Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 73
ÍÞRÓTTIR 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Lengsta keppnistímabili ís- lensks fótboltaliðs lýkur í kvöld þegar Breiðablik mætir stjörnum prýddu liði París SG í frönsku höfuðborginni. Blikakonur hófu Íslands- mótið 4. maí og hafa því verið að í sjö og hálfan mánuð. Frá 13. febrúar og samtals í tíu mánuði ef miðað er við fyrsta mótsleik ársins. Þátttaka í keppni eins og Meistaradeildinni þar sem leikið er gegn stórveldum eins og PSG og Real Madrid hefur verið mikið ævintýri fyrir Kópavogsliðið. Því miður hefur þeim græn- klæddu ekki tekist að skora mark í fimm leikjum í keppninni og líkurnar á að það takist gegn besta liði riðilsins sem er með markatöluna 19:0 í fimm leikjum eru ekki sérlega miklar. Það hefði verið gaman að sjá Blikaliðið sem vann meistaratitl- inn 2020 fara í Meistaradeildina 2021 með leikmenn eins og Sveindísi Jane, Karólínu Leu og Alexöndru, sem allar fóru í at- vinnumennsku, og reynslubolt- ann Rakel Hönnudóttur innan- borðs. Þá værum við ekki enn að bíða eftir marki í sjöttu og síð- ustu umferðinni. En af þessu hlýst gríðarleg reynsla sem kemur liði og leik- mönnum til góða á næstu árum. Ísland er svo hátt skrifað í evrópskum kvennafótbolta að landið fær tvö lið í Meistaradeild- inni og Breiðablik og Valur verða því aftur í keppninni að ári. Sæti í riðlakeppninni er áfram raunhæft markmið fyrir bæði lið og jafnframt spennandi gulrót fyrir önnur íslensk félög sem reyna að velta þeim „tveimur stóru“ úr sessi. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Subway-deild kvenna Breiðablik – Keflavík ........................... 91:68 Grindavík – Fjölnir............................. 96:111 Valur – Haukar .................................. (44:53) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Staðan fyrir leik Vals og Hauka: Njarðvík 11 9 2 750:680 18 Fjölnir 11 8 3 909:837 16 Valur 9 6 3 700:643 12 Haukar 7 4 3 474:452 8 Keflavík 10 4 6 795:781 8 Grindavík 12 3 9 877:1000 6 Breiðablik 10 1 9 696:808 2 Skallagrímur hætti keppni. Evrópubikar FIBA J-RIÐILL: Crailsheim – Antwerp Giants ............ 91:86 - Elvar Már Friðriksson skoraði 22 stig fyrir Antwerp, átti níu stoðsendingar og tók fimm fráköst. _ Reggiana 2/0, Kiev 1/1, Crailsheim Merl- ins 1/1, Antwerp Giants 0/2. Danmörk Amager – Falcon ................................. 61:62 - Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 13 stig fyrir Falcon, tók fimm fráköst og átti tvær stoðsendingar á 33 mínútum. _ Falcon 14, Amager 10, Sisu 6, Herlev 4, Aabyhöj 2. NBA-deildin Brooklyn – Toronto .................. (frl) 131:129 New York – Golden State .................. 96:105 Portland – Phoenix........................... 107:111 _ Efst í Austurdeild: Brooklyn 28/8, Chi- cago 17/10, Milwaukee 18/11, Cleveland 17/ 12, Miami 16/12, Philadelphia 15/13, Wash- ington 15/13, Charlotte 15/14. _ Efst í Vesturdeild: Golden State 23/5, Phoenix 22/5, Utah 19/7, Memphis 17/11, LA Clippers 16/12, LA Lakers 15/13, Dall- as 14/13, Denver 14/13, Minnesota 12/15. 