Morgunblaðið - 16.12.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í síðustu viku kom út ljóðabókin Ljós
í myrkri eftir Baldvin Viggósson lög-
reglumann, sem lést í september síð-
astliðnum, 58 ára að aldri. Hann hafði
þá háð baráttu við krabbamein sem
stóð með hléum í alls 26 ár. Í lifanda
lífi ætlaði Baldvin sér að gefa ljóðin
sín út, en auðnast ekki að sjá þá ætl-
un sína verða að veruleika. Ljóðin eru
frá aldamótum fram til ársins 2019.
„Mér fannst mikilvægt að bókin
kæmi út, því í
ljóðunum er mik-
ilvægur boð-
skapur. Í raun er
þetta í hnotskurn
ævisaga mannsins
míns síðustu árin
sem hann lifði.
Tilfinningarnar
hans koma hér vel
fram,“ segir
Kristín Snorra-
dóttir, eftirlifandi
eiginkona Baldvins.
Baldvin Viggósson fæddist árið
1962. Hann gekk í lögregluna árið
1986 og starfaði þar allt upp frá því,
lengst í umferðardeild. Kom þó ann-
ars að ýmsum verkefnum sem mót-
uðu viðhorf hans til lífs og tilveru,
segir ekkja hans. Gerðu hann um-
burðarlyndan en æðrulausan.
Langt stríð
„Vissulega reyndi Baldvin margt,
svo sem að sonur okkar leiddist út í
fíkniefnaneyslu og háði þar harðan
slag. Baráttan við krabbamein var
líka mikill skóli. Stríðið var langt en
árið 2017 töldum við öll að sigur væri
unninn, en einmitt þá hafði meinið
tekið sig upp að nýju og var orðið
ólæknandi. En þrautseigja míns
manns var mikil. Þótt Baldvin væri í
viðkvæmur maður og ljúfur var hann
líka hálfgerður þurs og afar harður af
sér. Gaf ekkert eftir gagnvart sjálfum
sér í vinnu né öðru,“ segir Kristín.
Rissblöðin voru víða
„Baldvin orti mikið, en var laumu-
skáld. Að honum látnum fundum við
fjölskyldan hér og þar miða og riss-
blöð með ýmsum ljóðum. Í tölvunni
hans leyndist svo fullbúin ljóðabók,
sem við gefum út í hans minningu,“
segir Kristín.
Fölvinn frá ljósinu lýsir upp myrkur
ljósið er minn andlegi styrkur
Birtan mér færir gæfu og gleði
upplyftir öllu í mínu geði.
(Baldvin Viggósson )
Ljóð eftir lögreglumann
Baldvin
Viggósson
- Laumuskáld - Boðskapur Baldvins í ljóðabók sem var
tilbúin í tölvunni - Þursinn sem var viðkvæmur maður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölskyldan Frá hægri talið: Klara Dögg Baldvinsdóttir og Guðmundur V.
Bílddal unnusti hennar, Kristín Snorradóttir, Kristófer Arnar Ragnarsson
og faðir hans, Ragnar Már Skúlason, stjúpsonur Baldvins. Arnar Franz,
sonur þeirra Baldvins og Kristínar er lengst til vinstri hér á mynd.
Ljóðabók Fallegt kver með ljóðum
sem hafa boðskap að geyma.
Morgunblaðinu hefur borist yfirlýs-
ing frá börnum Steinólfs Lárussonar
í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Döl-
um vegna ásakana Finnboga Her-
mannssonar, sem skráði ævisögu
Steinólfs, á hendur Bergsveini Birg-
issyni rithöfundi fyrir að hafa tekið
orðfæri úr bókinni Einræður Stein-
ólfs og notað í bók Bergsveins, Svar
við bréfi Helgu. Einræður Steinólfs
komu út árið 2003 en bók Bergsveins
árið 2010.
Í yfirlýsingunni, sem Bergsveinn
aðstoðaði við að senda Morgun-
blaðinu, fara börn Steinólfs fram á
það við Finnboga að hann dragi ásak-
anir sínar til baka. Komu þær í kjöl-
far fregna um að Bergsveinn hafði
ásakað Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóra um ritstuld, eins og fram hefur
komið í Morgunblaðinu.
Lýsa þau jafnframt óánægju sinni
með vinnubrögð Finnboga við endur-
útgáfu á Einræðum Steinólfs, sem
komu út árið 2019.
