Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 68

Morgunblaðið - 16.12.2021, Síða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2021 ✝ Karl Ásgríms- son fæddist á Borg í Miklaholts- hreppi 14. mars 1935. Hann lést á Landspítala Foss- vogi 8. desember 2021. Foreldrar hans voru Anna Stef- ánsdóttir, f. 21.1. 1897, d. 24.9. 1967 og Ásgrímur Þor- grímsson, f. 16.9. 1895, d. 25.8. 1983. Karl var yngstur af 7 systk- inum. Þau voru: Soffía, f. 22.3. 1917, d. 11.4. 2004, Stefán, f. 28.11. 1919, d. 27.5. 1981, Ósk, f. 12.11. 1921, d. 1.2. 2002, Ágúst, f. 10.3 1924, d. 19.5. 2002, Inga, f. 24.11. 1927, d. 16.7. 2008, Halldór, f. 3.8. 1931, d. 6.10. 1998. Þann 17. júní 1958 kvæntist Karl Sigríði Gústavsdóttur, f. 13.2. 1940. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Gústav Adolf, f. 16.4. 1960, kvæntur Hugrúnu Olgu Guðjónsdóttur. Synir hans frá 2) Arnar Rúnar Marteins- son, f. 20.1. 1964. Börn hans eru Marteinn, Daði, Máni, Emma Sóley, Glódís Birta og Aron Kári. 3) Soffía Dröfn Marteins- dóttir, f. 20.6. 1965. Börn hennar eru Gabríela og Ró- bert. Karl ólst upp í foreldrahús- um, við almenn störf í sveit- inni. Frá 1958 til 1967 var hann umsvifamikill í mjólkur- og vöruflutningum á Snæfells- nesi með fjóra flutningabíla og 17 manna rútu, auk búslóða- flutninga víðsvegar um land. Síðar flutti hann til Reykjavík- ur og starfaði um tíma hjá S.V.R. uns hann fékk atvinnu- leyfi til leigubílaaksturs og starfaði við það, að hluta, til 1996. Þann 14.3. 1985 hóf hann störf hjá Sparisjóði vélstjóra, sem áttu að vera tímabundin. Það vatt upp á sig og urðu ár- in hans þar alls 22 og hálft, en þá lét hann af störfum, orðinn 72ja og hálfs árs. Útför Karls fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 16. des- ember 2021, kl. 13. Hlekkir á streymi: https://fb.me/e/2g3fr8Yp0 https://www.mbl.is/andlat fyrra hjónabandi eru Sigurkarl, Guðfinnur og Andri. 2) Drengur f. 11.10. 1962, d. 11.10 1962. 3) Drengur f. 16.3. 1964, d. 17.3. 1964. 4) Þóra Sigríð- ur, f. 27.8. 1969. Börn hennar eru Sóley, Birta Rós, Íris Ósk og Ernir Þór, Ívarsbörn. 5) Ásgrímur Karl, f. 5.8. 1976, kvæntur Marcelu Karls- son. Börn þeirra eru Noah og Emanuel. Þann 14.3. 1998 kvæntist Karl eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Oddbjörgu Júl- íusdóttur, f. 1.1. 1941, en höfðu þá búið saman frá 1988. Börn hennar frá fyrra hjóna- bandi eru: 1) Júlíus Guðjón Marteins- son, f. 17.6. 1960, kvæntur Telmu Hólm Másdóttur. Börn þeirra eru Daníel, Sunna Sif og Sandra Kristín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Elsku pabbi, þú ert og verður ávallt með okkur. Gústav Adolf og Hugrún Olga, Þóra Sigríður, Ásgrímur Karl og Marcela. Söknuður og minningar streyma. Hann er fluttur í sumarlandið og verður þar umvafinn vinum, frændum, systkinum og ætt- mennum. Vistinni meðal manna er lokið eftir viðburðaríka ævi sem hefur örugglega verið skemmtileg, þótt tregabundin augnablik hafi komið upp, eins og lífið býður upp á. Hann var frændrækinn, vinamargur og fylgdist með því sem var að ger- ast hjá háum sem lágum. Hann bjó að því að hafa verið íþrótta- maður á yngri árum og kappsem- in og sterkur viljinn fylgdu hon- um. Það var ekkert dregið af sér fyrr en að verki loknu. Hann hafði sterka framkomu og átti hjá sér þessa skemmtilegu reisn sem einkenndi alla tíð systkinin frá Borg í Miklaholtshreppi. Mér þótti