Strandapósturinn - 01.06.2010, Blaðsíða 38
36
Landnámabók stendur: „Bálki hét maður Blæingsson, Sótarsonar
af Sótanesi. Hann var á móti Haraldi konungi í Hafursfirði. Eftir
það fór hann til Íslands og nam Hrútafjörð allan. Hann bjó á
Bálkastöðum hvárumtveggjum, en síðast í Bæ ok dó þar.“
(Íslendingasögur, fyrsta bindi. Landnámabók. Guðni Jónsson.
(214) bls. 119. Íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík 1946). Mér
þykir líklegt að hann hafi komið af hafi til Hrútafjarðar án
viðkomu annars staðar.
„Arndís hin auðga, dóttir Steinólfs ins lága, nam síðan (eftir
Bálka) land í Hrútafirði út frá Borðeyri. Hún bjó í Bæ.“
(Íslendingasögur, fyrsta bindi. Landnámabók. Guðni Jónsson.
(215) bls. 119. Íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík 1946). Hún
hefur að sjálfsögðu komið landleiðina frá Saurbæ í Dölum. Hún
hefur sennilega farið inn Laxárdal og yfir Laxárdalsheiði.
En hvað um Þröst og Grenjuð, sem „námu land í Hrútafirði
inn frá Borðeyri ok bjuggu at Melum.“ (Íslendingasögur, fyrsta
bindi. Landnámabók. Guðni Jónsson. (216) bls. 119.
Íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík 1946). Mér þykir sennilegt að
þeir hafi komið á skipi til Borðeyrar. Það getur líka verið að þeir
hafi tekið fyrst land í Faxaflóa eða Breiðafirði og komið þaðan til
Hrútafjarðar. Um þetta er ekkert sagt í Landnámabók. Það er
eins og þeir hafi komið af himnum ofan.
Eiríkur rauði fór norðan frá Dröngum til Haukadals og bjó á
Eiríksstöðum. Fór hann ekki á skipi inn Húnaflóa og Hrútafjörð
til Borðeyrar og þaðan yfir Haukadalsskarð að Eiríksstöðum? Mér
þykir það líklegra en hann hafi farið landleiðina inn allar
Strandir.
Á Söguöldinni var höfn og verslunarstaður á Borðeyri. Um það
bera Íslendingasögur vitni. „Sleitu-Helgi kom út á Borðeyri.“
(Íslendingasögur, fyrsta bindi. Landnámabók. Guðni Jónsson bls.
120. Íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík 1946). Koma Austmanna,
en svo voru Sleitu-Helgi og skipverjar hans nefndir, var afdrifarík,
um það verður fjallað í annarri grein. „Þeir Helgi létu út inn sama
dag og týndust allir á Helgaskeri fyrir Skriðinsenni“
(Íslendingasögur, fyrsta bindi. Landnámabók. Guðni Jónsson bls.
127. Íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík 1946).
„Skip stóð uppi á Borðeyri í Hrútafirði. Örn hét stýrimaðr.
Hann var hirðmaðr Haralds konungs Gunnhildarsonar. Melkorka