Morgunblaðið - 16.12.2021, Page 34

Morgunblaðið - 16.12.2021, Page 34
34 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna! Farðu inn á mbl.is/happatala, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna. Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið. Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna. 34 Þær eru margar leiðirnar til að njóta aðventunnar og kannski nokk- uð misjafnar eftir aldri fólks. Sumir hætta sem betur fer aldrei að vera jólabörn og fyllast hátíðleik og róm- antík, en svo eru þeir sem vilja djamma og skemmta sér á aðvent- unni, til dæmis með því að taka þátt í spurningakeppni sem tengist jólun- um. Þeir hinir sömu eru heppnir, því í kvöld, fimmtudagskvöld, verður ein slík spurningakeppni á Kex hos- teli við Skúlagötu í Sódómu Reykja- vík. Þetta er svokallað JÓLÓ!-quiz þar sem þemað er jólin og þá helst birtingarmynd þeirra í bíómyndum, tónlist og ýmissi poppmenningu. Spurningahöfundur og dómari er Davíð Roach Gunnarsson en hann ku ekki vera hefðbundið jólabarn, svo vænta má „kolsvartra jóla og mögu- leika á því að mamma kyssi fleiri jólasveina en pabba þinn“, eins og segir í viðburði. Myndaþraut, lesnar spurningar og tóndæmi spiluð. Tveir til fjórir í liði og vegleg inneignar- verðlaun í boði fyrir vinningshafa. Nóg af kartöflum fyrir hina. Gleðin hefst kl. 20 og stendur til 23. Nú er lag að skella sér í keppni! Jól Einhverjir ættu að kannast við þennan kauða úr jólakvikmynd. Jólaspurningaleikur - Spurt um bíómyndir, tónlist og fleira Súðbyrðingur, smíði og notkun, fékk á þriðjudag sess á skrá Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, yfir óáþreifanlegan menn- ingararf. Súðbyrðingur er sérstök norræn gerð báta, sem í tvö þúsund ár hefur skipt sköpum fyrir sjósókn Norðurlandanna. Súðbyrðingar geta verið margvíslegir eftir svæðum, en aðferðin við smíði þeirra er sú sama á Norðurlöndunum. Norðurlöndin stóðu saman að til- nefningunni sem samþykkt var á fundi Milliríkjanefndar um varðveislu menningarerfða í París. Vitafélagið – íslensk strandmenning hafði veg og vanda af undirbúningi tilnefning- arinnar fyrir hönd Íslands. Hliðstæð Heimsminjaskránni Í frétt á vef Stjórnarráðsins fagnar Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, þessum áfanga. „Þessi viðurkenning er mikilvæg hvatning til okkar að standa vörð um og miðla menningararfinum – við berum ábyrgð á honum saman,“ er haft eftir Lilju. Hún þakkar félögum í Vitafélaginu fyrir þeirra frumkvæði og elju í verkefninu og fyrir að halda á lofti mikilvægi íslenskrar strand- menningar. Skrá UNESCO yfir óáþreifan- legan menningararf mannkynsins er hliðstæð við hina þekktari Heims- minjaskrá UNESCO, segir í frétt- inni. Önnur skráin heldur utan um heimsminjastaði en hin um lifandi hefðir og menningarerfðir. Með skráningunni staðfestir alþjóða- samfélagið að viðkomandi menning- ararf beri að varðveita fyrir ókomnar kynslóðir. Smíði súðbyrðinga byggir á hand- verkshefð þar sem neðri brún fjalar leggst ofan á efri brún næstu fjalar fyrir neðan. Í upphafi voru borðin saumuð saman áður en trénaglar og síðar járn- og koparnaglar komu til sögunnar. Frá alda öðli hafa súðbyrð- ingar tengt saman samfélög stranda á milli, fært norrænar þjóðir út í heim og heiminn aftur til Norðurlandanna. Hefðin við smíði og notkun súðbyrð- inga er meginþáttur strandmenn- ingar okkar og er sameiginleg arfleifð Norðurlandanna, segir í fréttinni. Vitafélagið – íslensk strandmenn- ing, var stofnað árið 2003 sem frjáls félagasamtök og eru félagar nú á þriðja hundrað, einstaklingar, fé- lagasamtök og stofnanir. Félagið hef- ur haft það að meginmarkmiði sínu að efla vitund Íslendinga um þau miklu menningarverðmæti sem liggja í og við strendur landsins. aij@mbl.is Norrænir súðbyrðingar fá sess á skrá UNESCO - Óáþreifanlegur menningararfur Ljósmynd/Vitafélag – íslensk strandmenning Súðbyrðingur Hafliði Aðalsteinsson rær Sendlingi sem Ólafur Berg- sveinsson langafi hans smíðaði upphaflega fyrir rúmum 130 árum. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Halli sem gert er ráð fyrir að verði á rekstri Akureyrarbæjar á næsta ári skýrist að stórum hluta af van- fjármögnun í málaflokki fatlaðra. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segir að verið sé að fara yfir málaflokkinn og kostnað við hann, en þegar sé ljóst að mikla fjármuni komi til með að vanta „Við erum að skoða þessar tölur en það er alveg ljóst að það vantar stórar upphæðir, þær nema hundr- uðum milljóna króna,“ segir hún. Gert er ráð fyrir að halli á rekstri Akureyrarbæjar verði rúmar 600 milljónir króna samkvæmt fjár- hagsáætlun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Halla Björk segir að auk þess sem fjármagn skorti með málaflokki fatlaðra hafi kjarasamningar einnig sín áhrif á niðurstöðuna, launa- hækkanir og betri vinnutími. Ágreiningur bitni ekki á þjónustuþegum „Það er sérstakt áhyggjuefni að okkur sveitarfélögum og ríki skuli ekki takast betur að meta það hvernig skipting tekjustofna milli þessara tveggja stjórnsýslustiga þarf að vera til þess að þjónusta viðkvæmustu hópa samfélagsins sem best,“ segir Halla Björk. Í raun sé ríkið að setja fram niðurskurðar- kröfu á sveitarfélagið sem nemur þeirri upphæð sem vanti með mála- flokki fatlaðra. Þess utan séu oft sett ný lög sem auki kröfur í lög- bundnum málaflokkum sveitar- félaga sem hækka rekstrarkostnað, án þess að lögin hafi verið kostn- aðarmetin eða rætt um hvernig eigi að skipta fjármögnun á milli ríkis og sveitarfélaga. „Það kemur hins vegar ekki til greina að láta ágrein- ing milli sveitarfélaga og ríkis um fjármögnun bitna á þjónustuþegum, það er algjörlega óviðunandi og verður ekki gert,“ segir hún. Jákvæð teikn á lofti Halla Björk segir að þrátt fyrir að hart sé í ári séu ýmis jákvæð teikn á lofti eins og að „Akureyri eigi eftir að verða sú svæðis-„borg“ sem okkur dreymir um og haldi áfram að laða til sín fólk og fyrir- tæki“. Íbúum hefur fjölgað um 370 það sem af er ári og segir hún að það sé með allra mesta móti miðað við hin síðari ár. Ekkert bendi til annars en svipuð fjölgun sé í spil- unum áfram. „Við bjóðum yngri börnum en áð- ur pláss á leikskólum og það eru margvíslegar framkvæmdir fyrir- hugaðar í sveitarfélaginu á næstu misserum sem hafa jákvæð áhrif,“ segir hún. Nefnir hún sem dæmi að unnið sé að uppbyggingu og við- haldi félagslegra íbúða, verið sé að ljósleiðaravæða Hrísey og stefnt að áframhaldandi endurbótum á grunnskólum og skólalóðum þeirra. Hafin sé uppbygging við Austurbrú og í miðbæ Akureyrar standi einnig til að byggja upp. Tvö ný íbúða- hverfi eru í farvatninu og hefjast framkvæmdir í öðru þeirra næsta vor. „Fram undan er einnig mikil uppbygging á tjaldstæðisreitnum við Þórunnarstræti og á Akureyr- arvelli, en í kjölfar þess að ráðist verður í að byggja KA-svæðið upp að nýju er Akureyrarvöllur laus til þróunar. Það er gríðarlega verð- mætt svæði sem gæti gefið veru- lega auknar tekjur,“ segir Halla Björk. 600 milljóna króna halli hjá Akureyri - Niðurskurðarkrafa frá ríki vegna vanfjármögnunar - Vantar hundruð milljóna með málaflokki fatl- aðra - Jákvæð teikn á lofti - Íbúum hefur fjölgað um 370 á árinu - Framkvæmdir fram undan Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Nýsamþykkt fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 600 milljóna króna hallarekstri á bæjarsjóði á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.