Fréttablaðið - 15.01.2022, Side 82
Bílarnir byggja á Out-
lander og Eclipse Cross.
njall@frettabladid.is
Búið er að endurvekja De Tomaso
ofurbílamerkið sem fór í gjaldþrot
árið 2004. Stendur til að smíða P72-
bílinn í nýrri verksmiðju í nágrenni
Nurburg r ing í samst ar f i v ið
mótor sportfyrirtækið Capricorn
Group. Er verið að gera nauðsyn-
legar breytingar á verksmiðjunni á
meðan verið er að gera lokaprófan-
ir á bílnum, en áætlað er að fyrstu
bílarnir verið afhentir árið 2023.
P72 er með vélina fyrir miðju
eins og sannur ofurbíll, en hann var
frumsýndur á Goodwood-hátíð-
inni árið 2019. Útlit hans byggir
á ofurbílum sjöunda áratugarins
en vélin er V8 vél frá Ford sem
skilar 700 hestöflum. Grindin er úr
koltrefjum og bíllinn er léttur og
skemmtilegur. Að sögn Ryan Berris,
forstjóra De Tomaso, er þegar farið
að hanna næsta bíl merkisins. n
De Tomaso á leið í framleiðslu
De Tomaso P72 var frumsýndur á Goodwood árið 2019. MYND/SKJÁSKOT
njall@frettabladid.is
Skoda mun frumsýna nýjan Enyaq
Coupe í lok mánaðarins og af því til-
efni hefur Skoda látið frá sér teikni-
mynd af gripnum. Hann verður með
bogalaga þaklínu og lægri afturenda
og fær þar af leiðandi 10-15 km
meira drægi.
Á myndinni má sjá að framend-
inn kemur beint frá hinum hefð-
bundna Enyaq, nema að svuntan er
ákveðnari en á Sportline-útgáfunni.
Felgurnar á myndinni koma einn-
ig frá Sportline-útgáfunni þó óvíst
sé að þær verði á endanlegri útgáfu.
Aðalbreytingin er á hönnun frá A-
bita og aftur eins og sjá má, en með
lægri afturenda minnkar farang-
ursrými niður í 570 lítra eða um 15
lítra. Bíllinn verður á sama MEB-
undirvagni og með sömu rafmót-
orum og aðrar útgáfur Enyaq. Sama
má segja um útbúnað í innréttingu,
en þar verður allt að mestu leyti við
það sama.
Búast má við að bíllinn verði
aðeins dýrari en núverandi útgáfur
en honum er ætlað að keppa beint
við Tesla Model Y og VW ID.5. n
Teiknimynd af Skoda Enyaq Coupe iV
Teikningin af bílnum sýnir nokkuð endanlega útgáfu nýs Skoda Enyaq Coupe
með bogalaga þaklínu og lægri afturenda. MYND/SKODA
njall@frettabladid.is
Mitsubishi frumsýndi fyrir bíla-
sýninguna í Tókýó þrjár nýja Ralli-
art útgáfur bíla sinna.
Tveir þeirra eru útfærslur Out-
lander og Eclipse Cross, en einn
þeirra er hugmyndabíll. Sá bíll
kallast Vision Ralliart Concept og
byggir líka á Outlander-bílnum.
Hann er kominn með nýtt grill og
loftdreifi, ásamt 22 tommu felgum.
Hann hefur líka fengið öf lugri
bremsur í formi stærri diska og
sex stimpla dælur. Það eru því von-
brigði að uppfærslur á vél virðast
ekki fylgja uppfærslum á bremsu-
kerfi.
MMC frumsýnir nýja Ralliart-bíla
Tilraunabíll-
inn, ef svo má
kalla, er með
talsverðum út-
litsbreytingum
en minna um
slíkt undir niðri.
MYND/MMC
njall@frettabladid.is
Ein stærsta bílasýning veraldar er
Detroit-bílasýningin en hún mun
snúa aftur 14. september næst-
komandi. Henni hefur verið frestað
tvisvar sinnum vegna heimsfarald-
ursins á síðustu tveimur árum.
Sýningin mun fara fram 14.-25.
september í Huntington-ráð-
stefnuhöllinni. Árið 2018 heim-
sóttu 800.000 manns sýninguna
og skilaði hún 500 milljónum dala
í tekjur fyrir borgina. n
Detroit-sýningin fer fram í haust
Rafbílar eru mál málanna
hjá framleiðendum og hjá
sumum þeirra hafa eldri
módel fengið endurhönnun
sem rafbílar eins og Renault
Megane, sem kemur nú í E-
Tech útgáfu.
njall@frettabladid.is
Ný og breytt kynslóð Renault Meg-
ane er væntanleg til BL í júní og
eru forpantanir þegar hafnar. Ekki
aðeins hefur Megane verið endur-
hannaður frá grunni að utan sem
innan heldur kemur Megane í fyrsta
sinn í rafmagnaðri útfærslu sem ber
heitið Megane E-Tech. Bíllinn hefur
þegar verið kynntur á sýningum
víða á meginlandinu og sló strax í
gegn hjá Top Gear í Bretlandi sem
útnefndi hann fjölskyldubíl ársins
2022, þar sem sérstaklega var tekið
til góðs rýmis, kraftmikillar akst-
ursupplifunar, sportlegrar útlits-
hönnunar og fallegrar innréttingar.
Renault Megane E-Tech verður
boðinn með vali um 40 kWst eða
60 kWst rafhlöðu við 160 kW raf-
mótor sem gefur annars vegar 130
hestöfl og allt að 300 drægi og hins
vegar 220 hestöfl og allt að 470 km
drægi. Bíllinn tekur allt að 130kW
hraðhleðslu í dýrustu útgáfu bílsins.
Megane E-Tech verður boðinn í
þremur búnaðarútfærslum, Equi-
libre, Techno og Ioniq og kostar
grunnútgáan með 40 kWst rafhlöð-
unni 4.990.000 kr. Megane E-Tech
með 60 kWst raf hlöðunni kostar
5.690.000 kr., en Iconic útgáfan
kostar 6.490.000 kr. Bílnum verður
reynsluekið í næsta mánuði svo
búast má við frekari umfjöllun um
hann hér á síðum blaðsins í vor. n
Renault Megane E-Tech
kemur til landsins í júní
Nýr Renault Megane E-Tech mun helst keppa við VW ID.3 og Citroen C4 þegar hann kemur á markað. MYND/RENAULT
Sýningunni hefur verið frestað tvisvar síðan 2019. MYND/NAIAS
Ralliart-merkið á sér langa sögu
í mótorsportinu. Tommi Makinen
vann fjóra heimsmeistaratitla á
Lancer Evolution og Pajero-jeppar
Mitsubishi réðu lögum og lofum í
Dakarrallinu kringum aldamótin. n
Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar
Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.
Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að
því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið
í arf.
Styrkfjárhæðin nemur fjórum milljónum króna og verður henni úthlutað
í maí 2022. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri
umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2022. Sótt er um styrkinn í gegnum
heimasíðu bankans: www.sedlabanki.is/menningarstyrkur.
Nánari upplýsingar: Sigrún María Einarsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra.
auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals
S E Ð L A B A N K I Í S L A N D S
Kalkofnsvegi 1 · 101 Reykjavík · 569 9600 · seðlabanki@sedlabanki . is
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 15. janúar 2022 LAUGARDAGUR