Strandapósturinn - 01.06.2010, Síða 92
90
Aðgangseyrir að leiksýningum var árum saman í mjög föstum skorðum.
Gat þó munað frá hálfri til einnar krónu eftir merkilegheitum stykkjanna
sem sýnd voru, t.d. kr.1,50 til 2.50 fyrir fullorðna og 1,00 til 1,50 fyrir
börn. Að öðru leyti gat verð aðgöngumiða farið eftir því hvort leikritið var
í einum eða fleiri þáttum. Þess var ævinlega getið í auglýsingunni, væri
stykkið 3ja eða fleiri þátta! En það fór enginn á höfuðið við að fara einu
sinni eða tvisvar á ári í leikhúsið.
En svo kom reiðarslagið. Geisað hafði stríð og verðbólga var komin til
sögunnar þegar kvenfélagið færir upp Ævintýri á gönguför 1947 og
auglýsir aðganginn á kr.15,00. Þetta var að mig minnir sexföldun á
tíðkanlegu miðaverði. Allt ætlaði um koll að keyra. Oddviti hreppsnefndar
var þó verstur og hótaði málaferlum. Hann leitaði álits sýslumanns á
athæfi þessu en kvenfélagskonur buðu betur og tilkynntu að þær hefðu
hringt suður og spurt Verðlagsstjóra álits og fengið jákvæð svör frá honum.
Ekki heyrðist um neinn opinberan úrskurð í málinu. Kvenfélagið hafði
sitt fram, almúginn róaðist og troðfyllti húsið þrisvar í röð. Verðbólgan
jafnaði svo metin á stuttum tíma.
Jörundur Gestsson fékk á stríðsárunum uppfært á Hólmavík
leikritið Lóðsinn eftir sjálfan sig (ein sýning). Aðalhlutverkið lék
Guðbrandur Gestsson.
Málfundafélagið Vaka starfaði á Hólmavík 1934–39. Nokkrir
stofnendanna voru meðal helstu karlkynsleikara staðarins á
þessum tíma: Hjálmar Halldórsson, Friðjón Sigurðsson og Ormur
Samúelsson. Aðeins tvær konur gengu nokkru sinni í Vöku,
systurnar Anna og Elín Guðbjörnsdætur og vöktu með því
talsverða athygli. Ég tók eftir þessu á sínum tíma 10 ára gamall og
þótti dirfskan undarleg.
Félagið sýndi nokkur leikrit á þeim árum. Eitt þeirra var Jeppi á
Fjalli. Allmikið var vandað til þeirrar sýningar. Félagsmenn voru
flestir fullorðnir og framarlega í atvinnulífinu og því kannski færir
um að kosta einhverju til. Meðal annars voru máluð ný leiktjöld
fyrir Vöku. Þau málaði Finnur Magnússon. Eftir því sem ég þekkti
Finn, vil ég ekki fullyrða að mikið af kostnaðinum við tjöldin hafi
lent á félaginu. Hann hafði efsta loftið á nýbyggðu húsi
kaupfélagsins til að fullklára þau. Leiktjöld þessi, fjögur talsins,
voru úr stífum striga á sterkum grindum. Á þeim öllum voru
allaufguð skógartré. Svo vildi til að ég átti heima í kaupfélags-
húsinu, þegar Finnur og Jón bróðir hans roguðu hálfkláruðum