Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sílamáfur merktur á Íslandi fannst í
Marokkó á síðasta ári og hafði hann þá
ferðast um 3.555 kílómetra. Fregnir
voru í fyrra af 36 litmerktum íslensk-
um sílamáfum erlendis og eyddu þeir
flestir vetrinum á hefðbundnum slóð-
um á Íberíuskaga.
Óvenjufáar langferðir voru meðal
endurheimta ársins, að því er fram
kemur í samantekt Guðmundar A.
Guðmundssonar og Svenju N.V. Au-
hage hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
um fuglamerkingar 2020 og endur-
heimt merktra fugla. Þar kemur fram
að rauðbrystingur hafði flogið 3.225
kílómetra þegar hann endurheimtist í
Portúgal og tildra hafði lagt 2.682 kíló-
metra að baki þegar hún fannst, einn-
ig í Portúgal.
Af öðrum ferðalöngum síðasta árs
má nefna að stuttnefja hafði flogið
tæplega 2.700 kílómetra við endur-
heimt í Kanada, skógarþröstur 2.632
kílómetra við endurheimt á Spáni og
lóuþræll hafði lagt 2.416 kílómetra að
baki við endurheimt í Frakklandi.
Það þykir ekki til sérstakra tíðinda
að íslenskir skúmar hafi fundist í 14
löndum, meðal annars í Ungverja-
landi, Ísrael, Brasilíu, Guyana, Vene-
súela og Alsír. Hefðbundnar vetrar-
stöðvar skúms eru víðs vegar um
Atlantshafið norðan miðbaugs. Krían
flýgur allra fugla lengst á vetrarstöðv-
arnar í hafísnum umhverfis Suður-
skautslandið og hafa merktar kríur
endurheimst í fjölmörgum löndum
Vestur-Afríku.
85.585 snjótittlingar merktir
Síðasta ár, 2020, var 100. ár fugla-
merkinga á Íslandi og það 89. í umsjón
Íslendinga. Afmælisárið markaðist af
heimsfaraldri og óvenjulítið var merkt
af fuglum, segir í skýrslunni. Sverrir
Thorstensen var afkastamestur við
fuglamerkingar með 2.269 nýmerkta
fugla, í Fuglaathugunarstöð Suðaust-
urlands voru merktir 2.164 fuglar og
Björn Hjaltason merkti 885 fugla.
Mest var merkt af skógarþröstum í
fyrra, 2.798 fuglar. Frá upphafi merk-
inga hafa verið merktir 85.585 snjó-
tittlingar. Í næsta sæti er lundinn en
alls hafa 81.683 lundar verið merktir
og 75.962 skógarþrestir.
Til ársloka 2020 höfðu alls 58.900 ís-
lensk merki endurheimst innanlands.
38.507 þeirra hafa fundist eða náðst
aftur á merkingarstað en 20.392 í eins
kílómetra fjarlægð eða meira frá
merkingarstað. Alls hafa 8.114 íslensk
merki endurheimst erlendis og auk
þess hafa 4.705 erlend merki endur-
heimst á Íslandi.
Fjórir nýir flækingar
Fjórar nýjar tegundir flækings-
fugla voru merktar á síðasta ári. Þrír
fuglanna náðust í Einarslundi við
Höfn í Hornafirði; trjátittlingur, blá-
skotta og dulþröstur. Fjórða nýja teg-
undin var elrigreipur sem náðist í
lundi á Hvalsnesi á Reykjanesskaga.
Langförull sílamáfur í Marokkó
- Af fuglum og
merkingum í 100 ár
- Skúmar endur-
heimtir í 14 löndum
Fuglamerkingar og endurheimtur 2020
11.109 fuglar af
79 tegundum
voru merktir árið 2020
hér á landi
Mest var merkt af skógarþröst-
um 2.798 fuglar, en næstmest
af auðnutittlingum, 1.007 fuglar,
þá 772 kríur, 678 æðarfuglar,
376 helsingjar og 321 stari
Árið 2020 var eitthundraðasta
ár fuglamerkinga á Íslandi en
767.576 fuglar
hafa verið
merktir á Íslandi síðan 1921
Skrofa sem var
merkt í
Ystakletti í
Vestmannaeyjum sem fullorðin
með hreiður, þá líklega a.m.k. sex
ára, fannst á sama stað 29 árum
síðar þann 16. júní 2020 þá ekki
minna en 35 ára gömul.
