Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202120
Rannsókn sem Varða – rannsókna
stofnun vinnumarkaðarins gerði
fyrir Öryrkjabandalag Íslands á
stöðu fatlaðs fólks á Íslandi sýnir
að staða stórs hluta þessa hóps er
afar bágborin í velferðarríkinu
Íslandi.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit þeirra
sem ráðið hafa ferðinni bæði til
hægri og vinstri í pólitík um áraraðir
er ástandið enn grafalvarlegt og fjár-
hagsstaða fatlaðs fólks er í heildina
greinilega mjög slæm. Í skýrslu um
rannsókn Vörðu, sem gerð var af
Margréti Einarsdóttur og Kristínu
Hebu Gísladóttur, segir m.a.:
• Tæplega átta af hverjum tíu eiga
erfitt, eða frekar erfitt með að
ná endum saman.
• Sex af hverjum tíu geta ekki
mætt óvæntum útgjöldum.
• Tæplega fjórir af hverjum tíu
búa við skort á efnislegum
gæðum. Í rannsókninni kemur
fram að einstæðir fatlaðir for-
eldrar og einhleypt fatlað fólk
stendur höllum fæti fjárhags-
lega.
• Tæplega níu af hverjum tíu ein-
hleypum og einstæðum foreldr-
um eiga erfitt eða frekar erfitt
með að ná endum saman.
• Um helmingur einstæðra for-
eldra og einhleypra býr við
skort á efnislegum gæðum.
• Ríflega fjórir af hverjum tíu
einstæðum foreldrum geta
ekki veitt börnunum sínum
eins næringarríkan mat og þeir
vilja eða greitt kostnað vegna
skipulagðra tómstunda.
Áhugaleysi í pólitíkinni
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for-
maður Öryrkjabandalagsins, sagð-
ist í samtali við Bændablaðið lítil
viðbrögð hafa fengið úr pólitíkinni
önnur en frá frambjóðendum sem nú
standa í kosningabaráttu. Lítið sem
ekkert hafi gerst frá hruni til að bæta
stöðuna sem hafi farið versnandi á
síðustu 14 árum.
„Menn geta ekki endalaust ýtt
þessum vanda á undan sér eins og
gert hefur verið undanfarin ár. Þar
hafa menn sett fram þann fyrirslátt
að það þurfi að fara í umtalsverðar
kerfisbreytingar til að hægt sé að
laga stöðuna og bæta afkomu fatl-
aðs fólks.
Við höfum ítrekað upplýst stjórn-
völd um stöðuna þó það sé kannski
ekki fyrr en núna sem búið er að
vinna könnun sem sýnir það sem við
höfum verið að segja svart á hvítu.
Menn verða að horfast í augu við
vandamálið. Það er ekki hægt að ýta
þessu endalaust til hliðar vegna þess
að það sé óþægilegt. Það sem þarf að
gerast er að menn viðurkenni vand-
ann og ákveði að lagfæra stöðuna.
Við erum nú með örorkulífeyri
sem er hundrað þúsund krónum
lægri en lágmarkslaun, en örorku-
lífeyrir var jafn lágmarkslaunum
2007. Þarna hefur gliðnað gríðarlega
á 14 árum. Það hafa verið hækkaðar
atvinnuleysisbætur á þessum tíma,
en menn skildu öryrkjana algjörlega
eftir. Frá 2009 hefur staða öryrkja
ekki verið leiðrétt þrátt fyrir gríðar-
legt hagvaxtarskeið.“
Engin biðlund lengur
eftir kerfisbreytingum
Þuríður segir réttast að þeir sem
ráði ferðinni í þessum málum taki
strax ákvörðun um að þetta verði
lagfært í einu skrefi. Þó fatlað fólk
sé þolinmótt hafi það ekki endalausa
biðlund eftir að farið sé í að einfalda
kerfið. Þá séu allar stærðir þekktar
varðandi öryrkja og algjör óþarfi að
bíða með aðgerðir.
„Við höfum sýnt ótrúlega bið-
lund, seiglu, en nú finnst okkur
algjörlega eðlilegt að menn taki
nú þegar ákvörðun um úrbætur og
setji t.d. fram nákvæma tímalínu um
hvernig þessari stöðu verði breytt
á næstu þrem árum. Við viljum að
örorkulífeyrir verði í það minnsta
hækkaður þannig að hann nái lág-
markslaunum í landinu. Einnig að
dregið verði verulega úr skerðing-
um, þannig að fólk sem getur farið
út á vinnumarkaðinn í kannski
25–50% vinnu eða hvað það yrði,
lendi ekki í ógnarlegum skerðingum
hjá Tryggingastofnun.
