Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslenska ríkið er eigandi lands sem afsalað var frá ellefu jörðum í Kelduneshreppi í Norður-Þingeyj- arsýslu til Sandgræðslu Íslands með afsali þann 29. októer 1939. Jafn- framt á ríkið veiðirétt fyrir eignar- landi sínu á vatnasvæði Litlárvatna. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Norðurlands eystra sem kvað upp dóm í máli ríkisins gegn hópi land- eigenda í Kelduhverfi þann 10. des- ember sl. Eigendur jarðanna afhentu Sand- græðslu Íslands, síðar Landgræðslu ríkisins, landið sem um ræðir árið 1939. Þá var þar örfoka sandur og sandfok þaðan ógnaði byggð á svæð- inu, að því er fram kemur í dóm- inum. Sandgræðslan girti landið af árið 1942 til uppgræðslu og gegn ágangi búfjár. Langræðslan bar ár- angur og landið greri upp. Á sjöunda áratug síðustu aldar af- henti Landgræðslan sumum bændanna spildur úr þessu landi til beitar, undir eftirliti Landgræðsl- unnar. Sett var skilyrði um að girð- ingunni yrði haldið við og tilbúnum áburði dreift á svæðið árlega. Kröflueldar hófust í lok ársins 1975. Þeim fylgdu jarðskjálftar og bæði landris og landsig. Stórt svæði norðvestast á uppgræðslusvæðinu, Ássandi, seig og þar myndaðist um níu ferkílómetra stórt vatn, Skjálfta- vatn. Stór hluti svæðisins, sem bændur höfðu fengið afhentan til beitar nokkrum árum áður, sökk í vatnið og eins hluti af nýju girðing- unum. Fiskur fór að ganga í Skjálftavatn en úr því rennur Litlaá sem er eftir- sótt stangaveiðiá. Landeigendur stunduðu netaveiði í vatninu framan af og lét Landgræðslan það af- skiptalaust, að því er virðist í tæpa þrjá áratugi. Ríkið taldi sig eiga veiðihlunnindi fyrir sínum löndum en eigendur jarðanna viðurkenndu það ekki. Veiðifélag Litlárvatns hafnaði ósk Landgræðslunnar um að fá arð af veiðirétti í maí 2010. Ríkið stefndi því eigendum um- ræddra jarða til að fá eignarrétt sinn á umræddu landi viðurkenndan og önnur réttindi sem honum fylgja. Skrykkjóttur gangur málsins Hlynur Jónsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Hann tók við mál- inu 10. júní sl. en hafði ekki haft neina aðkomu að því fyrir þann tíma. Saga þessa máls er orðin þó nokk- ur í dómskerfinu. Málið var fyrst höfðað veturinn 2018 og var það þingfest í apríl það ár. Gagnsök var höfðuð 30. apríl sama ár og þingfest þann 17. maí um vorið. Málið var svo first dómtekið 3. september 2019 en þar eð dómur var ekki kveðinn upp innan lögboðins frests var það end- urflutt og dómtekið að nýju 26. nóv- ember 2019. Með dómi 3. desember 2019 var aðalsök vísað frá dómi en málið dæmt efnislega í gagnsök. Landsréttur staðfesti gagnsakar- þátt málsins með dómi 18. desember 2020 og frávísunarþáttur dómsins var felldur úr gildi með úrskurði Landsréttar 4. febrúar 2020. Málið var endurflutt um aðalsök og dóm- tekið að nýju 24. febrúar síðastlið- inn. Dómarinn sem fór með málið náði ekki að dæma í því vegna veik- inda. Þess vegna tók nýr dómari við. Málið var dómtekið 8. nóvember sl. og fór aðalmeðferð fram enn eina ferðina. Ríkið er eigandi lands og veiðiréttar - Dómur í máli ríkisins gegn landeigendum í Kelduhverfi Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Kelduhverfi Deilt var um lönd sem landeigendur framseldu til uppgræðslu. