Morgunblaðið - 16.12.2021, Side 18

Morgunblaðið - 16.12.2021, Side 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is TOYOTA - RAV4 GX – RN. 153808 Nýskráður 3/2019, ekinn 46 þ.km., bensín, hvítur, sjálfskiptur, litað gler, vindskeið, kastarar, hiti í framsætum, Höfuðpúðar á aftursætum. Verð 4.650.000 kr. FORD - KUGA TITANIUM S 2.0 – RN. 192084 Nýskráður 5/2017, ekinn 143 þ.km., dísel, hvítur, sjálfskipting, hiti í framsætum, , topplúga, litað gler, höfuðpúðar á aftursætum. Verð 2.590.000 kr. MERCEDES-BENZ - GLC 350 E 4MATIC – RN 340642 Nýskráning 11/2017 ekinn 38 þ.km. bensín, blár, sjálfskipting, rafdrifin framsæti, samlæsingar topplúga, leðuráklæði, litað gler. Verð 7.490 000 kr. SUZUKI - SX4 S-CROSS GL RN. 331607. Nýskráður 5/2019, ekinn 57 þ.km., bensín, brúnn, sjálfskiptur, hraðastil- lir, litað gler, bakkmyndavél, kastarar, hiti í framsætum. Verð 3.980.000 kr. Bækur, útivistardót, tískudót og hangikjöt. Margs þarfnast búið við segir máltækið sem á vel við nú fyrir hátíðirnar. Morgunblaðið heyrði hljóðið í nokkrum kaupmönnum úti um land og ræddi við þá um jólaverslunina. „Hér í búðinni seljast bækur vel fyrir jólin. Sérstaklega er raunin sú um bækur höfunda sem tengjast þessum bæ. Þegar allt kemur til alls leynir Skaginn svolítið á sér sem skálda- bær,“ segir Katrín Lilja Jónsdóttir, versl- unarstjóri í Eymundsson á Akranesi. „Meðal Skagaskálda sem senda frá sér bækur að þessu sinni er Eva Björg Ægisdótt- ir, höfundur glæpasögunnar Þú sérð mig ekki. Snæfellsnesið er vettvangurinn í þessu verki Evu sem tekst vel upp með bæði persónur og söguþráð. Þessi bók hefur selst vel og eins sagan Læknirinn í englaverksmiðjunni eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur, sem á rætur að rekja hingað á Akranes.“ Katrín Lilja getur þess enn fremur að margar ágætar unglingabækur komi út fyrir þessi jól. Nefnir þar meðal annars Banvæn snjókorn eftir Sif Sigmarsdóttur, miSter ein- Sam, sem Ragnheiður Eyjólfsdóttir skrifaði og Akam, ég og Annika, bók eftir Þórunni Rak- el Gylfadóttur. „Ég hef mikinn áhuga á bókum og les mikið. Miklu skiptir að skrifaðar séu og gefnar út góðar ungmennabækur, sem virki- lega höfða til ungmenna sem eru lesendur framtíðar,“ segir Katrín Lilja sem ásamt fleir- um skrifar um bækur og efni þeirra á vefsetr- inu lestrarklefinn.is. Eymundsson á Akranesi er í verslunarklas- anum við Dalbraut, en í sömu byggingu eru meðal annars bókasafn bæjarins og verslun Krónunnar svo eitthvað sé nefnt. Á Skaganum er allt til alls og íbúum fjölgar stöðugt. Margar verslanir á sama stað „Þegar margar verslanir og þjónustustofn- anir eru á sama stað eins og hér við Dalbraut vinnur hvað með öðru og styrkir. Verslun hér á Akranesi hefur eflst síðustu árin og Skaga- menn taka innkaup sín í ríkari mæli hér í bæn- um. Kórónuveiran varð þess meðal annars valdandi að fólk fór minna héðan úr bænum til að sinna erindum sínum. Þá kemur líka hingað á Akranes fólk af Reykjavíkursvæðinu og ger- ir jólainnkaupin hér, til að forðast ösina í borg- inni. Enda ekki langt að fara, úr Reykjavík hingað á Skagann tekur ferðin ekki nema rétt um það bil klukkustund,“ segir bóksalinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akranes Verslun hér í bænum hefur eflst síð- ustu árin, segir Katrín Lilja í Eymundsson. Skáldaskagi