Það þarf vissulega að einfalda
almannatryggingakerfið, en við
eigum ekki að þurfa að bíða eftir
slíkum kerfisbreytingum til að fá
kjör fatlaðs fólks leiðrétt. Það þarf
ekki að meta fólk öðruvísi inn í
breytt almannatryggingakerfi.“
Starfsgetumat úrelt hugmynd
sem gengur ekki upp
Þuríður segir að menn hafi m.a. falið
sig á bak við innleiðingu á „starfs-
getumati“ sem hvergi hafi reynst til
góðs í löndunum í kringum okkur
og hafi verið mikið bitbein. Þetta sé
hugmynd sem kom upp um síðustu
aldamót og hafi verið ansi lífseig
í íslenskri pólitík. Hún hafi hvergi
gengið upp og sé úrelt hugmynda-
fræði.
Engin afsökun að gera ekki neitt
„Ég held að menn séu búnir að átta
sig á að þetta er ekki leiðin. Við
erum bara um 360 þúsund manna
þjóð og við þurfum ekki kerfi sem
skapað er fyrir milljóna þjóðir. Við
erum með vinnusamt og duglegt
fólk sem líður fyrir það að geta ekki
verið á vinnumarkaði. Því eru allar
bjargir bannaðar. Fatlað fólk sem
fæðist þannig, veikist eða slasast
gerir þetta ekki að gamni sínu. Þeir
sem geta úr þessum hópi vilja taka
þátt á vinnumarkaði. Síðan eru þeir
sem alls ekki geta unnið, þeir eru í
langverstu stöðunni. Það verður að
sjá til þess að það fólk hafi stuðn-
ing sem dugir til framfærslu. Það er
engin afsökun að gera ekki neitt.“
Þó við viljum ekki skrifa upp
á það að fatlað fólk fari í gegnum
starfsgetumat, þá er samt hægt að
gera ýmislegt. Fyrst ætti að byrja á
að laga það sem við vorum sammála
um að þyrfti að gera. Það gengur
ekki að láta fatlað fólk bíða enda-
laust og sitja á hakanum meðan
menn tala lon og don um risavaxnar
kerfisbreytingar. Slíkar breytingar
verða ekki gerðar á einum degi.
Það er ekkert stórmál að laga
þessa hluti. Þetta snýst um að menn
viðurkenni vandann og vilji er allt
sem þarf til að gera nauðsynlegar
breytingar. Þá gengur heldur ekki
að þingmenn sýni fordóma og tali
niður til fatlaðs fólks. Maður gerir
kröfu um að þeir vandi sig þegar
þeir tala til svo viðkvæmra hópa og
búi ekki til meiri fordóma en þegar
eru til staðar,“ segir Þuríður Harpa
Sigurðardóttir.
12% alls fatlaðs fólks þarf
að reiða sig á mataraðstoð
Í rannsókn Vörðu koma fram slá-
andi tölur sem sýna að meirihluti
fatlaðra, eða 59% yngra fólks í hópi
aðspurðra, þurfa að reiða sig á fjár-
hagsaðstoð frá ættingjum og vinum
og 38% þeirra sem eldri eru, eða að
meðaltali 41%. Þá þurfa 13% yngra
fólks að reiða sig á aðstoð hjálpar-
samtaka og 6% eldra fólks. Einnig
er umhugsunarvert í velmegunar-
landinu Íslandi að 12% alls fatlaðs
fólks þurfi að reiða sig á matar-
aðstoð. Ekki mældist marktækur
munur á milli kynja en talsverður
munur var eftir aldri fatlaðra.
Mikill meirihluti getur ekki
mætt óvæntum útgjöldum
Alls geta 62% fatlaðra ekki mætt
óvæntum útgjöldum í sínu lífi. Þá
hafa 23% ekki efni á kjötmáltíð
annan hvern dag. Eins hafa 9%
hvorki efni á að vera með síma eða
sjónvarp og 5% hafa ekki efni á að
kynda húsnæði sitt nægilega.
22% fatlaðra hefur
ekki efni á að reka bíl
Rætt hefur verið um að kolefn-
isskattar hafi komið illa við þá sem
hafa lægst laun í landinu, fjölskyldu-
fólk, aldraða og öryrkja sem oft eru
líka með skerta hreyfigetu. Leiða má
líkum að því að þessir skattar hafi
m.a. áhrif á möguleika fatlaðra til að
reka sinn eigin bíl. Í rannsókninni
kom í ljós að í heild hafa 22% fatl-
aðra alls ekki efni á að reka bíl, þ.e.
30% yngra fólks og 21% eldra fólks.
Fjöldi barna fatlaðs fólks
verður afskiptur í skólakerfinu
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna
að 7% fatlaðs fólks með börn hafa
ekki getað greitt leikskólagjöld.
Þá geta 11% ekki greitt gjöld fyrir
frístundir, 8% ekki skólagjöld í
framhaldsskóla og 11% ekki fyrir
skólabækur eða annan námskostnað.
