Fréttablaðið - 15.01.2022, Side 39

Fréttablaðið - 15.01.2022, Side 39
www.ruv.is RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Sótt er um störfin á hagvangur.is Nánari upplýsingar veita Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar næstkomandi. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni, uppruna, fötlun eða skertri starfsgetu. Fréttastjóri og dagskrárstjóri Rásar 2 Fréttastjóri Leitað er að fréttastjóra til að leiða fréttastofu Ríkisútvarpsins og bera ábyrgð á fréttaflutningi í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum. Mikilvægt er að fréttastjóri hafi yfirgripsmikla reynslu af blaða- og fréttamennsku, góða samskipta- og samstarfsfærni og hæfni til að leiða árangursríka teymisvinnu. Fréttastjóri heyrir undir útvarpsstjóra og á sæti í framkvæmdastjórn. STARFSSVIÐ • Ábyrgð á almennum fréttaflutningi í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum sem og gerð og miðlun ítarlegra fréttaskýringa. • Ábyrgð á að móta og framfylgja ritstjórnarstefnu RÚV um fréttaflutning. • Ábyrgð á áætlanagerð, rekstri og stjórnun fréttastofu. • Þróun starfsemi fréttastofu og stjórnun mannauðs. HÆFNISKRÖFUR • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur. • Yfirgripsmikil reynsla af blaða- og fréttamennsku. • Leiðtogafærni og farsæl stjórnunarreynsla. • Mjög góð íslenskukunnátta og góð almenn tungumálakunnátta. • Góð skipulagsfærni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun. STARFSSVIÐ • Ábyrgð á ritstjórn og dagskrá Rásar 2. • Sinnir dagskrárgerð. • Ábyrgð á stefnumótun og innleiðingu stefnu fyrir Rás 2. • Ábyrgð á áætlanagerð, rekstri og daglegri stjórnun. • Þróun starfsemi Rásar 2 og stjórnun mannauðs. HÆFNISKRÖFUR • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur. • Reynsla og þekking á dagskrárgerð. • Þekking á starfsemi fjölmiðla, menningu og listum. • Leiðtogafærni og hæfni í að leiða árangursríka samvinnu. • Mjög góð íslenskukunnátta og góð almenn tungumálakunnátta. • Góð skipulagsfærni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun. Dagskrárstjóri Rásar 2 Leitað er að dagskrárstjóra til að leiða Rás 2 og bera ábyrgð ritstjórn og dagskrárgerð rásarinnar. Við leitum að stjórnanda sem hefur til að bera reynslu og þekkingu á dagskrárgerð og góða samskipta- og samstarfsfærni. Dagskrárstjóri Rásar 2 heyrir undir útvarps stjóra og á sæti í framkvæmda stjórn. Við leitum að öflugu, stefnumiðuðu og framsýnu fólki sem vill leiða mikilvægt starf á skapandi og líflegum vinnustað.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.