leynir á sér Fjölbreytnin er allsráðandi í Smiðjunni, versluninni góðu við Sindragötu á Ísafirði. Fatnaður, skór, ullarsokkar, verkfæri, vara- hlutir, útgerðarvörur, útvistardót, naglar og skrúfur. Hver býður annars betur? Smiðjan er útibú frá Vélsmiðju Ísafjarðar, gamal- grónu fyrirtæki sem þjónað hefur útgerðinni vestra – og raunar mörgum fleirum fyrir vestan – um langt árabil. „Þessi verslun var sett á laggirnar árið 2013 og er ef þannig má að orði komast búð þar sem hægt er að fá allt milli himins og jarðar,“ segir Sigrún Svan- hvít Óskarsdóttir sem tók við starfi versl- unarstjóra fyrir um mánuði. Ísafjörður – gjarnan nefndur höfuðstaður Vestfjarða – hefur hlutverk meðal annars sem verslunarbær. Margar búðir eru við Silfurtorg, Hafnarstræti og svo neðar á Eyr- inni. „Jólaverslunin er komin á fullt og geng- ur vel. Auðvitað finnum við alveg fyrir sam- keppni, bæði hér innanbæjar en þó ekkert síður við Reykjavíkursvæðið. Fólk er ekki nema fimm til sex klukkstundir í förum á milli og nú að undanförnu hefur færðin verið góð svo lítið mál er að skeppa suður. Nei, í sjálfu sér verður ekki sagt að fólk hér um slóðir byrji að undirbúa jólin og kaupa inn á einhverjum ákveðnum tímapunkti. Þetta tikkar inn alla aðventuna, sem mér finnst alltaf mjög notalegur og ljúfur árstími. Hér á Ísafirði er til dæmis hefð fyrir ljósaskreyt- ingum á húsum sem setja skemmtilegan svip á bæinn,“ segir Sigrún sem er úr Skagafirði en er fyrir löngu orðin Vestfirðingur í siðum og sinni. Sótt í Klofning „Annars vandist ég því á Sauðárkróki að jólatréð væri aldrei sett upp eða skreytt fyrr en á Þorláksmessu. Mér finnst ómögulegt að víkja frá þeirri hefð. Við fjölskyldan búum á Flateyri og förum við yfirleitt á þessum síð- asta degi fyrir jól í skóginn rétt fyrir utan þorpið okkar á svæði sem heitir Klofningur, höggvum þar tré og förum með það heim í stofu og skreytum. Slíkt er þá jafnan eitthvað tengt skötunni, sem er í hávegum höfð hér á Vestfjörðum á þeim degi og er víða höfð á borðum,“ segir Sigrún í Smiðjunni. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ísafjörður Jólaverslunin er komin á fullt og gengur vel, segir Sigrún Svanhvít. Aðventa og ullarsokkar „Nýi miðbærinn kemur sterkur inn og hefur gert Selfoss að staðnum sem leiðin liggur til. Talsvert er um að fólk til dæmis úr borginni komi hingað austur og dvelji hér á svæðinu yfir helgi. Gefi sér tíma til þess að njóta alls þess besta sem bærinn býður, hvort sem það er afþreying eða þjónusta. Af þessu leiðir að jólaverslunin hjá okkur hefur verið lífleg,“ segir Erla Gísladóttir kaupmaður í Motivo á Selfossi. Í Motivo fást fatnaður, gjafavörur og útivist- arvörur ýmiskonar. Verslunin er líka vinsæl og sérstaðan er skýr. Þar fást margar vörur og merki sem bjóðast ekki í öðrum búðum. Verslunin góða var stofnuð árið 2007 og hef- ur gengið vel, sem Erla þakkar góðum við- skiptavinum. Starfsemi Motivo var nú í sumar flutt í Brúarstræti en svo heitir gatan sem liggur í gegnum nýja miðbæinn á Selfossi. Sú byggð verður stækkuð enn frekari á næstu ár- um með fleiri húsum og enn fjölbreyttari starf- semi en nú er. „Selfoss hefur alltaf verið öðrum þræði verslunarbær og með ótal búðum sem hafa sína áhersluna hver styrkist staðurinn í þessu hlutverki sínu. Hér í Motivo, sem