Fréttablaðið - 15.01.2022, Qupperneq 77
Okkar yndislega móðir,
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
áður Galtarlæk í Hvalfjarðarsveit,
lést 12. janúar sl. í faðmi ástvina.
Sigríður S. Sæmundsdóttir Valgeir Sigurðsson
Halldóra Sæmundsdóttir Ragnar Viktor Karlsson
Guðrún Sæmundsdóttir
Helgi Sæmundsson
Guðrún Jónsdóttir
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Árni Geir Friðgeirsson
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
varð bráðkvaddur
mánudaginn 3. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
miðvikudaginn 19. janúar kl. 13.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Lilja Árnadóttir Pétur Sæmundsen
Sæbjörg Erla Árnadóttir Sturla Arnarsson
Guðmundur Páll Árnason Elma Sól Long
Anna Kristín Árnadóttir Loki Húnfjörð Jósepsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Haraldur Haraldsson
lést þann 4. janúar sl.
á hjúkrunarheimilinu Grund.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Margrét Sif Haraldsdóttir
Haraldur Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eggert Jón Jónsson
Gullsmára 8, 201 Kópavogi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
5. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 18. janúar klukkan 13.00.
Streymi verður frá athöfninni á linknum streyma.is.
Laufey Guðbjartsdóttir
Kristín Ágústsdóttir Brad Egan
Magnús Einarsson Denise Einarsson
Magnús G. Eggertsson K. Sunna Reynisdóttir
Guðrún S. Eggertsdóttir
Ómar I. Eggertsson Íris E. Thompson
Helga Ó. Eggertsdóttir Pétur Þ. Hafþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og kær vinkona,
Jóhanna Þorbergsdóttir
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 12. janúar.
Útför verður auglýst síðar.
Jón Óli Gíslason
Níels Ólason Hrafnhildur Pálsdóttir
Óli Jóhann Níelsson Guðrún Pálína Jónsdóttir
Hafdís Svava Níelsdóttir Gunnar J. Gunnarsson
Barbara Ármannsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Hoffmann Jónsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni
þann 3. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Rafn Hoffmann Margrét Gunnlaugsdóttir
Arnar Hoffmann Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku maðurinn minn,
faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Pétur S. Víglundsson
lést á Droplaugarstöðum 13. janúar
síðastliðinn. Sérstakar þakkir eru
færðar starfsfólki Droplaugarstaða fyrir
umönnun og hlýju.
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir
Guðmundur S. Pétursson Elísabet Guðmundsdóttir
Margrét B. Pétursdóttir Björgvin M. Guðmundsson
Víglundur Rúnar Pétursson Hafdís Edda Stefánsdóttir
Sólborg Alda Pétursdóttir Hallgrímur H. Gunnarsson
Ragnar Pétur Pétursson Elma Karen Sigþórsdóttir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson Helga A. Haraldsdóttir
Sigurður Á. Sigurbjörnsson Auðbjörg Jakobsdóttir
Guðríður Sigurbjörnsdóttir Ómar Árnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
Þorgerðar Maríu Gísladóttur
íþróttakennara.
Starfsfólki Báruhrauns þökkum við
hlýlega umönnun. Einstakar þakkir fær
Fimleikafélagið Björk fyrir alla vinsemd og virðingu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Jónsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Björns Steindórs
Haraldssonar
löggilts endurskoðanda,
frá Húsavík.
Margrét Auður Pálsdóttir
Haraldur Orri Björnsson Sigríður Ósk Benediktsdóttir
Helga Bryndís Björnsdóttir Henrý Örn Magnússon
Björn Steindór, Benedikt Arnar, Steinþór Örn, María Birta,
Hafsteinn Björn og Sylvía Lind
Innilegar þakkir fyrir samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Kjartans Helgasonar
garðyrkjubónda,
Hvammi, Hrunamannahreppi.
Björg Björnsdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elsku mannsins míns, pabba okkar,
tengdapabba og afa,
Jóhanns Gunnars
Jóhannessonar
Herjólfsgötu 38.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki taugalækninga-
deildar Landspítala (B2) fyrir hlýhug og einstaka umönnun.
Sóley Sveinsdóttir
Jóhannes R. Jóhannsson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir
Sveinn Líndal Jóhannsson Þórhildur Rún Guðjónsdóttir
Alda Hrönn Jóhannsdóttir Gestur K. Pálmason
Bára Hildur Jóhannsdóttir Arnar Ægisson
og barnabörn.
Okkar yndislega móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
Guðný Kristjánsdóttir
prentsmiður,
Austurhlíð 10, Reykjavík,
sem andaðist aðfangadagsmorgun,
24. desember, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
21. janúar klukkan 13.00.
Streymt verður frá athöfninni á:
https://youtu.be/ycg3nurfFsk
Lilja D. Alfreðsdóttir Magnús Ó. Hafsteinsson
Linda R. Alfreðsdóttir Guðný G. Gunnars-Lindudóttir
Eysteinn A. Magnússon Signý St. Magnúsdóttir
Páll Kristjánsson Kristjana Kristjánsdóttir
Bjarni Kristjánsson Gunnar Kristjánsson
Anna K. Kristjánsdóttir
Fyrsta Ofurskálin (e. Super Bowl),
stærsti leikur í amerískum fótbolta
ár hvert, fór fram þann 15. janúar árið
1967 í Los Angeles, Kaliforníu. Þar
léku meistarar stærstu deildanna í
amerískum fótbolta í Bandaríkjunum,
AFL (American Football League) og
NFL (National Football League), sem
höfðu eldað grátt silfur frá því að sú
fyrrnefnda var stofnuð árið 1959.
Hugmyndin um að láta meistara
deildanna tveggja etja kappi hafði
verið uppi um þó nokkurn tíma, en
framkvæmdastjóri AFL hafði fyrst
viðrað hana árið 1961. Liðin sem
kepptu sín á milli í fyrstu ofurskálinni
voru Green Bay Packers, meistarar
NFL, og Kansas City Chiefs, meistarar
AFL. Töluvert var í húfi, þar sem báðar
deildir vildu sýna yfirburði hvor yfir
annarri, sem hæsta stig amerísks fót-
bolta á heimsvísu.
Þótt leikurinn hafi í byrjun verið
frekar jafn tóku Green Bay Packers
fljótlega forystuna og sigruðu með
yfirburðum, 35-10. Bart Starr bak-
vörður Green Bay Packers, sem átti
tvö snertimörk, var útnefndur maður
leiksins. Þetta var í eina skipti sem
ofurskálinni var sjónvarpað í Banda-
ríkjunum af tveimur sjónvarpsstöðv-
um, en NBC átti réttindi á AFL-leikjum
en CBS á leikjum NFL.
Næstu þrjár Ofurskálarnar voru spil-
aðar milli deildanna tveggja áður en
þær runnu saman undir merki NFL árið
1970 sem hefur haldið velli síðan þá.
Ofurskálin er stærsti íþróttaviðburður
Bandaríkjanna ár hvert og er áætlað að
um 96 milljónir hafi horft á leik Kansas
City Chiefs og Tampa Bay Buccaneers
árið 2021. ■
Þetta gerðist 15. janúar 1967
Fyrsta Ofurskálin fer fram
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 15. janúar 2022 Tímamót 37