Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 35

Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 35
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Við framleiðum ár hvert um 320.000 tonn af hreinu áli og álblöndum sem fara á erlenda markaði. Íslenski áliðnaðurinn er ein helsta útflutningsgrein landsins. Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun og fleira. Störfin henta öllum kynjum. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Sumarstarfsfólk í framleiðslu fer á námskeið vegna vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og í síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið. Menntunar- og hæfnikröfur: 18 ára lágmarksaldur Dugnaður og sjálfstæði Bílpróf er skilyrði Mikil öryggisvitund og árvekni Heiðarleiki og stundvísi Góð samskiptahæfni Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is Jafnlaunaúttekt PwC 2020 Spennandi sumarstörf Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.