Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 JÓLAKVÖLD SKEIFUNNAR OPIÐ TIL KL. 22 Í KVÖLD! JÓLAGLÖGG OG LÉTTAR VEITINGAR JÓLATILBOÐ AF VÖLDUM VÖRUM HÁTÍÐARVAGNINN VERÐUR Á STAÐNUM! HJÓLASKAUTAKYNNING OG FRÁBÆR JÓLASTEMNING! FALLEGUR OG VANDAÐUR BORÐBÚNAÐUR www.bakoisberg.is E L DHÚS A L L RA L ANDSMANNA Elínrós Líndal elinros@mbl.is Margrét Ágústsdóttir er ein þeirra sem standa að uppbyggingu Baba Yaga-hússins á Bræðraborgarstíg. Baba Yaga-hugmyndafræðin um kjarnasamfélög er upprunnin í Par- ís, en hefur síðustu ár rutt sér til rúms víðar. Hún gengur út á að skapa valkost við önnur búsetuform sem eldra fólki býðst í dag, í þessu tilviki fyrir konur á besta aldri sem vilja búa í sínum íbúðum, en í húsi með ýmsum sameiginlegum rýmum og með öðrum konum sem eru svip- að þenkjandi. „Ég er talsvert upptekin af þessu verkefni núna enda áhugavert verk- efni sem mikilvægt er að klárist. Annars gengur lífið sinn vanagang. Ég er ekki mjög upptekin af undir- búningi jólanna. Ég hef mikla ánægju af vinnunni minni, æfingum og að vera með vinum og fjölskyldu. Munu gera eitthvað skemmtilegt á aðventunni Undirbúningur jólanna var meiri hér áður fyrr þegar börnin mín voru yngri. Þá var skreytt smá á aðvent- unni og mikið farið á jólatónleika því yngsta dóttirin var í kór og í pí- anónámi.“ Gerir þú eitthvað sérstakt á heim- ilinu fyrir jólin? „Mitt heimili er alltaf svipað, þokkalega hreint og í ágætis standi enda bý ég ein og geng ágætlega um. Í ár verða jólin haldin á Tenerife með hluta af fjölskyldunni. Jólavenjur voru frekar fastar hér áður fyrr en nú er ég meira til í hvað sem er. Mig dreymir samt um rólegheitajól þar sem ég er boðin í mat til barnanna minna og þarf ekk- ert að gera nema mæta.“ Hvernig myndu Baba Yaga- systur halda upp á jólin? „Við höfum aðeins rætt það. Ég er í þessu verkefni með systur minni og tveimur vinkonum. Við er- um sammála um að í systrahúsinu okkar verði jólin frjálsleg og fram- andi. Við ætlum almennt að vera duglegar að bjóða íbúum hverfisins að koma til okkar og taka þátt í ým- iskonar viðburðum og erum með allt opið í því efni. Sérstaklega á aðvent- unni, þá ætlum við að halda opin hús, sem dæmi fá rithöfunda til að koma og lesa úr bókum sínum. Tón- leikar hafa líka verið í umræðunni og þar sem einhverjar okkar eru mjög listrænar þá verður líklega eitthvað um listsköpun líka. Jólin sjálf munu snúast um að borða góð- an mat á þeim tímum sem hentar og hafa það huggulegt. Einhverjar munu sjálfsagt halda jól hjá fjöl- skyldum sínum og svo koma kannski barnabörn í heimsókn. En fyrst og fremst verður það afslappað og frjálslegt.“ Er ekki með jólatré lengur Er eitthvað sem þú gerir aldrei á jólunum sem þér finnst alveg galið? „Já, ég fer aldrei offari í þrifum og peningaeyðslu á jólunum. Eins baka ég ekki og í raun geri ég ekk- ert af þessu sem þótti skylda að gera hér áður fyrr.“ Seturðu upp jólatré? „Jólatréð var stórt og hæfilega skreytt hjá mér en þann sið hef ég líka lagt af. Ef ég myndi halda jól hér heima og fá dótturdótturina sem býr í New York í heimsókn þá myndi ég skreyta tré með henni. En hún er gyðingur og þau halda ekki jól og því fær hún ekki jól nema á Íslandi.“ Hvað með mat, skemmtun og tón- leika. Hvað gerir þú því tengt? „Það er allt opið með mat nema ég borða ekki kjöt lengur. Ég bý í miðbænum og finnst gaman að ganga í bænum og skoða mig um. Að detta inn á litla tónleika á stöð- um eins og Máli og menningu og Skuggabaldri, svo einhverjir staðir séu nefndir.“ „Jólin verða frjálsleg og framandi“ Margrét Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri og þríþrautarkona, er hætt að gera hluti sem áður þótti nauðsynlegt að gera fyrir jólin. Hún vinnur að því að koma upp Baba Yaga- systrahúsinu á Bræðra- borgarstíg, þar sem gaman verður á jólunum. Morgunblaðið/Unnur Karen Tenejól Margrét Ágústsdóttir ætlar að verja jólunum á eyjunni Tenerife.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.