Morgunblaðið - 16.12.2021, Side 6

Morgunblaðið - 16.12.2021, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is N1 hefur hætt innflutningi á for- blandaðri dísilolíu með lífolíu af til- tekinni gerð frá Noregi og er að huga að öðrum íblöndunarefnum. Vandamál hafa orðið með vélar dís- ilbíla vegna óhreininda sem rakin eru til íblöndunarefnisins og hafa einhverjir eigendur dísilbíla orðið fyrir verulegu tjóni. Vegna regluverks frá Evrópusam- bandinu sem innleitt var hér á landi á sínum tíma þarf að blanda bensín og dísilolíu með endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er gert með etanóli í bensín og lífolíu í dísilolíu. 6-7 milljóna króna tjón Vandræði hafa verið með óhrein- indi sem safnast hafa upp í olíusíum dísilbíla, einkanlega frá því í haust. Hefur það valdið óþægindum og aukakostnaði hjá eigendum, ekki síst atvinnubíla, og í sumum tilvikum verulegu tjóni. Nefna má sem dæmi að einstak- lingur þarf að fara með bílinn í dýra viðgerð vegna óhreininda í olíusíu. Þetta er sportjeppi af Volvo-gerð. Er málið komið til kasta Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda og er verið að setja það í ferli gagnvart olíufé- laginu. Það gerir málið einfaldara að eigandinn tekur alltaf olíu á sömu bensínstöðinni. Ferðaþjónustu- og flutningafyrir- tæki hafa lent í verulegum vandræð- um en einnig eigendur dísiljeppa. Jón Kristinn Jónsson, framkvæmda- stjóri Amazing Tours, segir að á þriggja vikna tímabili í haust hafi vélar þriggja Ford-bifreiða stöðvast vegna þess að þær stífluðust og það hafi leitt til þess að spíssarnir við vél- ina hafi eyðilagst. Bílarnir þurftu að fara sex sinnum á verkstæði á þess- um tíma. Segir hann að Ford-vélarn- ar virðist vera sérstaklega viðkvæm- ar fyrir þessu en þó hafi borið á vandræðum með einn af allmörgum Mercedes Benz-bílum sem fyrir- tækið rekur. Jón Kristinn áætlar að beint tjón vegna viðgerða og vara- hluta sé 6-7 milljónir. Hann segir að vandræðin hafi verið rakin til tiltek- innar bensínstöðvar og segir að fyrirtækið sé í viðræðum við olíufé- lag um skaðabætur. Hann tekur þó fram að vandamálið sé ekki bundið við eina stöð eða eitt olíufélag, önnur dæmi sýni það. N1 skoðar aðra lausn Öll olíufélögin kaupa sömu for- blönduðu dísilolíuna frá Equinor í Noregi. Fjölver annast gæðaeftirlit fyrir olíufélögin. Nokkrar óhreinar olíusíur hafa verið skoðaðar á rann- sóknarstofu fyrirtækisins. Glúmur Jón Björnsson framkvæmdastjóri segir að í óhreinindunum sé efnið „steryl glucoside“ sem finnst meðal annars í jurtaolíu. Það vandamál er einnig þekkt í Evrópu að olíusíur endast skemur vegna notkunar jurtaolíu. Þess vegna hafa menn beint sjónum að íblönduninni. Rannsökuð eru sýni úr öllum olíu- förmum sem koma til landsins og hefur þetta efni ekki fundist í þeim. Það hefur heldur ekki fundist í sýn- um úr tönkum sem tekin hafa verið af þessu tilefni. Glúmur Jón segir hugsanlegt að þótt efnið sé undir greiningarmörkum í eldsneytinu sé ekki hægt að útiloka að það safnist upp við ákveðnar aðstæður, til dæm- is í kulda. Hinrik Örn Bjarnason, fram- kvæmdastjóri N1, segir að fyrir- tækið hafi vegna ábendinga frá við- skiptavinum ákveðið að hætta að flytja inn umrædda forblönduðu dís- ilolíu sem kölluð er B7 á fagmáli. „Við höfum flutt inn B7 aðeins til að uppfylla skilyrði í reglugerð Um- hverfisstofnunar og ESB um gæði eldsneytis sem kveður á um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 6% á ári,“ segir Hinrik. Hann segir að verið sé að skoða aðra lausn sem fullnægi kröfum stjórnvalda um 6% blöndun lífdísil- olíu og standist veðurskilyrði hér á landi. Hætta að flytja inn blandaða dísilolíu - Eigendur dísilbíla hafa lent í vandræðum og kostnaði vegna óhreininda sem safnast upp í olíusíum bílanna og eyðileggja spíssa - Talið líklegast að jurtaolía sem notuð er til íblöndunar sé skaðvaldurinn Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Ræktun Repjuolía er notuð til íblöndunar í dísilolíu. Hér á landi eru gerðar tilraunir til ræktunar í þeim tilgangi en í litlum mæli hingað