vænt um þennan frænda minn og minningarnar eru margar enda samgangurinn talsverður þar sem þeir Kalli frændi og faðir minn áttu langa samleið í gegnum lífið, enda skildu aðeins tvö ár á milli þeirra. Annar fæðist á Borg, hinn á næsta bæ, Gröf, og þar á milli var stöðugur samgangur. Þeir keyrðu mjólkurbíla, leigubíla og rútur í fjöldamörg ár. Seinna var farið í útilegur og sitthvað brall- að í þeim, já sumt er best geymt í huganum. Seinna eftir að ég fór að verja meiri tíma í sveitinni okkar fylgdist hann vel með því sem ég var fást við og rétt nýlega falaði ég hjá honum ljósmynd – sem ég vissi að hann átti eftir öll ferða- lögin, til að útfæra eina hug- myndina sem er í vinnslu. Hann þurfti að vita hvernig veðrið var, færðin, skyggnið, heyskapur o.s.frv. og maður kom sjaldnast að tómum kofunum þegar spurt var um það liðna. Velvildin að leysa hvers mann vanda var hon- um í blóð borin og það var gott að eiga hann að. Kalli frændi var virkur á Facebook og maður er strax farinn að sakna „lækanna“ og „commentanna“. Síðasta færslan hans voru myndir sem hann sendi mér af bílunum sínum sem hann átti á meðan hann bjó í Gröf, um leið og hann spurði um snjóinn í fjöllunum. Góð minn- ing. Heimili þeirra hjóna á Strik- inu var stórglæsilegt og einstakt að koma þar við, móttökurnar hlýjar og viðgjörningurinn – maður lifandi!! Þaðan fór örugg- lega enginn svangur en allir þakklátir og glaðir. Síðustu tvö árin hafa þó verið erfið til heim- sókna. Ég vil senda Oddbjörgu eig- inkonu hans, Sigríði, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Þessi dáðadrengur mun lengi verða í hugum okkar. Minningin um Kalla frænda mun lifa. Valgarð S. Halldórsson Fyrstu minningar mínar af Kalla móðurbróður mínum eru frá mjólkurferðum í sveitirnar, ég fékk að sitja í, það var stopp- að á nær öllum brúsapöllum til að taka brúsana frá bændum, skilja eftir póst og pakka. Þá bjuggu frændi og fjölskyldan í Gröf og hann þjónustaði sveit- irnar á sunnanverðu Nesinu að stórum hluta með vöruflutninga í mörg ár. Blái og hvíti bílaflot- inn vakti alltaf mikla athygli enda vel hugsað um hann, vinnu- harkan og dugnaðurinn voru einstök. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur vorið 1967 og Kalli gerðist leigu- bílstjóri á gljáfægðum drekum í mörg ár, Chevrolet Impala eða Oldsmobile númer 75 á Bæjar- leiðum og bílnúmerið R-7049. Ungur sveitadrengur á hvít- botnuðum gúmmískóm var heill- aður af þessum gæðaflokki bíla hjá Kalla frænda enda bara um- gengist blæju Willys og 5-7 kinda Land-Rover. Árin hans í Sparisjóði vél- stjóra voru honum mikil gæfa, allir elskuðu hann og þar fann hann sig vel alla tíð til starfs- loka. Það var alla tíð mikill glæsi- leiki yfir frænda, þegar hann var ungur var hann frækinn íþrótta- maður, glímumaður góður og fleira. Þeir voru glæsilegir á velli bræðurnir frá Borg, þessir góðu íþróttamenn sem sópuðu að sér verðlaunum hér á árum áður. Systurnar hvöttu þá til dáða enda var systkinahópurinn alla tíð mjög samrýndur og var sveit sinni og héraði til sóma hvar sem farið var. Nú er þessi eldri systk- inahópur frá Borg allur kominn yfir móðuna miklu og Kalli frændi sá síðasti sem kveður. Kalli ólst upp við mikinn aga og dugnað hjá foreldrum sínum á Borg, sem voru amma mín og afi. Þar urðu allir að læra að vinna og Kalli var natinn og mjög laginn við öll bústörf, smali góður eins og sagt