Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 66

Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 66
64 notkun og er það að nálgast 100 árin. Þetta var fyrsta ljóshúsið sem logsoðið var saman hér á landi. Núverandi viti er steinsteyptur og alls 10,3 m á hæð. Höfundi þessarar greinar er ekki kunnugt um að áður hafi verið sagt frá árásinni á Grímseyjarvita á prenti. Er það kannski vegna þess að skemmdir urðu ekki miklar. En í bókinni Vitar á Íslandi, sem stuðst er við hér, segir svo á bls. 103: Vegna hernáms Breta og síðar Bandaríkjamanna og viðbúnaðar þeirra hér áttu Þjóðverjar óhægt um vik að gera atlögur að skotmörkum á Íslandi og tjón á mannvirkjum á landi af þeirra völdum því hverfandi. Vitar landsins nutu sjálfsagt verndar af veru herliðsins hér og hafa að líkindum ekki verið mikilvæg skotmörk meðan slökkt var á þeim enda er aðeins getið um tvær árásir Þjóðverja á vita á Íslandi á meðan seinni heimsstyrjöldin stóð. Þær áttu sér báðar stað þann 18. ágúst 1942. Þýsk flugvél gerði þá skotárás á Skagatáarvita og skemmdi bæði ljóstæki og vitahús nokkuð og einnig gerði þýsk flugvél skotárás á Hegranesvitann og var talið að sama vél hefði verið þar á ferð og skaut á Skagatáarvitann. Samkvæmt sömu heimild (bls. 50) var það J.F. Aasberg, skipstjóri á skipum Sameinaða gufuskipafélagsins, sem kom því til leiðar að byggðar voru sjómerkjavörður í Grímsey á Steingrímsfirði árið 1899. Þessi sjómerki voru endurnýjuð árið 1903 á kostnað landssjóðs. Sjómerkjavörðurnar voru tvær, önnur norðaustur úr vitanum og eru þar leifar úr henni enn, en hin alveg úti á enda á Grímseynni þar sem sést vel ofan á Uxann. Þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst, 1914, voru vitabyggingar að komast á allgott skrið. Það ár var tekin ákvörðun, ásamt mörgum, um að byggja þrjá innsiglingarvita við Steingrímsfjörð að kröfu norska skipafélagsins „Det Bergenske Dampskibsselskab“ sem þá hafði gert samning við íslensk stjórnvöld um siglingar frá austur og vestur Noregi um Færeyjar umhverfis Ísland og voru skipstjórar félagsins hafðir með í ráðum um gerð og staðsetningu vitanna. Alþingi samþykkti lög sem heimiluðu byggingu vitans á Grímsey í Steingrímsfirði sem var sá eini þessara vita sem landssjóður greiddi kostnað við en vegna styrjaldarástandsins reyndist ekki unnt að fá linsurnar í þessa vita
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.