Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 70
70 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 40 ÁRA Einar er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholti en býr í Goðheimum. Einar er með B.Ed.-gráðu í kennslu- fræðum frá HÍ og er aðstoðarskóla- stjóri Hjallastefnunnar í Reykjavík. Áhugamál Einars eru fjölskyldan, íþróttir, hreyfing og andleg málefni. „Ég er ÍR-ingur og fylgist með körfu- boltanum, en ég var lengi í stjórn körfuboltadeildar ÍR,“ en Einar hlaut silfurmerki ÍR fyrir nokkrum árum. FJÖLSKYLDA Eiginkona Einars er Unnur Gísladóttir, f. 1983, framhalds- skólakennari í Borgarholtsskóla. Börn þeirra eru Karen Emmý, f. 2010, og Magni Berg, f. 2016. Systir Einars er Soffía Arna Ómarsdóttir, f. 1985, hjúkrunarfræðingur. Foreldrar þeirra eru Ómar Einarsson, f. 1954, sviðs- stjóri hjá Reykjavíkurborg, og Guðný Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 1953, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík. Einar Ómarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það er margt sem maður þarf að vita til þess að komast þangað sem maður ætlar sér. Það er fyrir öllu að vera sjálfum sér samkvæmur. 20. apríl - 20. maí + Naut Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér ganga allt í haginn jafnt á vinnustað sem heima fyrir. Láttu ekkert slá þig út af laginu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Verkefni dagsins ganga ein- staklega vel. Mundu að ást er að taka þarfir einhvers annars fram fyrir sínar eigin og þá gengur allt að óskum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Skilaboð sem þér berast kunna að reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir þeim. Hvað þarftu að gera til að auðga líf þitt enn frekar? 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Oft var þörf en nú er nauðsyn á að þú gerir eitthvað fyrir sjálfan þig til að lyfta þér upp andlega sem líkamlega. Smávegis dek- ur læknar vorkunnarkast. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Hafðu ekki of miklar áhyggjur af öðru fólki því þú þarft að hafa tíma fyrir sjálfan þig. Gættu þess að fara ekki yfir strikið í eyðsluseminni í dag. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er stutt í einhvern stóratburð sem þú þarft að vera reiðubúinn fyrir hvað sem það kostar. Brettu því upp ermarnar og láttu til þín taka. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þér finnst eins og allir hafi skoðanir á því sem þú ert að gera án þess að þeim komi það nokkuð við. Þú átt að láta tilfinningar þínar í ljós, en ekki byrgja þær inni. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það segir þér oft meira sem fólk segir ekki heldur en það sem það segir. Sigrar eru á næsta leiti svo þú skalt ekki gefa þig í afstöðu þinni til málefna. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Komið er að því að horfast í augu við nokkur úrlausnarefni. Þú hefur lagt hart að þér og ættir því að uppskera laun erfiðis þíns fyrr eða síðar. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ættir að fara þér hægar á vissum sviðum lífsins, en þó ekki öllum í einu. Hlýddu eðlisávísun þinni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Reyndu að sjá það góða í ástvinum þínum fremur en það slæma. Njóttu kvöldsins í faðmi fjölskyldu og vina. Íris stundaði íþróttir með Ung- mennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga á sínum úr minni. Mikið sem það gaf af þakklæti að starfa þar við þær að- stæður sem þá voru uppi.“ Í ris Björg Guðbjartsdóttir fæddist 16. desember 1971 í Reykjavík og ólst þar upp til 1977. Hún flutti þá í Dali vestur með for- eldrum sínum og tveimur bræðr- um. Þau bjuggu á Sveinsstöðum, sem síðar fékk nafnið Kvennahóll, í Klofningshreppi og sá hreppur var síðar sameinaður Fellsstrand- arhreppi. Íris sótti grunnskóla og heima- vist á Laugum í Sælingsdal alla grunnskólatíð sína. „Þá tók við slitrótt framhaldsskólaganga, fyrst á Laugarvatni haustið 1988, en ég fór svo í Fjölbraut á Akranesi í tækniteiknun. Ég flutti mig svo enn um skóla og fór í Fjölbraut í Ármúla á bókhaldsbraut en hætti svo námi.