Morgunblaðið - 16.12.2021, Page 16

Morgunblaðið - 16.12.2021, Page 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is M ig óraði ekki fyrir þess- um vinsældum, ég náði ekki að anna eftir- spurn,“ segir Kristjana Björk Traustadóttir en hún hefur verið að hekla og selja sjálflýsandi snjókorn og jólastjörnur, end- urskinsmerki sem hafa verið svo vin- sæl að hún þurfti að loka fyrir pant- anir. „Ég skellti í námskeið svo fólk geti lært að hekla þetta sjálft, en ég ætla að opna fyrir pantanir aftur eftir jól, svo þeir sem vilja byrja nýja árið sýnilegir geti það,“ segir Kristjana sem býr í Hveragerði og unir þar hag sínum vel ásamt tveimur börnum og eiginmanni. „Við höfum búið hér í fimm ár og líður mjög vel. Þetta er fjöl- skylduvænn bær, mikið næði og stutt í allt, við þurfum varla að setja bílinn í gang nema þegar við förum út úr bænum. Ég geng til vinnu, en ég er nýbyrjuð að vinna í nýju Mathöllinni hérna,“ segir Kristjana sem lauk ný- lega seinna fæðingarorlofi sínu en hún opnaði vefsíðuna sína hringl- andi.is einmitt í því orlofi. Á vefsíð- unni selur hún m.a. garn og áhöld sem henta í vinnu með vattarsaum og orkeringu, sem eru ævafornar að- ferðir, en hún deilir líka alls konar fróðleik um hannyrðir á instagram- síðu undir sama nafni. Komið frá nunnuklaustrum „Mig langar að halda þessum gömlu hefðum við, kynna fólki þetta, þess vegna ætla ég að bjóða upp á námskeið í orkeringu og vattarsaumi á nýja árinu. Þá get ég ekki sent fólk frá mér án þess að bjóða því upp á vettvang til að kaupa efni og áhöld í þetta, sem er að finna á vefsíðunni minni. Í vattarsaum eru notaðar sér- stakar flatar langar nálar sem ekki eru oddhvassar. Þær eru nú til dags aðallega úr tré, en eru líka til úr beini og stáli,“ segir Kristjana og bætir við að vattarsaumur sé miklu eldri að- ferð en prjón. „Þessi aðferð er talin hafa verið notuð á víkingaöld og fólk gerði sér þá klæði með vattarsaumi, sérstak- lega á Norðurlöndunum. Þegar ég sé eitthvað víkingatengt í sjónvarpinu eða fer á víkingahátíðir, þá er mjög líklegt að ég sjái einhvern klæddan í vattarsaumaða flík, hvort sem það eru sokkar, vettlingar, húfur eða peysur.“ Kristjana segir að ekki sé hægt að hafa uppskriftir í vattarsaumi heldur þurfi að læra aðferðina. „Maður fitjar upp og gerir út- aukningu og úrtöku, og þá er hægt að gera hvað sem er úr afrakstrinum. Það sem kemur úr vattarsaumi er mjög slitsterkt, þykkt og öflugt. Ork- ering er aftur á móti afar fíngerð. Í hana þarf að nota áhald sem heitir skytta, lítið áhald sem passar inn í lófa og er með litlum goggi framan á eða heklunál. Garnið er haft í annarri hendi og því er vafið inn í skyttuna, svo tekur viðkomandi við að hnýta, því orkering byggist á hnútum. Ork- ering er með öðrum orðum hnýt- ingaraðferð og til eru tvær útfærslur, því það er líka hægt að orkera með orkeringarnál, en það er sjaldgæfara.“ Kristjana segir að úr því sem fólk býr til með orkeringu sé hægt að gera dúka, skartgripi, jólaskraut sem hægt er að stífa og hengja á jólatré, merkimiða fyrir pakka, eða hengja beint á pakka, hvað sem er. „Möguleikarnir eru endalausir. Mér finnst til dæmis mjög fallegt að setja orkeringu framan á ermar, við háls- mál eða á fald pilsa. Orkering hefur verið notuð í ermar á peysufötum og í hálsmálið á skautbúningnum.