Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 46

Fréttablaðið - 15.01.2022, Page 46
faxafloahafnir.is Faxaflóahafnir sf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi til að bætast í hóp starfsmanna á viðskiptasviði • • • • • • • Menntunar og hæfniskröfur Menntun á framhalds- eða háskólastigi, sem nýtist í starfi. Góð bókhaldskunnátta. Helstu verkefni Umsjón með skráningu gagna í fjárhags- og skjalakerfi. Uppáskrift reikninga. Að senda og móttaka gögn í banka vegna innheimtu. Gerð fjárhagsgreininga og skýrslugerð. Umsjón með innkaupum rekstrarvara á skrifstofu. Viltu vera hluti af góðri liðsheild? Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á skrifstofu Faxaflóahafna að Tryggvagötu 17 í Reykjavík. Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu. Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Tryggvason sviðsstjóri viðskiptasviðs gunnart@faxafloahafnir.is Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en föstudaginn 21. janúar n.k. Sérfræðingur á viðskiptasviði Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 70 manns og er umráðasvæði hennar í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir. Sá einstaklingur sem við leitum að þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæður í starfi, hafa góða tölvukunnáttu og færni í helstu Microsoft forritum. Ef þú ert þessi einstaklingur þá viljum við heyra frá þér. Yfirþroskaþjálfi Spennandi og fjölbreytt starf við Vinnu og virkni Ás styrktarfélag óskar eftir yfirþroskaþjálfa í 100% starf í Ás vinnustofu, Ögurhvarfi 6. Um er að ræða vinnustað með vinnu- og virknitilboði fyrir fullorðið fólk með fötlun, vinnutíminn er á tíma- bilinu frá kl. 8.00-16.30 virka daga. Staðan er laus strax eða eftir nánari samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Ber ábyrgð á og skipuleggur faglegt starf á vinnusvæðum í samvinnu við forstöðumann • Kemur að starfsmannamálum í samvinnu við forstöðumann • Veita starfsmönnum faglega ráðgjöf og fræðslu • Umsjón og eftirfylgd með dagskipulagi • Situr í fagteymi vinnu og virkni • Vinnur eftir gæðaviðmiðum og lýsingum • Er staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans Hæfniskröfur: • B.A. próf í í þroskaþjálfafræðum og starfsréttindi til að starfa sem þroskaþjálfi eða háskólapróf sem nýtist í starfi • Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmynd- fræði • Tölvufærni í word, excel og power point ásamt góðrar íslensku- og enskukunnáttu • Þarf að geta unnið undir álagi og eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar • Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla í sambærilegu starfi • Góð samskipta- og samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð Nánari upplýsingar veitir Halldóra Þ. Jónsdóttir í síma 4140500 á virkum dögum. Atvinnumsókn ásamt ferilskrá sendist halla@styrktarfelag.is. Upplýsingar um félagið má finna heimasíðu þess www.styrktarfelag.is, Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2022. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags. Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landsamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Félagið er ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi. Slysavarnafélagið Landsbjörg leitar að einstak- lingi með menntun/reynslu til að vinna með markaðs- og fjáröflunardeild félagsins að markaðs- og fjáröflunarstarfi þess. Um 100% starf er að ræða. Helstu verkefni eru: • Taka þátt í mótun á markaðsstefnu félagsins • Þróun á nýjum og núverandi fjáröflunarleiðum • Utanumhald um stafrænar herferðir • Áætlunargerð fyrir stafræna miðla • Vinna með efni til birtingar á stafrænum miðlum • Önnur tilfallandi störf Hæfniskröfur: • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi • Góð reynsla og þekking á stafrænni markaðs- setningu • Reynsla af vinnslu á grafík og texta (content) • Þekking á Google Ads og Facebook Ads • Reynsla af fjáröflunarstörfum æskileg • Kunnátta á vefgreiningu og leitarvélabestun • Góð almenn tölvukunnátta • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð • Liðshugsun og þekking á félagsstörfum • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund • Hreint sakavottorð Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Stefánsson, skrifstofustjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í síma 570 5900 eða gunnar@landsbjorg.is Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á net- fangið starf@landsbjorg.is fyrir 18. janúar 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.