Morgunblaðið - 16.12.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 16.12.2021, Qupperneq 32
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Allt frá því um miðja 19. öld hafa Ís- lendingar deilt um réttmæti þess að nota ættarnöfn í stað hins forna siðar að kenna sig við föður eða móður. Þetta er umfjöllunarefni í nýrri bók sem Páll Björnsson, sagnfræðingur og prófessor við Háskólann á Akur- eyri, hfeur sent frá sér, Ættarnöfn á Íslandi. Undirtitill bókarinnar er Átök um þjóðararf og ímyndir. Sköpuðu sér sérstöðu Hér á landi voru ættarnöfn fyrr á tíð tengd valdsmönnum og efna- mönnum og þeim sem höfðu dvalið við nám og störf í útlöndum, einkum Danmörku. Segja má að með ættar- nöfnum hafi menn skapað sér sér- stöðu og innsiglað á vissan hátt að þeir væri ekki hluti almúgans heldur yfir hann hafnir. Einna þekktust frá fyrri tíð eru ættarnöfn eins og Steph- ensen, Schveing, Finsen, Espólín, Briem, Thoroddsen, Thorarensen, Thorlacius, Hafstein, Claessen og Thors, svo nokkur séu nefnd. Snemma á öldinni sem leið tóku ýmsir málsmetandi menn upp þá kröfu að öllum yrði heimilt að nota ættarnöfn og náðist sá árangur að ættarnöfn voru lögleidd með sam- þykkt Alþingis árið 1913. Í kjölfarið fjölgaði þeim mjög. En meðal landsmanna var engin sátt um þessa róttæku breytingu á nafnakerfinu. Horfið var til fyrri hátta með afnámi ættarnafnalaganna árið 1925. Ættarnöfnin sem tekin höfðu verið upp fengu þó að standa óhögguð en ný voru ekki leyfð. En það hefur ekki verið friður um ætt- arnöfnin eftir þetta og stöðugt eru uppi umræður á Alþingi og í þjóð- félaginu um nafnsiði landsmanna. Inn í þær blandast m.a. hvernig fara eigi með nöfn útlendinga sem verða ís- lenskir ríkisborgarar. Eiga þeir að fá að halda nöfnum sínum eða taka upp íslensk nöfn eins og til skamms tíma var krafist. Tengist sjálfstæðisbaráttunni En hvers vegna hafa deilurnar um ættarnöfnin, sem enn standa, orðið svona heitar og ákafar? Og hvað segja þær um okkur Íslendinga og samfélagið? „Þetta kallar á margháttaðar skýr- ingar,“ segir höfundur bókarinnar, Páll Björnsson. „Ættarnöfn breidd- ust út í nágrannalöndunum samhliða stækkun borga og bæja. Í takt við þá þróun voru ættarnöfn t.d. bundin í lög í Danmörku 1828 en það var þó ekki fyrr en um 1900 að Danir í hinum dreifðari byggðum létu alfarið af því að kenna sig við feður sína. Þar urðu þessi miklu umskipti án teljandi and- stöðu.“ Páll segir að á Íslandi, þar sem ættarnöfn voru tiltölulega fá á 19. öld, hafi framvindan orðið með allt öðrum hætti. Hér hafi menn farið að líta á föðurnafnasiðinn sem mikilvægan þátt í varðveislu íslenskrar menning- ar á síðari hluta aldarinnar. Litið var á hann sem hluta af íslenskum þjóð- ararfi. Menn sögðu að með varðveislu þessa siðar myndu Íslendingar ávinna sér virðingu annarra þjóða. „Nærtæk skýring á þessari at- burðarás er sú, að ólíkt Danmörku, þá náði þjóðernisvitund fótfestu hér á landi áður en þéttbýli fór að myndast fyrir alvöru. Hin nýja vitund birtist t.a.m. í því að fjölmörg ný þjóðartákn urðu til. Í löngum aðdraganda að full- veldi landsins 1918 var Jón forseti t.d. gerður að miðlægu sameiningartákni. Sjálfstæðisbaráttan almennt skiptir þannig miklu máli en hún fól það m.a. í sér að Íslendingar fóru að leggja áherslu á sérkenni sín og það sem að- greindi þá frá öðrum,“ segir Páll. Jafnvel álitnir villimenn! Hann segir að aldrei hafi þó mynd- ast einhugur um föðurnafnasiðinn. Talsmenn ættarnafna töldu að Ís- lendingar myndu einungis verða að þjóð meðal þjóða með því að innleiða ættarnöfn, annars yrðu þeir jafnvel álitnir villimenn. Formælendur ætt- arnafna beittu fjölmörgum öðrum rökum á 20. öld, t.d. þeim að nöfn fólks væru einkamál hvers og eins. „Þessar deildu meiningar endur- spegla ekki aðeins ólík sjónarmið heldur minna okkur einnig á að nöfn eru veigamikill hluti af sjálfsmynd fólks,“ segir Páll. Nöfn hluti af sjálfsmyndinni - Íslendingar hafa deilt um réttmæti ættarnafna frá því um miðja 19. öld - Voru leyfð með lögum frá Alþingi 1913 til 1925 - Ný bók um efnið eftir Pál Björnsson prófessor bregður ljósi á þessa sögu Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Ættarnöfn Páll Björnsson hefur rannsakað sögu deilna um ættarnöfn á Íslandi og sent frá sér bók um efnið. 32 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.