Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Ómíkron-afbrigði kórónuveir-
unnar er að líkindum 23%
vægara en Delta-afbrigðið og bólu-
efni veita góða vörn gegn því.
- - -
Það eru nið-
urstöður fyrstu
stóru rannsókn-
arinnar á hinu nýja
afbrigði, sem tók til
78.000 Ómíkronsmita í Suður-
Afríku.
- - -
Miðað við fyrsta afbrigði veir-
unnar, sem greindist í Wuhan
í Kína, leiðir Ómíkron til 29% færri
sjúkrahúsinnlagna, en 23% færri en
Delta.
- - -
Miklu færri þurfa að fara á gjör-
gæslu vegna veikinda af
völdum Ómíkron eða 5%, en það
átti við um 22% Delta-innlagna.
Þrátt fyrir að talsvert sé um að
bólusettir smitist af Ómíkron eru
einkennin almennt mun vægari.
- - -
Eins smitast börn frekar af Ómí-
kron en fullorðnir, en ein-
kennin eru yfirleitt væg og svipuð
kvefi.
Rannsóknin leiddi í ljós að bólu-
efni Pfizer, sem veitt hefur 80%
vörn gegn kórónuveirusmiti, veitir
aðeins 33% vörn gegn smiti
Ómíkronafbrigðisins.
- - -
Hins vegar eru einkenni bólu-
settra yfirleitt mun vægari,
svo bóluefnið veitir 70% vörn gegn
sjúkrahúsinnlögn og þær yfirleitt
stuttar.
- - -
Enginn lést af völdum Ómíkron
meðan rannsóknin stóð yfir.“
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu og aðr-
ar svipaðar skal í æðibunugangi
þvinga í gegn bólusetningu á börn-
um með vísun til Ómíkron. Er ekki
allt í lagi?
Bólusetjum við
næst gegn kvefi?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrirhugað er að selja varðskipin
Ægi og Tý, sem ekki eru lengur í
notkun á vegum Landhelgisgæsl-
unnar. Áður en tekin verður ákvörð-
un um næstu skref í söluferlinu hafa
Ríkiskaup óskað eftir hugmyndum
um nýtingu skipanna og líklegt sölu-
verðmæti. Boðið verður upp á skoð-
unarferð í næstu viku.
Varðskipið Ægir var smíðað í Ála-
borg 1968 og er 70,1 metri að lengd,
og 10 metrar á breidd. Týr var smíð-
aður í Árósum 1975 og er 71,5 metr-
ar að lengd og 10 metrar á breidd. Í
byrjun þessa árs gáfu fjögur fyrir-
tæki sig fram þegar Ríkiskaup ósk-
uðu eftir tilboðum og góðum hug-
myndum um nýtingu Ægis. Meðal
hugmynda var að nýta skipið fyrir
snjóflóðasafn á Flateyri.
Bilanir og bráðaviðgerð
Í frumvarpi til fjáraukalaga er
gerð tillaga um 59,3 milljóna króna
fjárveitingu vegna bilunar og bráða-
viðgerðar á varðskipinu Tý. Þór var
gerður út í stað Týs meðan á viðgerð
stóð. Útgjöld fólust annars vegar í
hærri rekstrarkostnaði við Þór en
skipið er stærra en Týr og olíueyðsla
meiri. Hins vegar fólust útgjöld í við-
gerð og slipptöku.
Morgunblaðið/Eggert
Öldungar Varðskipið Týr var kallað til aðstoðar eftir hamfarir á Seyðisfirði
síðasta vetur. Týr er 46 ára og Ægir 53 ára, bæði smíðuð í Danmörku.
Selja Ægi og Tý
- Ríkiskaup óska eftir hugmyndum
um nýtingu varðskipanna og verð
Undirbúningur fyrir byggingu nýrrar kirkju í
Grímsey er vel á veg kominn. Vinna við hönnun
hennar stendur yfir. Á dögunum skrifaði sókn-
arnefnd Miðgarðakirkju undir samning við smíða-
verkstæðið Loftkastalann um smíði nýrrar kirkju.
Þá hefur Hjörleifur Stefánsson arkitekt verið ráð-
inn byggingarstjóri og Arna Björg Bjarnadóttir,
verkefnisstjóri „Glæðum Grímsey“, verið fengin
til að hafa yfirumsjón með verkefninu. Allir þessir
aðilar eiga það sameiginlegt að hafa komið að
minjavörsluverkefnum og endurgerð gamalla
húsa með einum eða öðrum hætti.
Nýja kirkjan mun hafa augljósa skírskotun til
þeirrar eldri en verður aðeins stærri vegna nú-
tímakrafna. Einnig er horft til þess að nýja kirkj-
an nýtist til fleiri athafna en helgihalds. Áætlað er
að smíða hana að hluta til í landi en reisa hana síð-
an í Grímsey í sumar.
Þegar hafa safnast fjármunir til byggingar
hinnar nýju kirkju, sem Grímseyingar eru þakk-
látir fyrir. Áfram verður safnað og hægt er að
leggja verkefninu lið inn á reikning Miðgarða-
kirkju, 565-04-250731, kt. 460269-2539.
Samið um smíði kirkju í Grímsey
- Áfram verður safnað
fyrir nýrri kirkju í eynni
Ljósmynd/Halla Ingólfsdóttir
Grímsey Aðstandendur verkefnisins við Mið-
garðakirkjugarð, þegar ritað var undir samning.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jól Misjafnar eru aðferðirnar við að skreyta fyrir jólin. Íbúi á Vesturgötu hefur gripið til þessarar túlkunar á jesúbarninu í formi BabyBorn-dúkku.