Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 40
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Það er fagnaðarefni að íslenska líf-
eyriskerfið hafi hlotið hæstu ein-
kunn í alþjóðlegu MERCER-vísitöl-
unni. Þetta eru þau sammála um
Sigríður Lillý Baldursdóttir, for-
stjóri Tryggingastofnunar ríkisins,
og Ólafur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs,
sem er fjórði stærsti sjóður sinnar
tegundar á Íslandi. Þau eru gestir
viðskiptahluta Dagmála þennan
morguninn en þáttinn geta áskrif-
endur blaðsins nálgast í streymi á
mbl.is.
MERCER-vísitölunni er ætlað að
mæla gæði lífeyriskerfa út frá
þremur meginstefjum; nægjanleika,
gæðum og trausti. Í ár var íslenska
kerfið í fyrsta sinn undir smásjá
vísitölunnar og segir Sigríður Lillý
að það hafi komið skemmtilega á
óvart hvar á listanum Ísland rað-
aðist. Ekki hefði komið neinum á
óvart þótt Hollendingar hefðu
vermt efsta sætið, enda lífeyriskerf-
ið þar í landi talið í allra fremstu
röð.
Vísitalan veitir leiðsögn
Ólafur nefnir að vísitalan þjóni
ekki aðeins sem staðfesting á því að
hér hefði verið fetuð heilladrjúg slóð
í uppbyggingu lífeyriskerfis heldur
gæfi hún einnig vísbendingar um
hvar kerfið, og sjóðirnir eftir atvik-
um, gæti bætt sig. Athygli hafi vak-
ið að í einum matsþætti skoraði ís-
lenska kerfið 0 stig af 10
mögulegum.
„Við sendum ekki sjóðfélögum
sem eru að byrja að greiða í sjóða-
söfnunina sérstakt yfirlit og bjóðum
þá velkomna og kynnum fyrir þeim
sjóðinn og hvernig kerfið virkar,“
útskýrir Ólafur. Bendir hann á að
sjóðirnir sendi flestir yfirlit á sex
mánaða fresti til sjóðfélaga en
þarna sé ábending um hvernig gera
megi enn betur.
Sigríður Lillý bendir einnig á það
í viðtalinu að bæta megi samspil al-
mannatrygginga og skyldutrygg-
ingarinnar. Varasamt sé að gera af-
markaðar breytingar á kerfunum án
þess að skoða hvaða áhrif þær hafa
á stöðu skjólstæðinga kerfanna.
Þannig séu til dæmi um að tilraunir
til að bæta framfærslu fólks hafi í
raun veikt afkomu þess. Þetta megi
forðast með meiri rannsóknum og
uppbyggingu eins konar líkans þar
sem prófa megi einstaka breytingar
og áhrif þeirra á kerfið. Bendir Sig-
ríður á að Tryggingastofnun hafi
ekki lagaheimildir til þess að sinna
slíku rannsóknar- og greiningar-
starfi. Það sé ólíkt því sem uppi er
annars staðar á Norðurlöndum.
Ólafur tekur undir þetta sjónar-
mið Sigríðar og telur mikilvægt að
innan kerfisins sé einhver aðili sem
hafi yfirsýn yfir allar stoðir þess,
allt frá skyldutryggingunni, sér-
eigninni og til almannatrygging-
anna. Það þurfi í raun eins konar
„kerfisstjóra“ á vettvang.
Séreign og fullur ellilífeyrir
Dæmi um óvæntar vendingar á
vettvangi þessa kerfis segir Sigríð-
ur að sé samspil söfnunar fólks í
séreignarlífeyri. Á sínum tíma hafi
verið tekin ákvörðun um að taka
séreignar út úr sjóðunum yrði ekki
til tekjutengingar við lífeyri al-
mannatrygginga. Nú séu komnir
fram sjóðir sem geri fólki kleift að
taka einvörðungu út séreignar-
lífeyri, áður en gengið er á sameign.
Dæmi séu um að fólk geri það allt
til 82 ára aldurs og þiggi því á sama
tíma fullar almannatryggingar,
jafnvel þótt greiðslur úr séreign
nemi hundruðum þúsunda króna á
sama tíma.
Bendir hún á að kerfið hafi ekki
verið hugsað með þessum hætti
upphaflega. Samfélagið þurfi að
taka afstöðu til þess með hvaða
hætti fjármunum ríkisins til mála-
flokksins sé varið og hverjir njóti
stuðnings kerfisins.
