Strandapósturinn - 01.06.2010, Page 102

Strandapósturinn - 01.06.2010, Page 102
100 Sveinn Kristinsson Skólagangan Það er morgunn í byrjun nóvember 1956. Landpósturinn, hann Einar á Munaðarnesi kom í gær. Það er alltaf eftirvænting þegar pósturinn kemur. Ekki sérstaklega vegna þess að fólk eigi von á skemmtilegri póstsendingu, heldur vegna þess að koma landpóstsins rýfur einangrunina, hann kemur með nýjar fréttir úr sveitinni og segir okkur sögur af mönnum og málefnum. Einar talar þó ekki af sér, hann er varfærinn í orðum og talar ekki illa um fólk. Hann hefur alltaf varann á sér, vill ekki styggja neinn. Hann er ekki maður sem fullyrðir hluti. Ég á að fara í skólann og fylgja Einari fram eftir. Ég þarf að vera þar næstu fjórar vikurnar. Ég kvíði því dálítið, en hlakka líka til að vera með öðrum krökkum, læra og leika mér. Það er hvíld frá því að stússa við kindurnar og búverkin, fara á beitarhúsin og gefa og hreinsa grindurnar. En leiðin er löng. Ég verð tvo daga á leiðinni ef veðrið helst gott. Ég á að ganga með landpóstinum honum Einari fram í sveit og við erum að leggja af stað í birtingu, því dagurinn er skammur. Systkini mín eru sofandi, en pabbi og mamma sem sefur minnst af öllum eru komin niður og það er kaffiilmur í eldhúsinu. Einar drekkur kaffið hægt, hann hellir því á undirskálina, blæs á það til að kæla ofurlítið og sötrar svo af skálarbrúninni. Pabbi drekkur kaffið líka af undirskálarbrún. Það er sötursinfónía í eldhúsinu. Úti er enn myrkur. Mamma er búin að setja fötin mín og skólabækurnar í hvítan léreftspoka og pabbi bindur bandspotta í annað hornið og hinn endann fyrir opið, en mátulega þannig að ég geti smeygt bandinu yfir mig og haft pokann á bakinu. Hann er ekki þungur, hef bara föt til skiptanna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.