrúnu Lilju Daðadóttur, þegar þær léku saman með Breiðabliki, en með þeim eru mæður þeirra Dóra Þorsteins- dóttir og Bára Eiríksdóttir. MYND/AÐSEND Vanda tekur hér á móti viðurkenningu ásamt Sævari Jónssyni sem besti leik- maður Íslandsmóts 1. deildar félaga árið 1990. MYND/GUNNAR SVERRISSON málum en það þurfi að gera á réttan hátt. „Við í stjórninni eigum ekki að vera að vasast í þessu og það er partur af mistökunum sem voru gerð. Árið 2020 var settur á sam- skiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðs- starfs og nú er það svo að við leitum til hennar ef mál koma upp,“ segir Vanda um leið og hún þakkar fyrir þá aðstoð sem stjórnin hafi fengið. „Starfshópur innan ÍSÍ skilar svo áætlun í mars. Við viljum að íþrótta- hreyfingin sé með sömu reglur og aðgerðaáætlanir eins og unnt er.“ Vanda segir sitt hlutverk í þessum málum fyrst og fremst að koma þeim í réttan og faglegan farveg. „Ég er þakklát öllum þeim þol- endum sem hafa stigið fram. Við erum á leið í átt að betra samfélagi og fyrir það er ég þessum baráttu- konum þakklát – því þetta er ekki auðvelt. Það þarf líka mikið að gerast á dómstiginu og íþrótta- hreyfingin verður að standa við að ætla að bæta sig. Þolendur verða að geta leitað til okkar og fundist þeir öruggir. Við erum ekki komin alla leið en ég vona að við sem samfélag séum á góðri leið.“ Fram undan er meiri fræðsla og skýrt verklag. Við viljum ekki að þetta gerist aftur og þess vegna ætlum við að vera í forvörnum en líka með inngripsáætlanir ef eitt- hvað kemur upp.“ Tækifærin í krísunum Vanda hefur trú á því að í krísum felist jafnframt tækifæri. „Við þurfum að taka ábyrgð sem íþróttahreyfing. Ég held að þegar við lítum til baka þá verði þetta viðsnúningur. Að upplifunin verði að við snerum hér við og fórum að gera enn betur. Ég held og vona að þetta gildi ekki bara um íþrótta- hreyfinguna heldur um okkur sem samfélag.“ Vanda bendir á að hún hafi verið gagnrýnd fyrir að vera ekki með neina stefnu en segir það ekki rétt. „Stefna mín er þó kannski ólík því sem margir eru vanir, því hún er um samtal og samráð. Ég trúi að best sé að byrja á að greina stöðuna, afla upplýsinga, hafa fólk með í ráðum og taka svo ákvarðanir út frá því. Ég hef notað undanfarna mánuði til að hefja þessa vinnu og hef meðal annars haldið fundi með félögunum í landinu.“ Á döfinni er frekari vinna og hyggst Vanda til að mynda gefa börnum og ungmennum rödd og áhrif í hreyfingunni. „Þau eru lang- stærsti hópurinn en hafa lítil sem engin áhrif. Því vil ég breyta.“ n Það sem hefur reynst mér erfiðast er fjölmiðla- umfjöll- unin og það skrif- ast að einhverju leyti á reynslu- leysi af minni hálfu. Þolendur verða að geta leitað til okkar og fundist þeir öruggir. 22 Helgin 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.