Strandapósturinn - 01.06.2010, Síða 85
83
flestir og bestir, og hvar þeir voru léðir með ljúfustu geði. Þegar
ég lenti í stólanefnd hraðaði ég mér einlægt niður í Magnúsarhús
Lýðssonar. Elínu konu hans þótti vænt um að fá að lána sína
mörgu, þungu og fallegu stofustóla. Mér var alveg sama þó að ég
yrði að rogast með þá tvo í einu hvora leið og fara margar ferðir.
Hvorum tveggja, stólum og bekkjum, var síðan raðað í salinn
og þeir númeraðir með dagatalsmiðum. Alls ekki þótti hæfa að
bjóða fólki upp á ónúmeruð sæti á svona hátíðasamkomum.
VI. FÉLÖGIN OG VIÐFANGSEFNIN
Lestrarfélag Hrófbergshrepps starfaði 1897–19. Var félaginu
þá skipt um leið og hreppnum. Að sjálfsögðu veit ég ekkert um
starfsemi þess fyrir 1932, er ég kom á staðinn. Ekkert man ég um
það hvort það stóð í leiksýningum eftir það, varla mikið og alls
ekkert eftir skiptinguna.
Þetta er langfyrsta menningarfélagið sem einhverjar sögur fara
af á staðnum. Það var stofnað á Hrófbergi um það leyti sem fyrsta
íbúðarhúsið reis á Hólmavík. Starfsvettvangur þess var því lengi
vel í sveitinni og bókasafnið fyrstu árin haft á Hrófbergi. Mér er
ekki kunnugt um hvenær það var flutt til Hólmavíkur. Strandir 2
(bls. 551) greina dálítið frá fjáröflunarleiðum þess 1904 og 1908,
t.d. hlutavelta og frjáls samskot. Í aldarfjórðung er Lestrarfélagið
eitt á þessum markaði en um miðjan 3ja áratuginn brestur á
samkeppni frá Umf. Geisla og nýju kvenfélagi. Virðist eiga að
mæta samkeppninni (1926 og síðar) með því að halda árlega
skemmtun, oftast dansleik í tengslum við aðalfund félagsins. Ekki
eru leiksýningar nefndar í því sambandi.
Hins vegar starfaði bókavörður félagsins, Þorkell Jónsson, sem
dyravörður við hverja einustu leiksýningu sem fram fór í gamla
skólahúsinu, eftir að bókasafnið hafði verið flutt þangað, frá því
ég man fyrst 1933, til loka þess sem leikhúss 1943 eða 44.
Umf. Geislinn eldri var ekki til heimilis á Hólmavík en hélt
dansleiki og færði upp leikrit þar og er þess vegna tekið hér með.
Það starfaði í Staðarsveitinni frá 1923, var áður fótboltafélag og
hét þá sama nafni (stofnað 1921).
Félagið stóð fyrir fyrstu uppfærslu á Skugga-Sveini á Hólmavík
1925. Ingimundur á Ósi Magnússon var fyrsti formaður þess.