Segja að margt megi bæta
í besta lífeyriskerfi í heimi
Lífeyrismál Ólafur Sigurðsson og Sigríður Lillý Baldursdóttir í upptökuveri.
Góður félagsskapur
» Ísland trónir efst á lista MER-
CER með 84,2 stig
» Holland kemur fast á hæla Ís-
lands með 83,2 stig
» Danmörk er með 82 stig og
Ísrael í fjórða sæti með 77,1 stig.
» Í öllum kerfunum er meðallíf-
eyrir kvenna lægri en karla.
» Sigríður og Ólafur segja að
taka verði á þeim vanda hér á
landi.
- Endurskoða megi samspil séreignarlífeyris og réttar til almannatrygginga
40 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Vefuppboð nr. 581
Uppboði lýkur
20. desember
Forsýning verka alla helgina
hjá Fold uppboðshúsi
JÓLAVEFUPPBOÐ
úrval góðra verka á uppbod.is
Jóhannes S. Kjarval
Gunnlaugur Blöndal
16. desember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.34
Sterlingspund 172.71
Kanadadalur 101.73
Dönsk króna 19.822
Norsk króna 14.384
Sænsk króna 14.337
Svissn. franki 141.68
Japanskt jen 1.1475
SDR 182.27
Evra 147.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.3576
« Íslendingar straujuðu greiðslukort
sín fyrir 99,7 milljarða króna í nóv-
ember síðastliðnum og jafngildir það
22,2% hækkun frá sama tímabili í
fyrra. Sé litið til meðalveltu á dag
nam hún 3,3 milljörðum og jókst um
4,8% frá október síðastliðnum.
Velta debetkorta nam 43,9 millj-
örðum og kreditkora 55,8 millj-
örðum. Í verslunum nam kortaveltan
80 milljörðum króna. Jafngildir það
hækkun um 1,2 milljarða frá síðasta
mánuði. Velta innlendra greiðslu-
korta í verslunum erlendis nam hins
vegar 17,5 milljörðum og jókst um
503 milljónir milli mánaða og var
átta milljörðum meiri en í sama
mánuði í fyrra. Heildarvelta erlendra
greiðslukorta innanlands nam 10,8
milljörðum, sem jafngildir 4,6 millj-
örðum lægri veltu en í októbermán-
uði. Hins vegar er það 9,2 millj-
örðum hærri velta en var í nóvember
í fyrra.
Greiðslukortin voru
rauðglóandi í nóvember
Morgunblaðið/Hari
STUTT
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Origo hefur að undanförnu tekið yfir
verkefni sem heyrðu undir Optima
eftir að fyrirtækið fór í þrot.
Jón Björnsson, forstjóri Origo, seg-
ir verkefnin nýtil-
komin enda hafi
Optima orðið
gjaldþrota í byrj-
un mánaðar.
„Þetta gerðist
þannig að til okk-
ar leituðu fyrir-
tæki sem þurfa
þjónustu. Stuttu
síðar heyrðum við
í skiptastjóra því
við erum að hluta í
þeim viðskiptum sem Optima var í og
viljum þjónusta hluta af þeirra við-
skiptavinum. Það fer eðlilega eftir því
hvaða þjónustu var verið að veita.
Hvort það var viðgerðaþjónusta eða
ný þjónusta. Það er misjafnt hvað
þarf að gera og hafa þarf aðgang að
varahlutum o.s.frv.,“ segir Jón.
Starfsmenn Optima þjónustuðu
meðal annars ljósritunarvélar hjá
fjölda fyrirtækja. Þá þjónustuðu þeir
m.a. fyrirtæki í prentþjónustu.
Síðarnefndi geirinn hefur, að sögn
Jóns, enga skörun við Origo.
Nokkur hundruð vélar
Jón segir málið meðal annars varða
hundruð ljósritunarvéla sem voru í
þjónustu Optima. Ekki sé óalgengt að
fyrirtæki hafi fleiri en eina í notkun.
Umfangið sé því töluvert en bregð-
ast hafi þurft skjótt við aðstæðum.
Spurður hvaða áhrif tilfærsla verk-
efna frá Optima muni hafa á veltu
Origo segir Jón það ekki liggja fyrir.
Af öðrum verkefnum Optima má
nefna rekstur mynttalningarvéla.
Optima var stofnað árið 1953 og var
fyrst fyrirtækja á Íslandi til að flytja
inn og selja ljósritunarvélar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgartún Höfuðstöðvar Origo.
Taka yfir fyrri
verkefni Optima
- Forstjóri Origo
segir umfangið
vera töluvert
Jón
Björnsson