“ Íris sótti síðan kvöld- skóla í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og lauk þaðan sjúkra- liðaprófi vorið 2001. Árið 2007 lauk hún námi í svæða- og viðbragðs- fræði frá Heilsusetri Þórgunnu Þórarinsdóttur og árið 2009 nám- inu Máttur kvenna I frá Bifröst. Vorið 2015 lauk hún svo stúdents- prófi frá Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra og sama haust fór hún í HÍ og stundaði þar BEd- nám í þrjár annir. Haustið 2019 bætti hún við sig meiraprófi til farþegaflutninga allt að sextán farþega. „Ég hef einnig tekið ým- iss konar námskeið s.s. skapandi skrif, nuddnámskeið, sauma- námskeið og söngnámskeið svo fátt sé nefnt. Ég hef afar gaman af að prófa alls konar hluti og kynn- ast ýmsum hliðum lífsins.“ Á starfsævinni hefur Íris unnið við ýmis afgreiðslustörf, sem sjúkraliði, verið gjaldkeri bæði í banka og á pósthúsi og leiðbein- andi í grunnskóla. Íris bjó í Reykjavík 1992-2004, Borgarnesi 2004-2007, Búðardal 2007- 2013 og frá 2013 hefur hún verið bóndi á Klúku í Miðdal á Ströndum. Þar er stundaður sauðfjárbúskapur með 340 fjár. Hún hefur verið skólabílstjóri meðfram því frá árinu 2019. „Í mars 2020 fór ég sem bakvörður til Bolungarvíkur og mun sú reynsla seint líða mér yngri árum, bæði í frjálsum, sundi og fótbolta. Hún er núna formaður ungmennafélagsins Geislans á Ströndum. Vorið 2019 fékk Íris hvatningarverðlaun Héraðssam- bands Strandamanna fyrir að stuðla að hreyfingu og bættum heilsufarslegum lífsstíl. „Síðustu ár hef ég verið að hlaupa, stundað gönguskíði, nasað af sjósundi og verið iðin við göngur og hef eink- um farið nokkuð um Horn- strandir.“ Íris hefur verið þátttak- andi í uppfærslum leikrita, annars vegar í leikfélagi Dalamanna og svo á Ströndum. Hún hefur sungið í kórum og verið virk í kirkjukór bæði á Ströndum og í Dölum. Hún er núna í kirkjukórnum á Hólma- vík. „Ég stundaði tónlistarnám á grunnskólaárum mínum á Laug- um, lærði á blokkflautu, þverflautu og orgel. Árið 1994 fékk ég lán- aðan gítar og keypti mér kennslu- bók með kassettu og lærði, eða kenndi mér sjálf eins og stundum er sagt. Ég tók þátt í ýmiss konar söngkeppnum og bar stundum sig- ur úr býtum. T.d. vann ég söngva- keppni sem fram fór á útihátíð á Eiðum upp úr 1990 með Stjórninni og söng lagið „Nóttin“. Ég tók þátt í söngkeppni framhaldsskóla fyrir FÁ 1991 að mig minnir og ýmsum karókíkeppnum í Ölveri og söng dúett með Ragga Bjarna á Víkingahátíð sem fram fór á Eiríksstöðum í Haukadal í Dölum sumarið 2006 svo dæmi sé tekið. Ég hef fiktað við að semja og 2010 tók ég upp 10 laga disk, „Mjúkar hendur“, og gaf út. Þá sendum við eldri bróðir minn tvisvar inn jólalag í jólalagakeppni Rásar tvö og komumst í 10 laga úrslit í annað skiptið, 2011 ef ég man rétt, með lagið „Afa í skóinn“. Diskurinn og bæði jólalögin eru nú aðgengileg á Spotify. Eins og hefur komið fram hér að ofan hefur Íris fjölbreytt áhugamál, en auk þess hefur hún mikinn áhuga á handavinnu hvers konar og finnst mjög gaman að ferðast. „Svo hef ég almennt áhuga á fólki, hversu ólík við erum Íris Björg Guðbjartsdóttir, skólabílstjóri og bóndi – 50 ára Fjölskyldan Íris, Unnsteinn, börn, tengdabörn og barnabörn í febrúar sl. Manneskjan er svo áhugaverð Við Kirkjufellsfoss Íris og Unnsteinn ásamt Kristvini Guðna á ferðalagi um Snæfellsnes. Hlauparinn Íris að loknu hálfmaraþoni 2019. Til hamingju með daginn Vestmannaeyjar Hafþór Jökull Þorgeirsson fæddist 11. janúar 2021 kl. 18.38 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann vó 4.258 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Alma Lísa Hafþórsdóttir og Þorgeir Elmar Erlends- son. Bræður hans eru Jón Ingi og Aron Liljar. Nýr borgari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.