var. Ég minnist góðra heimsókna hans í sveitina, í rún- ingu á vorin og heyskap á sumr- in. Það var ekki talið eftir sér að skreppa í sveitina og hjálpa til á öllum tímum ársins. Einkum man ég eftir því þegar farið var í Arnarhólsrétt á haustin og morg- uninn eftir í göngur í Austurfjall- ið og samdægurs réttað í Lang- holtsrétt fjölda fjár úr sveitinni. Heimsókn til þeirra hjóna, Obbu og Kalla, á Strikið var ein- stök upplifun, þau héldu svo vel utan um alla sína fjölskyldu og vini. Samheldni þeirra, glæsi- leiki, ást og virðing við hvort ann- að snerti mann alltaf. Þessi fátæklegu orð mín eru bara þakklætisvottur til elsku- legs frænda sem var alltaf svo hlýr og tryggur og reyndist okk- ur öllum, foreldrum mínum sál- ugu, systkinum mínum og dætr- um og fjölskyldunni allri svo vel. Hlutirnir gerðust hratt í hans veikindum, við vonuðum alltaf að við fengjum hann aftur til baka, en nú verður ekkert úr Kanar- íeyjaferðinni þeirra sem plönuð var fyrir jólin. Á stundu sem þessari leitar hugurinn til barnabarna og fjöl- skyldu Kalla í Noregi og Banda- ríkjunum. Góður guð veiti þeim styrk á erfiðri stundu. Elsku Oddbjörg mín, Gústav, Þóra og Ási, Júlli, Arnar og Soffía, ég votta ykkur og fjöl- skyldum ykkar mína dýpstu sam- úð og bið alla heimsins engla að vaka yfir ykkur. Elsku frændi, þú varst ein- stakur, takk fyrir allt og allt. Minning þín lifir með mér um aldur og ævi. Auðunn Pálsson frá Borg. Kalli frændi hefur nú kvatt, síðastur systkinanna frá Borg. Við bróðurbörn hans frá Minni- Borg minnumst hans með hlýju og þakklæti. Við munum ekki öll eftir þeim tíma þegar Kalli bjó í Gröf, næsta bæ við æskuheimili okkar. En við minnumst öll heimsókna hans eftir að hann var fluttur suður og Gústav frændi, sonur hans, í sveit hjá okkur. Kalli var, eins og raunar öll systkini pabba, snar þáttur af æsku okkar. Utanlandsferðir voru fátíðar heima í sveitinni þegar við vorum börn en Kalli færði útlöndin til okkar í myndformi með slæds- mynda- og kvikmyndasýningum í kjölfar utanferða. Ógleymanleg er sýning í stofunni á Borg þar sem sýnt var nautaat sem hann filmaði á Spáni. Nautið féll í þess- um ójafna leik en stóð strax upp aftur. Þetta vakti hroll þeim okk- ar sem voru ekki nógu gömul til að sjá í gegnum tæknibrellu Kalla því oft lágum við í felum undir vegg eða á húsþaki og fylgdumst með því þegar nauti var slátrað heima. Hvað ef þetta gerðist í næstu slátrun? Þegar við fórum suður í skóla, og það á einkum við um okkur systur, nutum við gestrisni Kalla og Dirrýjar í Skipholtinu, og gát- um jafnvel lagt þeim örlítið lið, eins og Helga, sem passaði stundum Ása Kalla. Og alltaf var Kalli boðinn og búinn að skutlast með okkur út um allan bæ í leigu- bílnum. Kalli var litríkur persónuleiki með sterka nærveru enda hefur oft komið fyrir að við systkini hittum fólk sem man hann frá fyrri tíð, frá bílstjóraárunum í Gröf eða síðar. Glaðværð ein- kenndi Kalla umfram annað þótt hann hafi upplifað sinn skerf af mótlæti í lífinu. Húmorinn var aldrei langt undan. Sjálfur sagði hann yfir kaffibolla fyrir fáeinum árum að hann væri löngu hættur að svekkja sig á því sem miður hefði farið. Kalli og Obba voru hamingja hvort annars. Þau kunnu að njóta lífsins í hinu smáa og stóra. Þau ferðuðust bæði utanlands og innan og nutu hvors tveggja, glamúrsins á skemmtiferðaskip- um og þess að sitja í aðalblá- berjabrekku með