Hrópandi er í okkar þjóðfélagi
að 17% fatlaðra eiga ekki fyrir mat
í skólanum og 30% eiga ekki fyrir
kostnaði vegna skipulegra tóm-
stunda. Eins eiga 12% ekki fyrir
kostnaði vegna skólaferðalaga, 40%
ekki fyrir nauðsynlegum fatnaði.
Um 34% fatlaðra með börn á fram-
færi telja sig ekki geta boðið þeim
eins næringarríkan mat og börnin er
talin þurfa. Þá hafa 6% ekki peninga
fyrir öðrum kostnaði barna sinna.
Slæm andleg og líkamleg heilsa
Rannsóknin sýnir einnig að andleg
og líkamleg heilsa fatlaðs fólks er í
yfirgnæfandi tilvika slæm og flestir
hafa þurft að neita sér um heilbrigð-
isþjónustu á einhverjum tímapunkti.
• Ríflega átta af hverjum tíu hafa
neitað sér um heilbrigðisþjón-
ustu.
• Sex af hverjum tíu hafa neitað
sér um tannlæknaþjónustu.
• Þrír af hverjum tíu hafa neitað
sér um almenna heilbrigðis-
þjónustu.
• Tæplega níu af hverjum tíu
segja að kostnaður sé helsta
ástæða þess að þeir hafi neitað
sér um heilbrigðisþjónustu.
Þá kemur líka fram í rannsókn
Vörðu að margir finna fyrir félags-
legri einangrun og meirihluti finnur
fyrir fordómum. Samt er talsverður
vilji meðal fatlaðs fólks til að vera
á vinnumarkaði, en heilsa þess er
helsta fyrirstaðan.
• Tæplega sex af hverjum tíu
segja mikilvægast að hækka
örorkulífeyri og tengdar greiðsl-
ur þegar spurt er um breytingar
á almannatryggingakerfinu.
Covid-19 hefur haft víðtæk áhrif
á heilsu fatlaðra og fjárhagsstöðu
Kórónuveirufaraldurinn hefur
haft víðtæk árhrif á heilsu, líðan,
daglegt líf og fjárhagsstöðu fólks.
Faraldurinn hefur sýnt styrk samfé-
lagsins en einnig afhjúpað veikleika
þess. Öryrkjabandalag Íslands óskaði
eftir að Varða – rannsóknastofnun
vinnumarkaðarins framkvæmdi
sambærilega könnun og stofn-
unin stóð fyrir á stöðu launafólks
í upphafi árs (Margrét Einarsdóttir,
Kolbeinn Hólmar Stefánsson og
Kristín Heba Gísladóttir, 2021).
Markmið könnunarinnar er að veita
upplýsingar um stöðu fatlaðs fólks
varðandi:
1. Fjárhag
2. Félagslega stöðu
3. Viðhorf til þjónustustofnana
4. Viðhorf til breytinga á
almannatryggingakerfinu
5. Atvinnuþátttöku
6. Heilsufar
Könnunin var lögð fyrir í lok maí
og byrjun júní 2021 og er aðferð
hennar lýst í öðrum kafla. Í þriðja
kafla er greint frá niðurstöðum
könnunarinnar.
Niðurstöðukaflinn skiptist í
nokkra kafla sem hver um sig fjall-
ar um ákveðna þætti sem tengjast
stöðu fatlaðs fólks.
Fyrsti niðurstöðukaflinn fjall-
ar um lýðfræðilega samsetningu,
annar kaflinn um fjárhagsstöðu,
sá þriðji um heilsufar, fjórði kafl-
inn um félagslega einangrun og
fordóma, sá fimmti um atvinnu-
þátttöku fatlaðs fólks og virkni og
sjötti og síðasti kaflinn um viðhorf
til þjónustustofnana og breytinga
á þeim.
Allir þættir sem skoðaðir eru í
niðurstöðunum eru greindir eftir
kyni og aldri, fjárhagsstaðan er að
auki greind eftir fjölskyldustöðu
og félagsleg einangrun eftir því
hvort þátttakendur búa einir eða
með öðrum.
Í þeim tilvikum þar sem um
sambærilegar niðurstöður er
að ræða eru þær að auki bornar
saman við niðurstöður úr könnun
á högum öryrkja árið 2009 sem
skoðaði stöðu fólks á örorkulífeyri,
örorkustyrk og endurhæfingarlíf-
eyri frá Tryggingastofnun 2010.
Einnig við niðurstöður og gögn úr
Lífskjararannsókn Hag stofunnar
2021 og spurningakönn un Vörðu
sem lögð var fyrir félaga í aðildar-
félögum ASÍ og BSRB í lok árs
2020.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Rannsókn Vörðu – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins á stöðu fatlaðs fólks á Íslandi:
Nær 80% fatlaðra í velmegunarlandinu Íslandi
eiga erfitt með að ná endum saman
– Einu virðist gilda hvort hægri-, vinstri- eða miðjuflokkar hafa komið að þessum málaflokki því staðan hefur versnað frá hruninu 2008
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.