Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 42
42 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 Stjórnendur rússnesku geimferða- stofnunarinnar Roscosmos eru von- góðir um að hin bandaríska systur- stofnun, NASA, taki áður en langt um líður til við að ferja geimfara til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, ISS, á ný, en síðan 2011, þegar Bandaríkja- menn lögðu síðustu geimskutlu sinni, hafa Rússar einir verið færir um að flytja áhafnir til stöðvarinnar. Í nóvember kvað við nýjan tón þeg- ar bandaríska geimferjan Crew Dra- gon hóf sig á loft og flaug að geim- stöðinni og eygja Rússar nú von um samninga milli þjóðanna á nýju ári, um að deila áhafnaflutningum með sér, eftir því sem rússneska frétta- stofan Interfax greinir frá. Forstjóri NASA í heimsókn Dmitry Rogozin, forstjóri Ros- cosmos, kveður málið hafa verið rætt stjórnenda geimferðastofnananna í millum auk þess sem talað var um möguleikana á því að Rússar gætu haldið áfram að sinna viðhaldi stöðv- arinnar lengur en til ársins 2025, en þangað ná núgildandi samningar. Þrátt fyrir að stirðleikinn í sam- skiptum risaveldanna hafi teygt anga sína út fyrir lofthjúp jarðar segir Rogozin, að um það hafi samist með þeim Bill Nelson, forstjóra NASA, í nýlegri Moskvuheimsókn hans, að stofnanir þeirra sameinuðust um kostnaðinn við rekstur Crew Dragon- ferjunnar fyrri helming komandi árs. Ekki er þó lengra síðan en í nóv- ember, að bandarískir embættis- menn brigsluðu Rússum um að stefna Alþjóðlegu geimstöðinni í hættu með geimrusli er þeir hefðu komið á spor- baug um jörðu. AFP Geimskot Soyuz MS-20-flaug Rússa leggur upp til ISS 8. desember. Ræða áhafna- flutninga NASA - Rússar séð um samgöngur frá 2011 Norska lág- gjaldaflugfélagið Norwegian segir allar líkur á samdrætti í flug- framboði félags- ins eftir áramót- in, að minnsta kosti ef smitum af völdum Ómík- ron-afbrigðis kórónuveirunnar heldur áfram að fjölga í Noregi, en í gærmorgun blasti talan 6.003 við norskum fjölmiðlaneytendum, sem voru nýsmit næsta sólarhrings á undan, 860 fleiri en sama dag fyrir viku. „Við búum okkur undir afleið- ingar í janúar og febrúar, það fer eftir því hver framvinda mála verður,“ sagði Geir Karlsen, for- stjóri Norwegian, við norska viðskiptavefmiðilinn E24 í gær. Margir hyggist þó standa við ferðaáætlanir sínar í sólina yfir há- tíðirnar. NOREGUR Norwegian boðar minna framboð Norwegian býr sig undir samdrátt. Ellefu létust og í gærkvöldi stóð leit enn yfir að 25 manns eftir að báti með um það bil 50 farendur (e. migrants) inn- anborðs hvolfdi undan strönd Malasíu, en fólk- ið var á leið frá Indónesíu til Mal- asíu án ferðaskjala eða annarra pappíra. Að sögn Simons Templers Lo Ak Tusa, yfirmanns siglinga- mála í Johor-héraði í Malasíu, fékk bátur farendanna yfir sig brotsjó með fyrrgreindum afleiðingum. „Fólk fer með bátum til Malasíu og fjöldi slysa verður vegna þess að lagt er af stað að næturlagi og kom- ið á áfangastað að morgni,“ sagði Tusa í gær og bað fólk lengstra orða að notast við viðurkennd sam- göngutæki á ferðalögum sínum til Malasíu. MALASÍA Ellefu fórust á sigl- ingu frá Indónesíu Báturinn kominn að landi í gær. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Nú hillir undir að kona muni í fyrsta sinn í 176 ára sögu lögreglunnar í New York fara með stjórn lögreglu- liðsins, en þetta gerði nýkjörinn borgarstjóri, Eric Adams, heyrum- kunnugt á blaðamannafundi í gær- morgun þar sem hann kynnti Keech- ant Sewell til leiks sem næsta lögreglustjóra borgarinnar. Adams tekur formlega við embætti borgar- stjóra 1. janúar af Bill de Blasio og mun nýi lögreglustjórinn einnig taka sér stöðu við sinn stjórnvöl á nýju ári. Vill bæta samskipti við íbúana „Því lýkur í dag,“ sagði Adams á fundinum eftir að hafa, sjálfur fyrr- verandi yfirmaður í New York-lög- reglunni, rætt um hlutskipti kvenna í löggæslustörfum með augljósum lík- ingum við íþróttakappleiki, þar sem þeim væri oftar en ekki gert að „sitja á bekknum“ og „aldrei leyft að taka þátt í leiknum“. Sewell, sem er tæplega fimmtug og rekur uppruna sinn til Queens- hverfisins, starfaði áður sem sátta- semjari í gíslatökumálum í Nassau á Long Island þar sem hún var enn fremur fíkniefnalögregluþjónn. Hún kveðst vel meðvituð um það blað, sem brotið sé í sögu lögreglunnar í New York með væntanlegri skipun hennar, og hyggst leggja áherslu á, að bæta samskipti lögreglunnar við borgarbúa. „Mér fylgja ný viðhorf, sem munu tryggja að lögreglan líkist borginni sem hún þjónar, og það ætlunarverk, sem Adams borgarstjóri var að sýna í verki, að greiða leið kvenna og þel- dökkra að stjórnunarstöðum,“ sagði Sewell er hún tók til máls á blaða- mannafundinum í gær, en hún verð- ur sjálf þriðji þeldökki lögreglustjóri borgarinnar frá upphafi vega. Þá ætli hún sér að skera upp herör gegn ofbeldisglæpum, einkum og sér í lagi þar sem skotvopn koma við sögu. Á rétta braut á ný Patrick Lynch, formaður stærsta stéttarfélags lögregluþjóna í New York, fagnaði ákvörðun nýja borg- arstjórans og sagði tímabært að koma lögreglunni og borginni á rétta braut á ný, en nokkrar viðsjár voru með lögregluliðinu og de Blasio, frá- farandi borgarstjóra, og varð sú uppákoma umtöluð sumarið 2017 þegar hundruð lögregluþjóna sneru baki í borgarstjóra er hann hélt ræðu við útför lögreglukonunnar Miosotis Familia, sem vegin var úr launsátri þar sem hún sat í merktri lögreglubifreið. Fyrst kvenna í tæp 200 ár - Keechant Sewell verður lögreglustjóri í New York - Fyrrverandi sáttasemjari í gíslatökumálum - „Mér fylgja ný viðhorf“ - Herör gegn skotvopnaglæpum AFP Lögreglustjórinn Sewell mun stjórna 35.000 lögregluþjónum. Jóhannes úr Kötlum hefði líklega seint valið nafnið Paul Heinz Suar- ez Gamarra á einn sinna nafntog- uðu jólasveina í kvæðinu annálaða, en hinum megin á hnettinum er það hins vegar nafnið sem allir tengja við jólasveininn. Gamarra þessi er nefnilega landsþekktur í Perú fyrir að bregða sér í gervið heimsþekkta í desember og gleðja þjóðina með ýmsum uppátækjum, svo sem að færa ungum kórónuveiru- sjúklingum á Villa Panamericana- hótelinu í höfuðborginni Lima gjaf- ir inn um glugga með aðstoð slökkviliðs borgarinnar, sem lagði körfubíl sinn góðfúslega til verks- ins. Persónuleg þjónusta í sól og blíðu og greinilega engin þörf á að setja skóinn út í glugga í Suður- Ameríku. Suður-Ameríka Perúbúar fara ekki í jólaköttinn AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.