Rita sem var merkt sem ungi í
hreiðri 18. júlí 1995 í Klofningi
við Flatey fannst
rekin nýdauð
21. júlí 2020 í
Teinæringsvogi á
Flatey, þá
25 ára gömul.
Stormsvala var
merkt í Elliðaey, Vest-
mannaeyjum, þann 19.
júní 1991, þá a.m.k.
ársgömul, var fönguð í
net á sama stað 28 árum
síðar 24. júní 2019 og þá
a.m.k. 29 ára gömul.
Árið 2020 bárust 1.840 endur-
heimtur og álestrar á merki
á lifandi fuglum. 113
merki fundust erlendis
og 87 erlend merki af
18 tegundum fundust
hérlendis, mest af
helsingja eða 26.
Frá Bretlandseyjum fundust 78
merki, 2 frá Hollandi, 2 frá Belgíu
og 1 frá hverju eftirtalinna landa,
Noregi, Danmörku, Frakklandi
og Portúgal.
Heimild: Náttúru-
fræðistofnun
Stuttnefja merkt
á Íslandi fannst í
Kanada 2.694
km frá merk-
ingarstað
Skógarþröstur var endur-
heimtur á Spáni og lóuþræll í
Frakklandi. 2.632 og 2.416 km
frá merkingarstöðum
Lengsta skráða ferð í
endurheimtum ársins 2020
var endurfundur sílamáfs í
Marokkó. Hann var
3.555 km frá
merkingarstað.
Í Einarslundi við Höfn í
Hornafirði fundust trjá-
tittlingur (Anthus trivialis)
18. apríl, bláskotta (Tarsiger
cyanurus) 25. október
og dulþröstur (Catharus
guttatus) þann 5. nóvember.
elrigreipur (Empidonax
alnorum) náðst í skógar-
lundi á Hvalsnesi á
Reykjanesskaga, þann
22. september.
Marokkó
Spánn
Frakkland
Portúgal
ELRIGREIPUR
TRJÁTITT-
LINGUR
BLÁSKOTTA
DULÞRÖSTUR
Nýmerkingar 2020
Rauðbrystingur og tildra endurheimtust í Portúgal,
3.225 og 2.682 km frá merkingarstöðum
Skrofa sem Jóhann Óli Hilmarsson merkti
sem fullorðna á hreiðri í Ystakletti í Vest-
mannaeyjum í júní 1991, þá líklega a.m.k. sex
ára, eldist enn. Ingvar A. Sigurðsson fann
hana í Ystakletti 29 árum síðar þann 16. júní
2020, þá ekki minna en 35 ára gamla. Skrofan
skráir sig því enn sem handhafa hæsta þekkta
skrofualdurs á Íslandi.
Greint er frá fleiri íslenskum aldursmetum í
skýrslunni. Þannig var tilkynnt um stormsvölu, sem Jóhann Óli Hilm-
arsson merkti í Elliðaey, Vestmannaeyjum 19. júní 1991 og var hún þá að
minnsta kosti ársgömul. Erpur Snær Hansen fangaði hana að nýju í net á
sama stað 28 árum síðar, 24. júní 2019. Fuglinn var þá a.m.k. 29 ára og
velti úr sessi stormsvölu sem Erpur merkti 20. ágúst 1988 og Ingvar
endurveiddi á sama stað 7. ágúst 2016. Sá fugl var líka að minnsta kosti
29 ára, en dagsetningar gáfu til kynna að hann væri 18 dögum yngri.
Ritan sem Ævar Petersen merkti sem unga í hreiðri 18. júlí 1995 í
Klofningi við Flatey fannst rekin nýdauð 21. júlí 2020 í Teinæringsvogi á
Flatey. Hún var réttra 25 ára og aðeins 58 dögum eldri en sú sem hún
velti úr efsta sætinu.
Langlíf skrofa eldist enn
MERKIN GEFA MARGVÍSLEGAR UPPLÝSINGAR
Ljósmynd/Yann
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði