Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 45
43
Þegar kom yfir Reykjarfjörðinn var sýnilega norðaustanvindur
og öldugangur. Ekkert hik virtist á flugmönnunum og lentu þeir.
Þung undiralda var og stampaðist vélin rétt eins og um skip væri
að ræða og hjó upp í ölduna. Vélin var svo færð nær landi þar sem
var kyrrari sjór. Heimamenn komu síðan fram á bát eins og verið
væri að afgreiða skip og var farmur og fólk flutt í land.
Við höfðum þar með náð góðum áfanga, komnir í okkar
heimasveit en ekki komnir heim sem átti eftir að vera býsna
torsótt. Við Sveinn vorum ungir og ekkert að vanbúnaði að leggja
af stað gangandi, ef ekki væri önnur úrræði, þótt veðurútlit væri
ekki gott og komið undir myrkur, fram undan gæti verið fimm til
sex klukkustunda gangur. Sú ákvörðun var ekki svo einföld, með
okkur voru ferðafélagar sem við urðum að taka tillit til. Eitthvað
var því staldrað við og staðan ígrunduð. Á Djúpuvík var kominn
Böðvar Guðmundsson í Ófeigsfirði sem sá um póstdreifingu og
hafði verið boðaður þangað til að taka við þeim pósti sem átti að
flytjast norður um sveitina. Böðvari var nú vandi á höndum,
pósturinn var meiri en svo að hann væri borinn á bakinu og þurfti
tvo eða þrjá hesta til, sem voru heldur ekki tiltækir, og ekki
hestfæri við þær aðstæður sem voru. Niðurstaðan var sú að Böðvar
póstur var búinn að fá trillueiganda á staðnum til að flytja sig og
póstinn yfir fjörðinn, gátum við ferðafélagarnir fengið far með.
Þetta var talið fært þótt veður væri ekki upp á það besta en ekki
langt að fara og hagstæð landtaka í Naustvík við ríkjandi vindátt
þótt lent væri beint í fjöruna.
Öðrum áfanga ferðarinnar var lokið, við höfðum fast land
undir fót í fjörunni í Naustvík sem er afskekktur bær við
norðanverðan Reykjarfjörð nokkurn veginn beint á móti Djúpuvík.
Þótt ég segi hér að hann væri afskekktur var hann í þjóðleið milli
bæja við sunnanverðan Reykjarfjörð, og má þar m.a. nefna
verslunarstaðinn á Kúvíkum, meðan hann var í byggð, og Djúpuvík
þar sem var á tímabili nokkurt fjölmenni. Leiðin sem fram undan
var var yfir svonefnd Naustvíkurskörð, sem er dálítill fjallvegur,
brattar brekkur beggja vegna fjallsins, og var leiðin við þær
aðstæður sem nú voru ekki fýsileg, komið myrkur og veður alls
ekki gott, norðanátt með dálítilli snjókomu. Næsti bær á móti var
Bær í Trékyllisvík. Á þeim árum voru vegalengdir ekki mældar í
kílómetrum. Einungis talað um hvað þessi eða hin bæjarleiðin