fötur fullar af berjum í sultur og saft. Kalli var ættrækinn eins og sást vel á Facebook þar sem hann sendi frændfólki sínu ávallt fallegar kveðjur á afmælisdög- um. Og hann vildi leggja fólkinu sínu lið. Þannig komu þau Obba í sauðburð til foreldra okkar nokkur vor til að létta undir með þeim síðustu búskaparárin, enda pabbi þrotinn að heilsu langt fyr- ir aldur fram. Við munum sakna þess að hitta ekki Kalla aftur í einhverri veislunni í ljósbláu sparifötunum sínum eða í Hawaii-skyrtunni með stráhattinn; heyra hlátur- inn, sjá andlitið, hendurnar – allt sem minnti svo á pabba og tíma sem nú er með öllu horfinn. Við sendum elsku Obbu, frændsystkinum okkar Gústav, Þóru og Ása og fjölskyldum þeirra, og öðrum ástvinum Kalla okkar dýpstu samúðarkveðjur. Helga, Erla Hulda, Ásgrímur og Guðjón Halldórsbörn. Ég vil með nokkrum orðum minnast sómamannsins Karls Ásgrímssonar. Karl, eða Kalli eins og hann var ævinlega kallaður, hóf störf hjá Sparisjóði vélstjóra þann 14. mars 1985 sem reyndar var fimmtugasti afmælisdagur hans. Hann starfaði síðan hjá spari- sjóðnum út starfsævina. Störf hans fólust í hverskonar útréttingum fyrir sparisjóðinn svo sem fjármunaflutningum, samskiptum við Seðlabankann, útibú sparisjóðsins, póstinn og fleira. Sparisjóðurinn efldist með hverju árinu og starf Kalla jókst að sama skapi. Hann annaðist hverskonar kaup á tækjum og aðföngum og gætti hagsmuna sparisjóðsins í hvívetna. Frábær „sendiherra“ sparisjóðsins og af- ar laginn í samskiptum við fólk. Snyrtimennska, heiðarleiki og dugnaður einkenndu Kalla. Traustari starfsmaður var vand- fundinn. Kalli var félagslyndur og vinsæll meðal starfsmanna sparisjóðsins og tók hann alla tíð virkan þátt í félagsstarfi þeirra. Fyrir nokkrum dögum átti ég spjall við Kalla og sagði hann mér þá að hann og hans góða kona, Oddbjörg, hygðu á ferð til Kanaríeyja og ætluðu að dvelja þar um jólin. Enginn ræður sín- um næturstað og nú hefur Kalli lagt upp í þá ferð sem liggur fyr- ir okkur öllum. Að leiðarlokum vil ég þakka Kalla vináttu og tryggð og sendi ástvinum hans samúðarkveðjur. Hallgrímur Jónsson. Okkur spilafélögunum er bæði ljúft og skylt að minnast með ör- fáum orðum vinar okkar Karls Ásgrímssonar. Mín fyrstu kynni af Kalla voru í Sparisjóði vél- stjóra árið 1996 og strax tókst með okkur góður vinskapur. Það ríkti engin lognmolla í kringum Kalla. Hann var orkubolti, uppá- tækjasamur, ávallt hress og kát- ur, reiðubúinn að veita hjálpar- hönd og harðduglegur. Kalli hafði gaman af því að spila svo hann stofnaði spila- klúbb í sparisjóðnum sem fékk nafnið Spilaklúbbinn Smárinn. Fyrst vorum við þrír í klúbbnum og spiluðum rommý í hádegis- hléinu okkar. Svo fjölgaði spila- félögum og þá var spilaður kani, stundum á tveimur borðum í kjallara sparisjóðsins í Borgar- túni. Gæðastundir þessar í hádeg- inu leiddu svo af sér að við spila- félagarnir fórum að hittast með reglubundnum hætti utan vinnu- tíma til að spila og eiga góðar stundir saman og var þá jafnan efnt til mikilla veisluhalda. Kalli naut sín vel í þessum félagsskap og var hrókur alls fagnaðar, eins og honum var einum lagið. Hann tók stöðu sína í klúbbnum alvar- lega, enda var hann foringi hóps- ins, stofnandi, eigandi og stjórn- andi. Hann skipulagði spilaviðburðina og stýrði þeim, úthlutaði verkefnum, tók myndir og skrásetti, sá um að útvega verðlaunagripi og afhenti þá