er fjöl- skyldufyrirtæki, eigum við góðan hóp við- skiptavina héðan af svæðinu. Einnig kemur hingað gjarnan sumarhúsafólkið sem á dval- arstað hér í grennd og svo þau sem mæta gagngert hingað til að njóta í þessum frábæra miðbæ sem hefur komið Selfoss rækilega á kortið,“ segir Erla, sem þykir verslunarstörfin skemmtileg, ekki síst í aðdraganda jóla. Gaman að hitta fólk í búðinni „Vinnudagar í desember eru oft langir, en ánægjulegir. Mér finnst einfaldlega mjög gaman að hitta alls konar fólk og kaupmanna er að mæta ólíkum óskum þess. Fyrr á árum vann ég ýmis skrifstofustörf en ætlaði mér annars alltaf að verða kaupmaður og hóf þann feril í heimabyggð minni úti í Vestmanna- eyjum fyrir 40 árum þegar við Grímur bróðir minn rákum þar saman pysluvagn. Að selja pylsur – eða föt og gjafavörur eins og ég geri nú – er annars ekki ólíkt. Allt snýst þetta um samskipti við fólk svo allir séu sáttir að við- skiptum lokum.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Ætlaði alltaf að verða kaupmaður, segir Erla Gísladóttir um verslunarstörfin. Motivo er í miðbænum Húsavík og hangikjöt eru gjarnan nefnd í sömu andrá, svo þekkt er sú framleiðsla í bænum. Úr vinnslu Norðlenska er líka stutt yfir í verslun Nettó við Garðarsbrautina, þar sem Helga Kristjana Geirsdóttir er versl- unarstjóri. „Jólaverslunin er komin alveg á fullt hjá okkur og hangikjötið selst vel. Er hér eins og víðast hvar annars staðar vænt- anlega víða á borðum á jóladag. Hér á Húsa- vík held ég svo að sterk hefð sé fyrir á mörg- um heimilum að vera með rjúpu á aðfanga- dagskvöld rétt eins og hefur verið hefðin í heimabyggð minni austur á Vopnafirði. Svo er líka góð sala hér í ýmsu öðru svo sem smá- kökum og sælgæti, því fólk vill gjarnan gera vel við sig um hátíðirnar,“ segir versl- unarstjórinn. Helga Kristjana hefur stýrt Nettóbúðinni á Húsavík síðan í haust. Hún segir starfið afar líflegt og að búðin sé í raun skurðpunktur samfélagsins. Þangað liggi leið flestra þegar nauðsynjar þarf til heimilis. „Hingað koma viðskiptavinir til dæmis frá Kópaskeri, Rauf- arhöfn, Mývatnssveit og úr sveitunum hér allt í kring. Úrvalið í verslunum hér á Húsa- vík er ekki svo mikið eða þær svo margar að hér fáist allt. Ég hygg að æði margir hér á svæðinu geri sér erindi á Akureyri og geri stórinnkaupin fyrir jólin þar. Slíkt er svo sem ekki stórmál, því héðan frá Húsavík er þetta ekki nema klukkutímaferð og færð á vegum nú er með besta móti.“ Birgittubækur seljast vel Í Nettó á Húsavík fást helstu nauðsynjar og fleira, svo sem eftirsóttustu jólabækurnar. Tæplega þarf að koma á óvart að þar nái háu skori Lárubækurnar svonefndu, sem eru eftir Birgittu Haukdal frá Húsavík. „Þetta eru virkilega flottar bækur hjá Birgittu, sem bæði börn og foreldrar eru ánægð með. En svo spyrðu hvað ég vilji sjálf í jólagjöf. Jú, ég er búin að leggja inn pöntun fyrir Air Fryer – loftsteikingarpottinum sem allir eru að tala um núna og er sennilega upp- haf byltingar í matargerð á heimilum heims- ins. Vonandi gengur eftir að ég fái þessa gjöf,“ segir Helga Kristjana Geirsdóttir á Húsavík. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Fólk vill gjarnan gera vel við sig um hátíðirnar, segir Helga Kristjana í Nettó. Hefð fyrir hangikjöti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.