Yfirlýsingin er undirrituð af Sess-
elju, Höllu Sigríði og Stefáni Skafta
Steinólfsbörnum og er eftirfarandi,
millifyrirsögn er blaðsins:
„Við Steinólfsbörn urðum hvumsa
við að Finnbogi Hermannsson ásaki
Bergsvein Birgisson um ritstuld.
Eins og öllum hlutaðeigandi aðilum
er kunnugt færði Steinólfur sjálfur
mikið af frásögnum bókarinnar Ein-
ræður Steinólfs í Ytri-Fagradal
(2003) í letur. Í því tilviki, þegar Finn-
bogi Hermannsson ásakar aðra um
ritstuld þar sem vísað er í orðfæri
Steinólfs sjálfs, hefur Finnbogi eign-
að sér það orðfæri sem Steinólfur
lagði til verksins, og í öðru lagi slær
Finnbogi eign sinni á orðfæri Stein-
ólfs almennt þegar hann sagði frá. Er
rétt að geta þess að fleiri en Finnbogi
Hermannsson komu að útgáfu bók-
arinnar, og lögðu enn ríkari ritstjórn
af hendi til verksins en Finnbogi.
Voru ekki spurð álits
við endurútgáfu
Við erum því hjartanlega ósam-
mála að hann slái eign sinni á texta og
orðfæri Steinólfs á þennan hátt. För-
um við fram á að ásakanir þessar
verði dregnar til baka.
Ekki var heldur staðið að endur-
útgáfu bókarinnar, Einræður Stein-
ólfs í Ytri-Fagradal árið 2019, á þann
hátt sem við vildum, og ekki veittum
við heldur skriflegt umboð til þess.
Þar hefur Finnbogi skeytt sínum eig-
in texta, sem hann kallar Skarðs-
strandarrollu, framan við texta Stein-
ólfs, og lítum við svo á að það eigi ekki
heima við hlið höfundarverks Stein-
ólfs. Og þótt höfundarréttur segi til
um að bókin sé Steinólfs líka vorum
við ekki spurð álits á þessu fyrir-
komulagi og erum því mótfallin.“
Vilja að Finnbogi dragi
ásakanir sínar til baka
- Yfirlýsing frá af-
komendum Stein-
ólfs Lárussonar
Finnbogi
Hermannsson
Bergsveinn
Birgisson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bóndi Steinólfur Lárusson í Ytri-Fagradal var þekktur
fyrir tungutak sitt og frumlega hugsun. Hann lést 2012.
Bakaríið Vest
Höf. Solja Krapu-Kallio
Les. Þórunn Erna Clausen
Frostrós
Höf. Lotte & Søren Hammer
Les. Hilmir Snær Guðnason
Fíkn
Höf. Rannveig Borg Sigurðardóttir
Les. Birna Pétursdóttir,
Haraldur Ari Stefánsson
Þögli sjúklingurinn
Höf. Alex Michaelide
Les. Björn Stefánsson
Jólasveinasaga
Höf. Bergljót Arnalds
Les. Bergljót Arnalds
Tvennir tímar
Höf. Elínborg Lárusdóttir
Les. Guðni Th. Jóhannesson,
Helga Elínborg Jónsdóttir
Arnaldur Indriðason deyr
Höf. Bragi Páll Sigurðarson
Les. Björn Stefánsson
Fyrsta málið
Höf. Angela Marsons
Les. Íris Tanja Flygenring
vi
ka
49
Vetrarfrí í Hálöndunum
Höf. Sarah Morgan
Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Dansarinn
Höf. Óskar Guðmundsson
Les. Daníel Ágúst Haraldsson
TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi.
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu, óskar eftir
orlofshúsum og/eða íbúðum á leigu fyrir félagsmenn sína
fyrir sumarið 2022.
Húsnæðið
Einungis húsnæði í góðu ásigkomulagi, vel viðhöldnu og
í frágengnu umhverfi kemur til greina.
Mikilvægt að komi fram
Upplýsingar um staðsetningu, verð, stærð, aldur eignar,
ástand eignar, fjölda gistirýma og aðra aðstöðu eins og
heita potta skulu koma fram ásamt ljósmyndum.
Áhugasamir sendi upplýsingar til verkefnastjóra
orlofsmála Sameykis með tölvupósti á netfangið
asaclausen@sameyki.is fyrir 10. janúar 2022. Öllum
tilboðum verður svarað.
Sameyki óskar eftir
orlofshúsum/íbúðum
Grettisgötu 89 • 105 Reykjavík • Sími 525 8330 • sameyki.is