Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 95

Strandapósturinn - 01.06.2010, Side 95
93 Umf. Geislinn yngri Félagið var stofnað 1945. Mörg, kannski flest leikrit sem félagið sýndi frá byrjun til 1958, eru talin hér að neðan. 1949-50 Kvenfél. kannski annað, UMFG hitt: Orrustan á Há- logalandi og Græna lyftan. 1951-52 Við Kertaljós og Saklausi svallarinn. 1953 Frænka Charleys apríl (4 sýningar). 1954 Fjölskyldan í uppnámi. 1955 Köld eru kvennaráð, 5 sýningar (met). Leikför að Óspakseyri. Ball á eftir. Skemmtiiðnaður breyttist nú sem óðast (um 1956) í spurningaþætti, Já og nei og vísubotnanir með meiru. Óljóst er fyrir mér hvort leikstarfsemi lagðist af á Hólmavík um sinn út af þessu. Í sendibréfi einu dagsettu á Hólmavík í apríl 1956, segir bréfritari á þá leið að á Hólmavík verði víst engin leikstarfsemi í vetur úr því sem komið er. Eitthvað er það, að 1960–80 má málaflokkurinn heita mér lokuð bók, rétt eins og ekkert hafi verið að gerast. Ég (burt fluttur 1958) frétti lítið að heiman og sá ekkert skrifað frá þessum tíma. Fann þó hjá mér eina línu á bréfsnepli: 1958 Karólína snýr sér að leiklistinni. Kvenfélagið. Slysavarnadeildin Dagrenning 1945 Skugga-Sveinn. Slysavarnadeildin hélt aðalfund í stríðslokin og kosinn var nýr formaður, Jón Ottósson. Ekki hafði hann fyrr tekið við embætti en hann fór að róa að því öllum árum að koma Skugga-Sveini á svið til fjáröflunar fyrir deildina. Lítið hafði Jón skipt sér af skemmtanaiðnaðinum fram að þessu og kom fólki á óvart harðfylgi hans að berja málið í gegn móti linnulausum úrtölum úr öllum áttum. Þessar mótbárur voru svo sem ekki úr lausu lofti gripnar: Hvar átti til dæmis að sýna leikritið? Gamli skólinn var að syngja sitt síðasta. Búið var að rífa úr honum senuna. Nýja samkomuhúsið, sem í seinni tíð kallast Bragginn, en Félagsheimilið þegar best lét, var í smíðum og ekki tilbúið. Þetta eitt þótti flestum nægilegt til að taka Skugga-Sveinsmálið út af dagskrá. En Jóni héldu engin bönd. Hann kallaði saman fund hugsanlegra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.