Strandapósturinn - 01.06.2011, Síða 57
55
þeir eiga, en ekki meira, er jafnvel naumur á gjöld sín til þeirra,
en fús til viðurkenningar á því, sem þeir vel gera. En þrátt fyrir
heiðinglega framkomu við kirkju Krists mun hann oftar nær Kristi
í hugsun en samtíð hans. Þegar þeir bræður hrekjast um hafið á
ísnum, vill bróðir Hallvarðs heita á kirkju Péturs postula eða á
Hall föður sinn, þeim til undankomu, en Hallvarður vill það ekki,
heldur heitir hann á Krist, að fyrir hans sakir skuli hann jafnan
vera snauðum mönnum og vesölum hjálplegur, og hann fær
bróður sinn til þess að festa það heit með sér. Hallgrím Pétursson
tignar hann og veit ekki betri leiðarvísi út yfir gröf og dauða en
Passíusálma hans.“
Sagt var að Hallvarður væri vænlegur til áheita og verði mönn-
um oft að ósk sinni, er það hafi reynt. Hafa menn gjarnan lagt
fram fé til áheita – svo og dittað að leiði hans. Var slíkt áheitafé
t.d. notað til að reisa skipbrotsmannaskýli í Skjaldarvík árið 1991
– Hallvarðsbúð – og stóðu einkum fyrir því framtaki Pálína Guð-
jónsdóttir, húsfreyja á Munaðarnesi, og fjölskylda hennar, en Pál-
ína er fædd í Skjaldarvík, dóttir þeirra hjóna Guðjóns Kristjáns-
sonar og Önnu Jónasdóttur.
En víkjum nú að sumarvist minni hjá þeim hjónum – afa og
ömmu – á fjórða og fimmta tug síðustu aldar.
Síðustu ábúendur í Skjaldabjarnarvík
Þegar ég man fyrst eftir mér í Skjaldabjarnarvík var þar tvíbýli.
Afi minn og amma, Guðjón Kristjánsson og Anna Jónasdóttir,
settust þar að og hófu þar búskap nokkuð upp úr aldamótunum
1900 og þar fæddust þeim 9 börn, sem öll náðu fullorðinsaldri.
Þar búnaðist þeim eftir aðstæðum vel, þó fátækt væri þar í búi og
hópurinn stór – og jörðin skipt milli tveggja bænda – og jarðnæð-
ið því minna en ella hefði verið.
Einhverra hluta vegna, sem ég hirði ekki frekar um að greina
frá, fluttu þau frá Skjaldarvík árið 1923 og settust þá að í Þaralát-
ursfirði, sem var miklu minni jörð og lakari búsetuskilyrði og illa
húsað, og urðu þau að byrja á því að endurnýja íbúðarhúsnæði –
og byggja gripahús. En fyrir dugnað þeirra og atfylgi tókst þeim
að koma þar upp ásættanlegu búi og þar sótti Guðjón sjóinn stíft
enda vanur sjósókn frá yngri árum – og þarna ólust börnin öll
upp til fullorðinsára.