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Enn á ný er komin upp óvissa um hvort tímanlega tekst að ganga frá samkomulagi um yfirfærslu svo- nefndra skilavega frá Vegagerðinni yfir til sveitarfélaga áður en frestur til þess rennur út um næstu áramót. Ákveðið var árið 2007 með laga- setningu að ákveðnir stofnvegir í þéttbýli teldust ekki til þjóðvega í umsjá Vegagerðarinnar heldur yrðu sveitarfélögin veghaldarar þeirra. Síðar var svo ákveðið að Vegagerðin annaðist veghald þessara vega til ársloka 2019 á meðan samið yrði við sveitarfélögin um yfirfærsluna en samkomulag náðist ekki. Hefur fresturinn tvívegis verið framlengdur um eitt ár í senn og gæti komið til þess að fresta þyrfti yfirfærslunni í þriðja sinn ef ekki verður búið að ganga frá samkomu- lagi fyrir árslok um yfirfærsluna. Vilja sveitarfélögin að tryggt sé að fjármagn sem ríkið hefur úthlutað Vegagerðinni vegna viðhalds og þjónustu þessara vega verði til framtíðar greitt sveitarfélögunum. Sveitarfélög beri ekki kostnað „Við erum mátulega bjartsýn á að þetta náist,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga (SSH) á höf- uðborgarsvæðinu. Í nýrri umsögn SSH um fjárlaga- frumvarpið segir að ástæða frests- ins í fyrra sé sú að samningar og vinna þeim tengd hafi gengið hægt, m.a. hvað varðar mat á ástandi veg- anna við yfirfærslu og hvernig skuli farið með rekstrarkostnað þeirra. Sveitarfélögum beri ekki að taka við skilavegum „nema tryggt sé að þeim verði komið í viðunandi ástand áður eða fyrir liggi samkomulag um að sveitarfélag annist um að koma vegi í slíkt ástand, enda komi til fjárframlag frá Vegagerðinni til að standa straum af kostnaði við verk- ið“. Það hafi verið vilji og ætlan lög- gjafans á sínum tíma að sveitar- félögin bæru ekki aukinn kostnað af yfirfærslu veganna. Páll Björgvin segir Vegagerðina hafa staðið sig mjög vel í að ljúka við ástandslýsingu skilaveganna, sem sé mjög vönduð, enda sé það grundvöllur þess að umræddum vegum verði skilað að búið sé að fara yfir ástand þeirra og þeim sé skilað með viðunandi hætti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sæbraut Einn þeirra vega í þéttbýli sem teljast til skilavega. „Mátulega bjartsýn á að þetta náist“ - Óvissa enn á ný um skil skilaveganna Hjörleifur B. Kvaran hrl. var lögmaður meiri- hluta landeig- endanna sem rík- ið stefndi. Hann telur ólíkegt að málinu verði áfrýjað. „Nokkrir land- eigendur gagn- stefndu ríkinu og kröfðust viður- kenningar á eignarrétti þeirra á landi sem landgræðslustjóri af- henti þeim til afnota 1967. Ríkið var sýknað af þeirri kröfu í héraðs- dómi og Landsréttur staðfesti það. Héraðsdómurinn byggði á sjónarmiðum sem komu fram í Landsrétti og féllst á allar kröfur ríkisins,“ sagði Hjörleifur. Hann sagði að bæði héraðs- dómur og Landsréttur hefðu stað- fest að landeigendurnir ættu kauprétt að landinu, eins og þeir áskildu sér þegar það var afhent Sandgræðslunni til uppgræðslu árið 1939. Nokkrir landeigendur vildu nýta kaupréttinn og tók fjár- málaráðuneytið vel í það. Heimild til sölunnar var veitt í fjárlögum. Þegar ganga átti frá sölunni kom í ljós að umhverfisráðuneytið hafði skilgreint löndin sem nátt- úruverndarsvæði og sett þau á náttúruminjaskrá. Ríkið má ekki selja lönd á náttúruverndarsvæði. Þar með var ekki hægt að virkja kauprétt landeigenda. Hjörleifur sagði að löndin hefðu verið sett á náttúruminjaskrá án þess að tilkynna landeigendum um það. Þeir gátu því ekki andmælt. Landeigendurnir hafa nú óskað eftir því við umhverfisráðuneytið að ákvörðunin verði felld úr gildi svo þeir geti virkjað kaupréttinn. Hjörleifur segir að landinu sem um ræðir hafi aldrei verið skipt út úr jörðunum og það hvergi skráð sem sérstakar landareignir í op- inberum bókum. Þá hafa bænd- urnir borgað af því skatta og skyldur alla tíð. Eins hafa þessi lönd fylgt með þegar jarðir hafa verið veðsettar t.d. vegna lántöku. Var aldrei skipt út úr jörðunum LANDEIGENDUR VILJA NÝTA FORKAUPSRÉTT SINN Hjörleifur B. Kvaran 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is Tilvalin og nytsöm jólagjöf Þinn dagur, þín áskorun Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 22.500 Hönnuður Ösp Ásgeirsdóttir Verð kr. 8.500 Jólaskeiðin & jól bj lla a an 2021 Frí heim- sending
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.