4"5'*2)0-# Amanda Andradóttir, landsliðs- konan unga í knattspyrnu, er geng- in í raðir sænska félagsins Kristi- anstad, þar sem hún mun leika undir stjórn Elísabetar Gunnars- dóttur. Amanda fékk samningi sín- um rift við norska félagið Våle- renga eftir eitt tímabil með því en þangað kom hún frá Nordsjælland í Danmörku. Hefur hún nú skrifað undir tveggja ára samning við Kristianstad. Amanda verður 18 ára á laugardaginn kemur en hún lék þrjá fyrstu A-landsleiki sína í haust. Amanda komin til Elísabetar Morgunblaðið/Eggert Svíþjóð Amanda Andradóttir er komin til Kristianstad. Bjarni Ólafur Eiríksson, einn af reyndustu knattspyrnumönnum landsins, hefur lagt skóna á hilluna. Bjarni, sem er 39 ára gamall, á að baki 22 ár í meistaraflokki en hann lék með Val frá 2000 til 2019 og er leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild frá upphafi með 244 leiki. Hann varð Íslandsmeistari með Val 2007, 2017 og 2018 og bik- armeistari 2005, 2015 og 2016. Bjarni lék um skeið með Silkeborg í Danmörku og Stabæk í Noregi og lauk ferlinum hjá ÍBV undanfarin tvö tímabil. Hann lék 21 landsleik. Hættur eftir 22 ár í fremstu röð Morgunblaðið/Eggert Hættur Bjarni Ólafur Eiríksson lék fyrst með Valsmönnum árið 2000. lítið hakkaður í dag en þetta var því- lík upplifun. Þetta var geggjað og gott að koma félaginu aftur þangað sem hann á heima. Þetta félag á ekki heima í næstefstu deild, það er nokkuð ljóst.“ Reglan um útivallarmörk var enn í gildi þar sem ný regla UEFA um afnám útivallarmarka hafði ekki tek- ið gildi þegar tímabilið í Svíþjóð byrjaði í apríl. Því hefði 2:1-sigur nægt Helsingborg en Böðvar sagði að Halmstad hefði komist nálægt því að jafna metin þegar leikar stóðu þannig. „Það voru útivallarmörk ennþá og við vorum enn í mjög góðum séns þó við hefðum tapað fyrri leiknum 0:1. Halmstad fékk dauðafæri í stöðunni 2:1 í seinni leiknum þannig að það var ekki eins og þetta væri alveg komið þá, en svo gera þeir mistök undir lokin og við skorum og þá var þetta komið.“ Alltaf í byrjunarliði Böðvar lék 27 af 30 leikjum Hels- ingborg í B-deildinni á tímabilinu auk leikjanna tveggja í umspilinu, hvern einasta þeirra í byrjunarliði. Hann kvaðst ánægður með eigin frammistöðu á tímabilinu. „Já, ég er mjög sáttur. Ég var að koma frá Pól- landi þar sem ég var mikið meiddur síðasta eitt og hálft ár. Með hjálp sjúkraþjálfaranna hérna, einn þeirra er að vinna með sænska landsliðinu, náði ég að komast í geggjað stand, sem var akkúrat það sem ég þurfti á að halda. Ég missti af þremur leikjum, í öll- um þeirra var ég í banni. Ég missti því ekki af neinum leik vegna meiðsla en svo í síðasta leiknum fór nárinn gjörsamlega eftir að við feng- um bara tvo daga á milli leikja. Það er samt ekkert sem ég græt enda fórum við upp.“ Opinn fyrir því að vera áfram Böðvar gekk til liðs við Helsing- borg í mars á þessu ári og samdi út þetta tímabil eftir erfiða dvöl hjá pólska liðinu Jagiellonia Bialystok sem markaðist af miklum meiðslum. Þegar blaðamaður innti hann eftir framhaldinu var Böðvar einmitt á leið til fundar með forsvarsmönnum Helsingborg og sagði að hann myndi vita það betur hver staðan væri að honum loknum. „Það var meðvituð ákvörðun hjá mér þegar ég kom hingað að ég ætl- aði ekki að skrifa undir tveggja til þriggja ára samning einhvers staðar eftir Póllandsdvöl mína. Þá langaði mig frekar að gera eins árs samning og taka svo stöðuna eftir það, sjá hvar ég kann vel við mig og hvað ég vildi gera. Vonandi kemur eitthvað jákvætt út úr þessum fundi á eftir, við sjáum til,“ sagði Böðvar. Aðspurður hvort hann myndi sjálfur vilja vera áfram hjá Hels- ingborg sagði Böðvar: „Já, ég myndi 100 prósent skoða það.