til. Fjárfestirinn Ardian France SA, sem hyggst kaupa Mílu ehf., er sem slíkur ekki talinn fela í sér ógn við ör- yggi landsins. Þetta er niðurstaða starfshóps fjögurra ráðuneyta sem ríkisstjórnin fól að afla upplýsinga um viðskiptin. Það var gert til að meta hvort þau fælu m.a. í sér ógn við öryggi landsins. Samningur milli vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, og Mílu ehf. um kvaðir vegna þjóðhagslega mikil- vægra fjarskiptaneta Mílu í sam- ræmi við áherslur stjórnvalda hefur verið undirritaður. Ríkisstjórnin samþykkti samninginn 14. desem- ber. Í honum eru atriði er varða við- skiptahagsmuni Mílu og verður hann því ekki gerður opinber, að sögn mennta- og menningarmálaráðu- neytisins, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins og atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins. Stjórnvöldum gefst tími til að lög- festa almenn ákvæði er varða þær kvaðir sem Míla undirgengst í samn- ingnum á gildistíma hans. Samið um kvaðir vegna neta Mílu - Kaupandi ógnar ekki öryggi landsins Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég uppgötvaði þaraböðin þegar ég bjó úti á Álftanesi fyrir rúmum ára- tug og þessi hug- mynd hefur ekki látið mig í friði síðan,“ segir Bogi Jónsson athafna- maður. Félag á hans vegum fékk á dögunum út- hlutaðar fimm milljónir króna úr Uppbyggingar- sjóði Suðurnesja til uppbyggingar glæsilegrar heilsulindar við sjávar- síðuna í Garði. Verkefnið ber heitið Mermaid – Geothermal Seaweed Spa og hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár. Áætlaður kostnaður við uppbygg- inguna er 1,3 milljarðar króna og segir Bogi að líkja megi stærð Mermaid við Kraumu í Borgarfirði eða Fontana á Laugarvatni. „Við stígum mjög varlega til jarðar og all- ar áætlanir gera ráð fyrir að þó að það kæmi annar heimsfaraldur þá myndi reksturinn ganga á inn- lendum ferðamönnum,“ segir hann en gert er ráð fyrir að hjá Mermaid muni starfa um 45 manns auk þess sem starfsemin muni leiða af sér fjölda annarra starfa og styðja við fjölbreytta starfsemi á svæðinu. Bogi er mörgum kunnur af veit- ingarekstri frá fyrri tíð. Hann hefur síðustu ár verið búsettur á Garð- skaga og sér mikil tækifæri þar. Á Mermaid er stefnan að bjóða upp á sérhæfðar heilsu- og vellíðunar- meðferðir á borð við þaraböð, jurta- gufuböð, hefðbundin gufuböð, nudd, hvíldarsvæði, heita potta og laugar. Þar verður einnig rekinn róman- tískur sjávarréttaveitingastaður undir asískum áhrifum. „Þaraböðin verða okkar sérstaða en þau hafa mjög slakandi og góð áhrif á líkamann, maður verður allur silkimjúkur eftir þau. Þaraböðin hafa líka verið notuð sem lækninga- meðferð í gegnum tíðina, til dæmis fyrir fólk með exem og þurra húð,“ segir Bogi. Hann segir jafnframt að mikið hafi verið lagt í hönnun mannvirk- isins sem verður alls 1.200 fermetrar auk úti- og laugasvæðis. „Það verður mikil upplifun út af fyrir sig,“ segir Bogi en öll hönnun og umgjörð Mermaid mun byggjast á strand- menningu svæðisins og kallast á við stórbrotið umhverfið á Garðskaga þar sem sögufrægir vitar standa við ströndina og leifar strandaðra skipa bera mikilli örlagasögu vitni og minna á óblíð öfl náttúrunnar, að sögn frumkvöðulsins. Viðræður við fjárfesta Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ hafa skrifað undir viljayfirlýsingu við fyrirtækið um að ráðast í skipu- lagsvinnu og í framhaldi hennar út- hlutun lóðar undir starfsemina. Fram undan er vinna við tæknilega útfærslu þarabaða og jurta- gufubaða. Þá eru viðræður við mögulega fjárfesta að hefjast. „Við erum nýlega byrjuð að þreifa á þeim og okkur hefur verið vel tekið. Þetta er búið að vera barnið manns í ansi langan tíma svo maður er að leita að rétta fjárfestinum, einhverjum með farsæla reynslu og tengingu í ferða- þjónustuna.“ Mermaid Heilsulind Boga verður um 1.200 fermetrar auk úti- og laugasvæðis. Veitingastaður verður í næsta húsi. Bogi vill byggja upp þaraböð við Garðskaga - Ný og glæsileg heilsulind gæti kostað 1,3 milljarða króna Bogi Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.