sig- urvegurum. Hann hélt minnis- bækur um spilaviðburðina en í þeim eru öll úrslit færð til bókar og þar má sjá fjölda mynda sem Kalli tók frá skemmtilegum sam- verustundum. Til gamans má segja frá því að samviskulega hélt hann aðalfund spilaklúbbsins hvert ár sem bar ávallt upp á að- fangadag jóla klukkan 17. Hann einn sat fundinn og voru niður- stöður hans, ásamt uppfærðum reglum klúbbsins, svo sendar klúbbfélögum í tölvupósti rétt áð- ur en jólin gengu í garð. Enginn gat haggað úrskurðum og ákvörð- unum Kalla. Já, það eru margar skemmtilegar stundir sem hægt er að minnast í kringum Kalla og Spilaklúbbinn Smárann eins og frá þorrablótum okkar, sumarbú- staðaferðum og spilakvöldum í heimahúsum spilafélaga. Makar okkar tóku stundum þátt í gleð- skapnum og treysti það enn betur vináttubönd hópsins sem ljúft er að minnast. Við spilafélagarnir erum þakk- látir fyrir að hafa kynnst Kalla, og Obbu konu hans, sem við vottum okkar dýpstu samúð. „Höfðinginn er fallinn,“ sagði Bragi vinur minn og spilafélagi þegar hann tilkynnti mér andlát vinar okkar. Höfðinginn, það eru orð að sönnu, Kalli var sannkallaður höfðingi. Blessuð sé minning hans. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) F.h. Spilaklúbbsins Smárans, Ragnar Z. Guðjónsson. Með Obbu og Kalla áttum við margar ánægjulegar samveru- stundir og voru þau dugleg að heimsækja okkur og eins að bjóða okkur hjartanlega velkomin boðin sem óboðin. Þau voru ótrúlega dugleg að kalla á okkur í mat, þá naut Kalli sín vel við grillið og Obba sá um meðlætið, sælkera- matur á borðum. Þau hjónin voru einkar sam- hent og gengu út frá mottóinu að maður er manns gaman. Kalla þótti vænt um fjölskyldu og samferðamenn, kom það fram í allri hans framkomu. Það var allt- af einlægur léttleiki yfir tilver- unni í návist Kalla, sem sló ætíð á létta strengi og elskaði lífið. Var alltaf að plana ferðalög, sem bæði urðu mörg innanlands sem utan, og síðan bara að rækta heimilið og fólkið. Kalli lifir með okkur áfram í minningunni um góðan dreng sem lét sig aðra varða. Hann bar með sér hina sönnu íslensku sveitagestrisni, þar var aldrei nein yfirborðsmennska. Enginn veit hvar hann dansar næstu jól. Þau hjónin höfðu skipu- lagt ferð til Tenerife yfir jól og áramót og lengur. Ein ferð í við- bót við fjölmargar vel heppnaðar ferðir í sólina. Stoltur sýndi Kalli okkur myndir af þeim hjónum, sem alltaf litu út eins og turtil- dúfur, hamingjusöm og afslöppuð og nutu virkilega dvalarinnar í sólinni. Við biðjum góðan Guð að styrkja Oddbjörgu í hennar mikla missi og vottum aðstandendum öllum innilega samúð. Guðný og Helmuth Alexander. Karl Ásgrímsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og frændi, SIGURJÓN STEFÁNSSON, Sjonni, flugstjóri frá Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað sunnudaginn 5. desember. Útför hans fer fram frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 17. desember klukkan 14. Hlekk á streymi útfarar má nálgast á facebooksíðu Norðfjarðarkirkju https://www.facebook.com/nordfjardarkirkja. Þeim sem vilja minnast Sigurjóns er bent á Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Hörður Steinar Sigurjónsson Sólveig Friðriksdóttir Christine Stefansson Pfeiff Gary C. Kagelmacher Karina Stefansson Sebastian Carnelli systkini, barnabörn og aðrir aðstandendur Sjonna Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.