Strandapósturinn - 01.06.2011, Qupperneq 98
96
sveitinni, óbyggður öðrum en Mókolli gamla, en frægur nokkuð
fyrir bleikju eða postulínsleir sem þar finnst í töluverðu magni. Sá
galli er á hinni hefðbundnu gerð þessara sagna, að því er tekur til
Mókollshaugs, að þaðan sést ekki til neins bæjar og hefur aldrei
sést, svo að bæjarbruninn verður þar út í hött. Samt sem áður er í
engu brugðið frá venjunni í sögunni af uppgreftri hans, þótt sjálf-
sagt hefði mátt láta eitthvað annað óvænt fyrirbæri verða til að
stöðva verkið. En þjóðsagan er söm við sig og fer ekki alltaf að
líkum.
Á seinni hluta 16. aldar bjó að Felli í Kollafirði séra Oddur Þor-
steinsson. Hann var sonur Þorsteins Guðmundssonar lögréttu-
manns, sem var þriðji og síðasti maður Þórunnar á Grund, dóttur
Jóns Arasonar biskups. Þorsteinn gerðist á unga aldri sveinn bisk-
ups og lagði þá þegar ást á Þórunni dóttur hans, en fékk ekki að
eiga hana fyrr en hún var orðin ekkja öðru sinni. Þau eignuðust
ekki börn saman, en Þorsteinn átti fimm launbörn og var séra
Oddur eitt þeirra. Móðir hans hét Guðrún Ásmundsdóttir. Odd-
ur var fyrst prestur í Eyjafiði og var fyrri kona hans Geirdís Torfa-
dóttir, Jónssonar í Saurbæ. Systir hennar, sem Arnfríður hét, var
þá barn að aldri og var á heimili þeirra. Þetta vesalings stúlkubarn
varð fyrir því óláni að verða barnshafandi og hafði presturinn
nauðgað henni. Í vímu fáfræðinnar trúði fólk því jafnvel, að hann
hefði beitt göldrum til að komast yfir hana. Ljóst má þó öllum
vera að ekki þarf fullorðinn karlmaður að kunna neinar satans
kúnstir, til þess að hafa öll ráð telpukrakka í hendi sér ef hann er
nógu mikil skepna til slíks ódæðis. Séra Oddur hlaut þungan
dóm, missti hempuna og mátti þakka fyrir að halda lífi og limum.
Einnig skyldi hann borga stúlkunni háar fébætur. Síðar var hann
náðaður með því skilyrði að hann flyttist burt úr Norðlendinga-
fjórðungi. Þá barst hann vestur á Strandir og varð prestur í Trölla-
tungu og Bitruþingum og bjó lengst af á Felli, sem var föðurleifð
hans, en var dæmd af honum til sona hans vegna þessa máls, sem
áður greinir. Ekki mun séra Oddi hafa orðið neitt á í messunni
eftir þetta, nema hvað þjóðsögur eru til um galdrakúnstir hans.
Síðari kona Odds var Sigþrúður Magnúsdóttir og er ekki alveg
ljóst hvor þeirra var móðir hvers af börnunum, sem líklega voru
sex talsins. Við þessa sögu koma þó aðeins bræður þrír, Jón, Niku-
lás og Þorsteinn. Allir voru þeir myndarmenn, greindir og líklegir