Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.01.2022, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 15.01.2022, Qupperneq 70
Þetta hús á í mér hverja taug. Ég er búin að vera hérna síðan ég var ungl- ingur Á meðan vindar blása um efri hæðir Hótel Sögu við Hagatorg hefur reksturinn í kjallaranum haldist óbreytt- ur síðan fyrsti gesturinn mætti á hótelið 1962. Sigrún Ægisdóttir hefur unnið á hárgreiðslustofunni Hársögu síðan hún mætti þangað fyrst 17 ára gömul árið 1978. Þetta hefur verið farsæl stofa alla tíð,“ segir Sig- r ú n Æg isdót t ir há r- greiðslumeistari, glaðleg í fasi. „Ég tek við stofunni á sínum tíma og byggi hana mikið upp. Ég er líka búin að vera með fullt af nemum og starfsfólki í gegnum tíðina,“ segir hún. Sigrúnu þykir vænt um staðinn, og það má greina mikinn kærleika og stolt þegar hún talar um starfs- fólkið sitt. „Það er alltaf brjálað að gera, allt á full swing. Ég er með frá- bært, alveg dásamlegt starfsfólk og er búin að vera mjög lánsöm í starfi.“ Rauðir dreglar og kóngafólk Félagsstofnun stúdenta og Ríkis- sjóður hafa keypt húsið sem stendur til að nota undir stúdentaíbúðir og starfsemi Háskóla Íslands. Hár- greiðslustofan verður þó áfram á sínum stað. „Þetta hús á í mér hverja taug,“ segir Sigrún. „Ég er búin að vera hérna síðan ég var unglingur. Upp- haflega þegar ég kom hérna inn voru dyraverðir í júníformi. Það voru oft rauðir dreglar og kóngar og drottn- ingar að koma og fara. Ég er búin að upplifa mikið með þessu húsi.“ Dásamlegt að fá líf í húsið Hún tekur fyrirhuguðum breyting- um í húsinu fagnandi. „Ég er jákvæð fyrir breytingum. Það er dásamlegt að fá líf inn í húsið. Það er rúmt ár síðan hótelinu sjálfu var lokað og við erum búin að vera starfandi allan tímann.“ Sigrún segist hafa auglýst sérstaklega á Facebook, að stofan væri svo sannarlega opin þrátt fyrir lokanir á annarri starf- semi hússins. „Ég varð að setja inn klausu af því að fólk var stöðugt að hringja inn og hélt að við værum með lokað.“ Hún er afslöppuð og bjartsýn varðandi framhaldið. „Ég er með leigusamning til 2026 og mér skilst að háskólinn ætli að hafa þessa þjónustu til staðar hérna áfram.“ Sigrún segist hafa talað við fulltrúa framkvæmdanna sem hafi tjáð henni að ýmis þjónusta verði í boði á svæðinu. „Ég hlakka svo til að fá líf inn í húsið.“ Drottningin vildi kaupa greiðuna Hótelið á efri hæðunum hefur í gegnum tíðina verið lifandi sam- félag og ljóst að starfsferill Sigrúnar er ríkulega samofinn hótelrekstr- inum og ekki síst hinni fjölbreyttu flóru gesta sem hafa dvalið í húsinu. „Ég man að við áttum hérna rosalega f lotta gullgreiðu. Grófa greiðu sem við notuðum í f lottar greiðslur. Hún gerði svo flotta áferð. Silvía Svíadrottning vildi endilega kaupa þessa greiðu en það var ekki fræðilegur möguleiki,“ segir Sigrún. „Sama hvað var boðið í þessa greiðu þá var hún ekki seld.“ Sagan á sér þó dökka hlið, því mögulega hefur glæpur verið fram- inn. „Greiðan er horfin. Það er ekki svo langt síðan hún hvarf en hún var notuð hérna í f leiri ár. Nú hugsum við: Hvað varð um gullgreiðuna?“ Fékk portrett-mynd af kúnna Hún minnist einnig stjórnmála- konu frá Bretlandi sem dvaldi á hótelinu í kringum 1980. „Hún kom og ég fór á sjöundu hæð að greiða henni.“ Þegar konan var farin aftur til Bretlands barst Sigrúnu mynd í pósti. Var þá um að ræða flennistóra portrett-mynd af konunni. „Hvar á Ríkuleg saga auk ráðgátu um gullgreiðuna Sigrún Ægisdóttir hárgreiðslumeistari hefur starfað á Hársögu í 44 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Reksturinn í kjallara Hótel Sögu hefur haldist óhreyfður síðan fyrsti gestur- inn mætti á hótelið 1962. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fyrirsætur á fyrstu hársýningu Sig- rúnar, í Súlnasal Hótel Sögu 1979. MYND/AÐSEND Hárgreiðsla eftir Sigrúnu frá 1981, fyrirsætan með fléttur og gull- teygjur. MYND/AÐSEND Greiðslur eftir Sigrúnu árið 1981. Stórt skart var mikið í tísku á þeim tíma. MYND/AÐSEND Glæsilegar greiðslur frá árinu 1983. MYND/AÐSEND Nína Richter ninarichter @frettabladid.is ég að hafa þessa mynd? Ég var ekk- ert búin að kynna mér þessa konu, eða neitt!“ segir Sigrún og hlær. Hún ítrekar að margar frægar konur hafi setið í stólnum hjá henni. „Ég gerðist sérleg vinkona Evu Jolie, ég var alltaf að sjá um hárið á henni. Hún var góð vinkona mín og pant- aði mig alltaf þegar hún kom til landsins,“ segir Sigrún. „Það er svo margt sögulegt.“ Reykt í hverjum einasta stól „Þegar ég byrjaði að vinna hérna 1978, þá voru allar konur í hár- þurrkum með rúllur. Það var reykt í hverjum einasta stól og setið í hæg- indastól með fæturna uppi. Stofan var troðfull.“ Hún segir að það sem hafi staðið upp úr á 44 árum í starfi sé fjöl- breytnin. „Það er svo mikil breyt- ing og maður er búinn að kynnast svo mörgum og eiga svo mikið af yndislegum kúnnum. Ég er ennþá með kúnna sem hafa fylgt mér frá upphafi. Heilu kynslóðirnar. Og líka ömmubörnin,“ segir Sigrún. „Ég er ein af fáum í mínum bransa sem eru alltaf algjörlega á sama blettinum. Flestir hafa fært sig til.“ Meistarinn flutti út á land Meistari Sigrúnar var Jóhanna Hauksdóttir hárgreiðslumeistari. „Ég byrjaði að læra hjá henni. Svo hætti hún og sagði bara: Þú tekur við stofunni.“ Sigrún var aðeins tvítug þegar meistari hennar f lutti út á land og fól henni þetta stóra verkefni. Stofan batt þó Sigrúnu ekki fasta við húsið heldur ferðaðist hún mikið í tengslum við sýningar og keppnir í háriðn. „Ég var mjög aktíf og var byrjuð að taka þátt í sýningum ári eftir að ég byrjaði að læra,“ segir hún. „Það varð síðan meira um sýn- ingar eftir það. Ég var svo heppin að vera með hárgreiðslustofuna á neðri hæðinni og geta farið upp í Súlnasal þegar það voru sýningar og keppn- ir.“ Hún segir að sumir hafi tjáð sér að þetta hafi verið „meant to be“ að hún tæki við stofunni. „Ég er búin að vera mjög farsæl, öll þessi ár.“ n 30 Helgin 15. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.