“ Ekki er nákvæmlega vitað hvað- an þessi forna aðferð, orkering, kem- ur upphaflega, en Kristjana segir að ein kenningin sé sú að mögulega komi þetta frá nunnuklaustrum á Ítalíu. „Aðrir segja að orkering komi út frá „macramé“, sem er mjög vinsælt í dag, en það er gróf hnýtingaraðferð, fólk hnýtir til dæmis blómapotta- hengi, veggskraut og fleira,“ segir Kristjana sem hlakkar til að halda líka námskeið í regnbogahekli eftir áramót. „Ég hef heklað mjög mikið í meira en áratug og ég bý til hekl- uppskriftir sem ég sel á síðunni minni.“ Örlög réðust í Finnlandi Kristjana segist njóta þess mjög að sinna handverki, hvort sem hún er að kenna eða gera eitthvað sjálf. „Ég hef alltaf verið að gera eitt- hvað í höndunum alveg frá því ég var lítil. Ég var endalaust að brasa, búa til hús og húsgögn úr pappír, klippa, líma og teikna. Ég menntaði mig í raun alveg óvart í textílmennt, því þegar ég hafði lokið menntaskóla hafði ég ekki hugmynd um í hverju ég vildi mennta mig. Þegar ég var að velta fyrir mér að fara í kennaranám í Háskóla Íslands datt ég inn á list- greinakennsluna þar, ég sá nám í smíðakennslu sem mér leist vel á. Það innihélt trésmíði, silf- ursmíði, gler og alls konar spennandi, svo ég skráði mig og mér fannst þetta geggjað skemmtilegt nám. Ég valdi þrjú kjörsvið í grunnnáminu, smíði, myndmennt og textílmennt, en í meistaranáminu mátti bara velja eitt kjörsvið. Þar valdi ég ekki smíðina vegna fyrirferðar allra stóru vélanna, ég óttaðist smá að missa alla fingur í þeim, svo ég valdi textílinn,“ segir Kristjana sem tók fyrra árið í meist- aranáminu í Finnlandi. „Þar voru örlög mín ráðin í þess- um málum, því þar kynntist ég og féll fyrir þessum gömlu aðferðum, vatt- arsaumi og orkeringu. Ég hafði aldr- ei heyrt þessi orð áður en mér finnst mjög gaman að vinna með þessum aðferðum, því það er hægt að gera svo margt. Ég er með höfuðið fullt af hugmyndum en vantar helst tíma til að framkvæma þær allar.“ Framtíðarplön Kristjönu eru að bjóða upp á námskeið í fleiri fornum handverksaðferðum. „Til dæmis knipl, en ég lærði það líka í Finnlandi. Mig langar líka að bæta við námskeiðum í vefnaði, ekki í vefstól, heldur minni vefnaði eins og spjaldvefnaði. Hringlandi er enn í mikilli þróun og ég er spennt að halda áfram með þetta allt saman. Þetta hringlandisbarn er svo til ný- fætt og það á eftir að þroskast og vaxa.“ Orkering Fínlegar hnýtingar, hægt að nota í hvað sem er. Sjálflýsandi Kristjana heklar og selur snjókorn úr endurskini. Körfur Kristjana heklaði þessar körfur undir garnið sitt. Hringlandi horfir til fortíðar „Mig langar að halda þessum gömlu hefðum við,“ segir Kristjana Björk Traustadóttir sem ætlar að bjóða upp á námskeið í vattarsaumi og orkeringu á nýju ári. Knipl er líka á dagskrá og ýmislegt fleira. Kristjana Hún elskar að kenna öðrum hannyrðir. Hér er hún með öflugan vettling sem hún gerði með vattarsaumi sem hún ætlar að kenna á nýju ári. Hægt er að fylgjast með Krist- jönu á instagram og á feisbúkk undir „hringlandi“. Regnbogahekl Nám- skeið eftir áramót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.