“ Þá sagðist hann einnig reikna með því að Hels- ingborg myndi vilja halda honum í sínum röðum. „Ég spilaði alla leiki og við komumst upp þannig að ég á frekar von á því að eitthvað jákvætt gerist á fundinum á eftir,“ sagði Böðvar að lokum í samtali við Morgunblaðið. Aldrei verið jafn stressaður - Böðvar Böðvarsson var í lykilhlutverki hjá Helsingborg sem komst aftur upp í úrvalsdeildina eftir æsispennandi umspil - Vonast til að leika áfram með liðinu Ljósmynd/Helsingborg Helsingborg Böðvar Böðvarsson, fyrir miðju, fagnar úrvalsdeildarsætinu með tveimur liðsfélögum sínum. SVÍÞJÓÐ Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Sænska knattspyrnufélagið Hels- ingborg tryggði sér sæti í úrvals- deildinni þar í landi eftir árs fjarveru á ævintýralegan hátt þegar liðið bar sigurorð af Halmstad í síðari leik lið- anna í umspili um laust sæti í deild- inni á þriðjudagskvöld. Eftir að hafa tapað fyrri leiknum á heimavelli 0:1 vann Helsingborg frækinn 3:1- útisigur í síðari leiknum og 3:2-sigur samanlagt, þar sem tvö marka liðs- ins í þeim síðari komu undir lok leiks. Hafnfirðingurinn Böðvar Böðvarsson festi sig vel í sessi í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Hels- ingborg og var einn lykilmanna þess í B-deildinni á tímabilinu. „Tilfinningin er frábær. Við náð- um að koma okkur í umspilið á mjög dramatískan hátt þar sem við vorum 0:2 undir og náðum að jafna undir lokin í lokaumferðinni. Svo í um- spilinu töpuðum við náttúrlega fyrri leiknum en náðum síðan að klára þetta í gær [í fyrrakvöld]. Mark- miðið var auðvitað að fara beint upp en við náðum því nú ekki alveg. Tímabilið var svolítið upp og niður hvað úrslitin varðar en að ná að klára þetta svona var bara ennþá betra,“ sagði Böðvar í samtali við Morgunblaðið. Hann var farinn af velli vegna meiðsla þegar Helsingborg skoraði annað og þriðja mark sitt undir lok síðari leiksins. „Ég var alveg hakk- aður í náranum eftir fyrri leikinn gegn Halmstad og náði að koma mér í ágætis stand fyrir síðari leikinn með hjálp sjúkraþjálfara, verkjalyfj- um og öðru. Svo eftir 65 mínútur fann ég að ég gat ekki tekið sprett lengur, ég fékk einhvern smell í nár- ann og bað um skiptingu,“ útskýrði Böðvar og sagðist hafa átt í erfið- leikum með að fylgjast með restinni af leiknum af bekknum. Gjörsamlega að fríka út „Ég hef aldrei verið jafn stress- aður og að vera á bekknum að horfa á þetta, ég var gjörsamlega að fríka út. Þegar við skoruðum annað mark- ið þá tók ég sprettinn yfir til stuðn- ingsmannanna og þá fékk ég bara ennþá meira í nárann. Því er ég svo- „Þessi leikur gegn París SG leggst mjög vel í okkur og við erum spennt,“ sagði Ásmundur Arn- arsson, þjálfari Breiðabliks, á fjar- fundi með blaðamönnum gær en Breiðablik mætir París SG í lokaleik sínum í B-riðli Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í París í dag. Blikar eru án stiga í neðsta sæti riðilsins en liðið bíður ennþá eftir sínu fyrsta marki í keppninni í ár. „Þetta er lokaleikur riðlakeppn- innar og að sjálfsögðu viljum við standa okkur vel. Þetta hefur verið mikil og góð reynsla fyrir leikmenn liðsins þótt úrslitin hafi kannski ekki verið okkur hagstæð. Það eru allir leikmenn liðsins heilir heilsu og klárir í slaginn. Þetta verður erfiður leikur en við erum staðráðnar í því að skora mark gegn þeim,“ sagði Ás- mundur. Tímabilinu á Íslandi lauk 1. októ- ber og hafa einu keppnisleikir Blika því komið í Meistaradeildinni síð- ustu mánuði. „Þessi riðlakeppni hefur verið mikil áskorun fyrir alla sem að þessu koma. Leikmenn hafa þurft að halda sér á tánum á milli tarna en miðað við allt er standið á hópnum skrambi gott og við myndum hvergi annars staðar vilja vera.“ Morgunblaðið/Unnur Karen Sókn Agla María Albertsdóttir sæk- ir að marki PSG á Kópavogsvelli. Riðlakeppnin mikil áskorun fyrir alla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.